Innlent | Morgunblaðið | 3.5.2026 | 8:00 Stutt í framkvæmdir en lengra í beint flug Egilsstaðaflugvöllur Austfirðingar vilja fá meiri umferð um völlinn og möguleika á beinu flugi frá útlöndum. Morgunblaðið/Skúli Björn Gunnarsson Skúli Björn Gunnarsson [email protected] Setja bókamerki „Egilsstaðaflugvöllur er mikilvægur varaflugvöllur og á samgönguáætlun eru 3,9 milljarðar til að flýta nauðsynlegum og löngu tímabærum framkvæmdum,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra þegar hún opnaði ráðstefnu um Austurland sem alþjóðlega fluggátt á fimmtudag. Í erindum framsögumanna kom fram að sóknarfæri tengd Egilsstaðaflugvelli væru mörg en að tíma tæki að byggja upp nýjan áfangastað. Margir þyrftu að koma að málum til að skapa eftirspurn og tryggja innviði áður en reglulegt millilandaflug væri raunhæft. Austurbrú og Samtök sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) stóðu fyrir ráðstefnunni, sem haldin var í Valaskjálf á Egilsstöðum, til að rýna í stöðuna varðandi flugvöllinn. Austfirðingar hafa lengi barist fyrir því að fá meiri umferð um flugvöllinn á Egilsstöðum. Gerðar hafa verið nokkrar tilraunir síðustu tvo áratugina til að koma á millilandaflugi en þær hafa allar runnið út í sandinn. Á síðasta ári fóru um 90.000 farþegar um flugvöllinn í innanlandsflugi og nokkrar leiguflugferðir voru til útlanda. En flugvöllurinn sannaði mikilvægi sitt sem varaflugvöllur síðast í mars þegar óveður í Keflavík leiddi til þess að beina þurfti fjölda flugvéla til Egilsstaða og Akureyrar. Miklar framkvæmdir fram undan Fólk úr ferðaþjónustu og fleiri atvinnugreinum var mætt til að hlýða á erindi og í salnum voru einnig margir frambjóðendur til sveitarstjórna og nokkrir þingmenn. Atvinnuvegaráðherra sagði í opnunarávarpi sínu að Austurland ætti mikið inni og vísaði til þess hverju aukið millilandaflug um Akureyrarflugvöll hefði skilað ferðaþjónustu á Norðurlandi. Ráðherra minnti á að ríkisstjórnin hefði bætt 100 m.kr. í flugþróunarsjóð á þessu ári sem fara eingöngu í verkefni tengd Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli. Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Isavia, ræddi um hlutverk Egilsstaðaflugvallar og mikilvægi hans. Aðflugsskilyrði eru góð. Flugbrautin er 2.000 metra löng og ræður vel við fragtflug auk þess sem lóðir eru tiltækar fyrir flugtengda starfsemi. Sigrún sagði flugstöðina rúmgóða en nýjar alþjóðlegar kröfur þýddu að samt þyrfti að gera breytingar á henni á næstunni. Hún sagðist vonast til að á þessu ári yrði hægt að hefja framkvæmdir við uppsetningu aðflugsljósa til norðurs og gerð 1.000 metra samsíða akbrautar fyrir flugvélar til að styrkja völlinn sem varaflugvöll. Isavia hefur efnt til markaðskönnunar meðal verktaka vegna jarðvinnu við akbrautina til að flýta fyrir ferlinu þegar Alþingi hefur afgreitt samgönguáætlun. Þróunarsjóður og hvatakerfi Bæði Sigrún og Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, forstöðumaður útflutnings og fjárfestinga hjá Íslandsstofu, komu inn á kynningarverkefnið Nature Direct. Markmið þess er að laða flugfélög að völlunum á Akureyri og Egilsstöðum og stuðla að fjölgun ferðamanna á norðausturhorninu, sérstaklega utan háannar. Bæði Austurbrú og Markaðsstofa Norðurlands koma að verkefninu með Isavia og Íslandsstofu en það er stutt af flugþróunarsjóði. Flugfélög geta fengið þriggja ára stuðning til leiðaþróunar og markaðssetningar ásamt því sem Isavia veitir afslátt af lendingar- og farþegagjöldum. Í máli Sigríðar kom fram að starfsemi alþjóðaflugvallar geti haft keðjuverkandi áhrif á margvíslega atvinnustarfsemi, ekki bara ferðaþjónustu. Allt snúist þetta samt um samstarf bæði innan fjórðungs og við stoðkerfið og stjórnvöld. Beint tengiflug til Keflavíkur Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair lagði áherslu á beint tengiflug til Keflavíkur í sínu erindi. Hann benti á að eftir sameiningu innanlands- og millilandaflugs Icelandair væru Egilsstaðir sýnilegir í leiðakerfi Icelandair eins og hver annar áfangastaður. Á síðasta ári bókuðu 1.900 farþegar frá útlöndum sig beint til Egilsstaða og 6.700 til Akureyrar. Bogi sagði að tilraunin sem Icelandair gerði með tengiflugi til Akureyrar haustið 2023 hefði gefið góða raun en hefði að ósekju mætt andstöðu og verið talin vinna gegn beinu millilandaflugi. Að sögn Boga hvílir framtíðarsýn Icelandair á því að ferðamenn dreifist betur um Ísland. Leiðakerfi félagsins stækkar enn frekar árið 2029 þegar félagið fær nýjar vélar. Hann sagði Icelandair hafa skoðað fragtflug frá Egilsstöðum en skortur á innviðum og magnið sem er til útflutnings réttlæti ekki fjárfestingar á því sviði að svo stöddu. Gullni hringurinn nær ekki austur Erindi Baldurs Arnar Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Svartatinds sem rekur LAVA og Fontana, bar yfirskriftina Gullni hringurinn nær ekki hingað. Hann benti á að Austurland væri ekki freistandi fyrir fjárfesta í ferðaþjónustu. Til þess væri árstíðasveiflan enn of mikil og dvalartími of stuttur. Baldur sagði megináskorun Austfirðinga að fjölga seglum og auka eftirspurn til að undirbyggja beint flug. Tækifærin væru til staðar en mikilvægast að fara í verkefni sem kosta lítið en skila miklu. Baldur Örn tók markvissa uppbyggingu Norðmanna á norðurljósaferðum til Tromsö sem fyrirmyndardæmi og einnig það sem Finnar eru að gera í nærandi ferðaþjónustu. Berglind Harpa Svavarsdóttir, formaður stjórnar Austurbrúar og SSA, lokaði ráðstefnunni með þeim orðum að hún vonaði að ráðstefnan ýtti á uppbyggingu á Egilsstaðaflugvelli til að stuðla að flugöryggi á Íslandi og í framhaldinu beinu millilandaflugi. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ætlar að fjarlægja fleiri hermenn frá Þýskalandi Stutt í framkvæmdir en lengra í beint flug „Það er alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi“ Forðaðist Roy Hodgson í leikmannagöngunum Tvær milljónir sáu sannsöglar mjaðmir Shakiru Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Bjartsýnin eykst hjá vallarstjórum Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Mokuðu út hamborgurum í New York Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Þrír fengu tæpa hálfa milljón Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Eins konar æði gripið Íslendinga Endurbætur á skólahúsnæði á oddinum Vinstrimenn setja spurningamerki við ESB Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Maðurinn fannst látinn við Háafoss Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Ætlar að fjarlægja fleiri hermenn frá Þýskalandi Stutt í framkvæmdir en lengra í beint flug „Það er alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi“ Forðaðist Roy Hodgson í leikmannagöngunum Tvær milljónir sáu sannsöglar mjaðmir Shakiru Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks Stjórnmálamenn vildu Spaugstofuna út Vinstrimenn setja spurningamerki við ESB 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Mokuðu út hamborgurum í New York Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Þrír fengu tæpa hálfa milljón Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Eins konar æði gripið Íslendinga Endurbætur á skólahúsnæði á oddinum Vinstrimenn setja spurningamerki við ESB Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Maðurinn fannst látinn við Háafoss Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás