Innlent | Morgunblaðið | 6.5.2026 | 6:00 ESB-ferlið hófst strax 2025 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hóf þegar hinn 6. janúar 2025 að gera norrænum utanríkisráðherrum grein fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður ekki síðar en árið 2027. mbl.is/Eyþór/AFP Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Engin gögn til um samning við ESB Hafna fyrirspurn og gestakomum „Vil meina að ég hafi sýnt töluverða viðleitni“ Landskjörstjórn fellst á nýtt orðalag spurningarinnar Munu leggja til að orðalaginu verði breytt » Fleiri tengdar fréttir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur var vart tekin til starfa þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræddi nýtt aðildarferli að Evrópusambandinu (ESB) við norræna kollega og framkvæmdastjórnarmenn í Brussel. Það gerðist áður en Alþingi var kallað saman eftir kosningar og löngu áður en þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar var boðuð. Ráðherra og embættismenn virðast hafa rætt tímalínur, sviðsmyndir, stöðu samningskafla frá 2013 og stuðning einstakra ríkja og embættismanna ESB löngu áður en málið kom til umfjöllunar á Íslandi. Þetta kemur fram í gögnum sem utanríkisráðherra kom til utanríkismálanefndar Alþingis í gær, en þau eru ekki bundin trúnaði. Utanríkisráðherra hóf þegar hinn 6. janúar 2025 að gera norrænum utanríkisráðherrum grein fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður ekki síðar en árið 2027. Hinn 15. janúar hitti ráðherra framkvæmdastjórnarmennina Maros Šefcovic utanríkisviðskiptastjóra, Kaju Kallas utanríkismálastjóra og Mörtu Kos stækkunarstjóra í Brussel og kynnti þeim þessar fyrirætlanir. Liðlega 50 fundir ráðherra um aðildarferlið eru færðir til bókar. Það er þó ekki meginefni þeirra allra, eins og þá er fram tekið. Ekki verður af yfirlitinu séð að tolladeila Íslands og ESB vegna járnblendis hafi nokkru sinni verið samhliða færð í tal. Sú hugmynd, að flýta þjóðaratkvæðagreiðslunni, virðist fyrst hafa borist í tal 19. janúar á fundum með Kos og Kallas um ESB-aðildarviðræður. Þorgerður Katrín sagði leiðtoga stjórnarflokkanna sammála um að flýta ferlinu og að þjóðaratkvæðagreiðslan gæti orðið „fyrr en seinna“. Hinn 13. mars sagði Þorgerður Katrín hins vegar utanríkisráðherra Írlands hvað til stæði og óskaði stuðnings Íra, sem taka við formennsku ráðherraráðs ESB 2027, ef niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar yrði já. Þær ráðagerðir kynnti ríkisstjórnin fyrst opinberlega á blaðamannafundi hinn 6. mars 2026, á undan þingflokkum stjórnarflokkanna. Tveimur dögum fyrr áttu íslenskir embættismenn fund með stækkunarsviði ESB, fóru yfir stöðu samningskafla 2013 og sviðsmyndir um hvernig þráðurinn yrði tekinn upp aftur, samþykkti þjóðin aðildarviðræður á ný. Tengdar fréttir Ísland og ESB Engin gögn til um samning við ESB Hafna fyrirspurn og gestakomum „Vil meina að ég hafi sýnt töluverða viðleitni“ Landskjörstjórn fellst á nýtt orðalag spurningarinnar Munu leggja til að orðalaginu verði breytt » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér 1 blogg um fréttina Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Bloggað um fréttina Magnús Sigurðsson: I told you so Nýjast á mbl.is » Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Áfram él norðan- og austanlands ESB-ferlið hófst strax 2025 Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Fannar Sveins: Týndi efninu í mikilli þynnku Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaffihúsum Kaffitárs lokað: „Það eru breyttir tímar“ Áhættumat ekki gert eftir tilfinningu Engin gögn til um samning við ESB Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Mest lesið Í gær Í vikunni Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Myndir: Fjórtándu fjáröfluninni hleypt af stað Auglýsa Pizza 67 til sölu Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Heiðursborgarinn er á bensínstöðinni Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Kona á sjötugsaldri í bráðaaðgerð eftir smygl Kaffihúsum Kaffitárs lokað: „Það eru breyttir tímar“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Nýjast á mbl.is » Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Áfram él norðan- og austanlands ESB-ferlið hófst strax 2025 Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Fannar Sveins: Týndi efninu í mikilli þynnku Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafna fyrirspurn og gestakomum Allt stefnir í skelfileg úrslit MDE: Ekki brotið á rétti Lárusar Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Mest lesið Í gær Í vikunni Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Myndir: Fjórtándu fjáröfluninni hleypt af stað Auglýsa Pizza 67 til sölu Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Heiðursborgarinn er á bensínstöðinni Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Kona á sjötugsaldri í bráðaaðgerð eftir smygl Kaffihúsum Kaffitárs lokað: „Það eru breyttir tímar“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda