Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hraðar á milli staða

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.4.2026 | 9:00 Hraðar á milli staða Hildur Björnsdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Það er lífsgæðamál að bæta samgöngur í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn vill greiða fyrir umferð svo fólk komist hraðar á milli staða. Tryggja þarf frelsi og val um fjölbreyttar samgöngur og láta af stjórnlyndi í garð borgaranna. Einn fararmáti á ekki að útiloka annan – framtíðin á að fela í sér valfrelsi og sveigjanleika. Ný forgangsröðun Endurskoða þarf fjármögnun og forgangsröðun verkefna í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Sjálfstæðisflokkurinn hafnar flýti- og umferðargjöldum á höfuðborgarsvæðinu og kallar eftir því að framlag ríkisins verði fjármagnað með öðrum hætti. Tryggja þarf að brýnustu og arðbærustu verkefni sáttmálans njóti forgangs. Flýta þarf mislægum gatnamótum við Sprengisand, Miklubrautargöngum og innleiðingu snjallra ljósastýringa. Samhliða þarf að afturkalla þrengingar við Höfðabakka, bæta umferðaröryggi á fjölförnum gatnamótum og tryggja nauðsynlegt viðhald á samgönguinnviðum borgarinnar. Tryggja þarf greiðar og öruggar leiðir fyrir gangandi og hjólandi í Reykjavík og börn þurfa ávallt að eiga örugga gönguleið til skóla. Borgarlínu siglt í strand Sjálfstæðisflokkurinn telur meirihlutann í Reykjavík hafa siglt Borgarlínu í strand og hyggst endurskoða verkefnið frá grunni. Innleitt verði nýtt hagkvæmt hraðvagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að almennri umferð, í samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Ferðir verði tíðari, biðskýli betri, þjónustan öflugri og dregið úr áherslu á miðjusetningu sérakreina. Sjálfstæðisflokkurinn hafnar yfirvofandi þrengingum á almennri umferð, svo sem á Suðurlandsbraut. Markmið hins nýja hraðvagnakerfis verði að gera almenningssamgöngur að raunhæfum valkosti fyrir fleiri. Kollvörpun bílastæðastefnu Sjálfstæðisflokkurinn hyggst kollvarpa bílastæðastefnu borgarinnar svo hún mæti betur þörfum íbúa og atvinnulífs. Vinda þarf ofan af breytingum á bílastæðagjöldum í miðborg sem leiddu til þess að gjaldsvæði voru stækkuð, gjaldskrár voru hækkaðar og gjaldskyldutími lengdur. Hefur gjaldskyldan orðið að íþyngjandi miðborgarskatti sem fælir landsmenn frá því að sækja verslun og þjónustu á þetta öfluga markaðssvæði. Samhliða þarf að endurskoða íbúakortin og innleiða bílastæðakort fyrir atvinnurekendur. Sjálfstæðisflokkurinn hyggst fella brott íþyngjandi kvaðir um fjölda bílastæða við nýbyggingar. Jafnframt þarf að falla frá tuttuguföldun gatnagerðargjalda á bílakjallara og skapa hvata fyrir uppbyggingaraðila að koma bílastæðum fyrir neðanjarðar. Bætt skipulag greiði fyrir umferð Ferðatími fólks á höfuðborgarsvæðinu getur lengst um 30 mínútur á morgnana á helstu álagspunktum þegar framhalds- og háskólar hefjast aftur á haustin. Sjálfstæðisflokkurinn vill hefja samtal við atvinnulíf, stofnanir og menntastofnanir um breytilegt upphaf vinnudags og kennsludags svo ná megi fram betri dreifingu umferðarálags. Jafnframt mætti ná auknu jafnvægi á umferðarstrauma með jafnara borgarskipulagi og fjölgun vinnustaða í austurborginni. Sundabraut og jarðgöng Sjálfstæðisflokkurinn vill hefja uppbyggingu Sundabrautar strax. Það er þjóðhagslega arðbær samgönguframkvæmd og mikilvæg tenging fyrir fjölmörg hverfi í Reykjavík. Brautin mun efla Reykjavík sem höfuðborg allra landsmanna, styrkja samkeppnishæfni borgarinnar og stöðu almannavarna. Útfærslu þarf að vinna í sátt við íbúa og atvinnulíf en Sjálfstæðisflokkurinn aðhyllist gangalausnir. Sjálfstæðisflokkurinn vill jafnframt að nýjum stofnæðum höfuðborgarsvæðisins verði komið fyrir neðanjarðar í jarðgöngum í einkaframkvæmd þar sem horft verði til reynslunnar af Hvalfjarðargöngum. Það mun létta umtalsvert á umferð ofanjarðar, auka lífsgæði og draga úr raski ofanjarðar á framkvæmdatíma. Með jarðgöngum næst betri nýting landrýmis, aukin umferðarrýmd, meira næði og aukin loftgæði. Við erum klár! Árið 2019 var áætlað að tæplega níu milljónum klukkustunda yrði sóað í umferðartafir innan höfuðborgarinnar árlega. Umferðartafir á annatíma höfðu aukist um nærri 50% á örfáum árum. Þetta sýndu niðurstöður umferðarlíkans VSÓ og mælingar Vegagerðarinnar. Þessar tafir samsvöruðu um 40 klukkustundum – eða heilli vinnuviku – á hvern höfuðborgarbúa árlega. Síðastliðin ár hefur ástandið einungis versnað. Það er löngu tímabært að ráðast í stórfelldar samgöngubætur í höfuðborginni. Við erum klár í verkefnið en til þess þurfum við ykkar stuðning. Án kraftmikils Sjálfstæðisflokks verða engar breytingar. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Telja stjórnina hafa staðið sig illa í málefnum útlendinga Ég er brjáluð út í Lamar Odom Fundu metmagn af marijúana fyrir slysni Allt uppi á borðum í ársreikningum Rýfur þögnina um dauða eiginkonu sinnar Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Kennitölulausu Reykvíkingarnir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hersveitir áfram þar til „alvöru samkomulag“ næst Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Kostnaður langt umfram áætlun Íhugar að „refsa“ ákveðnum NATO-ríkjum Mest lesið Í gær Í vikunni Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Ljá máls á þjóðarsátt Kólnar með slydduéljum seinnipartinn Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Nýjast á mbl.is » Telja stjórnina hafa staðið sig illa í málefnum útlendinga Ég er brjáluð út í Lamar Odom Fundu metmagn af marijúana fyrir slysni Allt uppi á borðum í ársreikningum Rýfur þögnina um dauða eiginkonu sinnar Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Kennitölulausu Reykvíkingarnir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heuermann játaði að hafa myrt konurnar Um 15 lönd taka þátt í opnun Hormússunds Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Íhugar að „refsa“ ákveðnum NATO-ríkjum Mest lesið Í gær Í vikunni Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Ljá máls á þjóðarsátt Kólnar með slydduéljum seinnipartinn Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir

Share this article