Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Meta horfurnar á Austurlandi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.4.2026 | 10:45 Meta horfurnar á Austurlandi Frá Egilsstöðum. mbl.is/Sigurður Bogi Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Viðskiptaráð boðar til fundar á Hótel Héraði á Egilsstöðum í dag þar sem rætt verður um stöðu og horfur í atvinnulífi Austurlands. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, segir fundinn vera hluta af viðburðadagskrá þar sem VÍ beinir kastljósinu að tækifærum og áskorunum á landsbyggðinni. Fundurinn í dag hefst með stuttri kynningu Ragnars þar sem hann kortleggur stöðuna í fjórðungnum, hvað megi gera til að tryggja áframhaldandi blómlegt atvinnulíf og hvar steinar hafa verið lagðir í götu þess að óþörfu. Ragnar segir atvinnulíf Austfjarða óvenju þróttmikið. „Hlutdeild fjórðungsins í vöruútflutningi Íslands er rúmlega 22% en þar búa þó ekki nema rétt tæplega 3% landsmanna,“ útskýrir hann en þessi útflutningur er borinn uppi af álframleiðslu, fiskeldi og sjávarútvegi. Gjöld, orka og ETS Spurður hvað mætti gera til að létta undir með Austfirðingum nefnir Ragnar fyrst af öllu bættar samgöngur til að greiða aðgengi að mörkuðum, en einnig verði að gæta að orkuframboði, og að auki hafi sértækir skattar bitnað hlutfallslega þungt á þessum landshluta: „Hækkandi olíuverð er áhyggjuefni og einnig gæti fyrirhugað afnám fríkvóta áls innan ETS-kerfisins haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði álveranna,“ segir hann. „Við sáum að breytingar á veiðigjöldum lögðust sérstaklega þungt á uppsjávarútgerðir, en fyrirtæki á Austurlandi og í Vestmannaeyjum eru leiðandi í veiðum og vinnslu á uppsjávartegundum og kom hækkun gjaldanna einna verst niður á þessum svæðum.“ Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs. Fiskeldi hefur líka verið í örum vexti fyrir austan en þar segir Ragnar að stjórnvöld hafi verið nokkuð kræf í gjaldtökunni. „Það þarf að gefa þessum iðnaði rými til að vaxa og fjárfesta svo hann geti náð þeirri framleiðslugetu sem firðirnir leyfa, en á Íslandi voru auðlindagjöld lögð á þessa grein miklu fyrr en t.d. í Noregi.“ Þrátt fyrir ýmsar áskoranir sýnist Ragnari að framtíðarhorfur Austurlands séu góðar til skemmri og lengri tíma. Hann nefnir að uppbygging fiskeldis sé enn í fullum gangi og útlit fyrir góðan loðnukvóta á næstu árum. „Ferðaþjónustan varð fyrir skakkaföllum vegna ákvörðunar stjórnvalda um að hækka innviðagjöld á skemmtiferðaskip. Einnig var fyrirhugað að afnema tollfrelsi skemmtiferðaskipa sem varð þó ekki að veruleika. Þessar breytingar hafa haft neikvæð áhrif á framtíðarhorfurnar hjá þeim höfnum fyrir austan sem þjónusta skemmtiferðaskip, og mikilvægt að skilja að rekstur þessara skipa er skipulagður mörg ár fram í tímann svo að allar breytingar af þessum toga þarf að gera með sem lengstum fyrirvara,“ segir Ragnar. „Gjöldin voru lækkuð frá því sem upphaflega stóð til og afnám tollfrelsisins fór ekki í gegn, en samt varð þetta til þess að skaða orðspor Íslands sem áfangastaðar fyrir skemmtiferðaskip.“ En hvar gætu næstu stóru tækifæri Austfjarða leynst? Ragnar segir að fjórðungurinn ætti að byggja á þeim trausta grunni sem fyrir er í fjórðungnum, en upp úr þeim jarðvegi geti sprottið nýsköpun og tækifæri til að byggja upp nýja atvinnuvegi. Þá nefnir Ragnar einnig að skoða þurfi tækifæri sem felast í rannsóknum og vinnslu olíu á Drekasvæðinu og lykilhlutverk Austurlands í því samhengi. „Stjórnvöld verða að vinda sér í að bjóða aftur út sérleyfin á Drekasvæðinu, en frumkvöðlar hafa sýnt því áhuga að hefja þar leit að nýju og leitin væri ríkinu alveg að kostnaðarlausu,“ segir Ragnar. „Ef tekst að finna og nýta olíulindir þá yrðu áhrifin mjög jákvæð fyrir allt íslenska hagkerfið og þá Austurland og Norðausturland alveg sérstaklega.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Greinir frá krabbameini móður sinnar Meta horfurnar á Austurlandi Boðuðu verkfalli farmanna aflýst Netanjahú: Árásirnar munu halda áfram Hefur aðallega áhyggjur af Rússum Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Kennitölulausu Reykvíkingarnir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þjóðarsorg í Líbanon: Leiðtogar fordæma árásir Fengu 155 tonn í róðri um páskana Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Um 15 lönd taka þátt í opnun Hormússunds Mest lesið Í gær Í vikunni Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Ljá máls á þjóðarsátt Kólnar með slydduéljum seinnipartinn Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Nýjast á mbl.is » Greinir frá krabbameini móður sinnar Meta horfurnar á Austurlandi Boðuðu verkfalli farmanna aflýst Netanjahú: Árásirnar munu halda áfram Hefur aðallega áhyggjur af Rússum Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Kennitölulausu Reykvíkingarnir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Húrra lokar Leiðtogar fagna: „Skref til baka frá brúninni“ Netanjahú: Árásirnar munu halda áfram Um 15 lönd taka þátt í opnun Hormússunds Mest lesið Í gær Í vikunni Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Ljá máls á þjóðarsátt Kólnar með slydduéljum seinnipartinn Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir

Share this article