Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Smáríkið áfrýjar dómnum

Read Full Article →

Smáríkið hefur þegar áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjaness sem sakfelldi í gær Vilhjálm Forberg Ólafsson, forsvarsmann áfengisnetverslunarinnar fyrir ólög­mæta smásölu áfengis eftir að hafa selt eina þriggja lítra belju af hvít­víni í maí 2025. „Smáríkið telur dóminn efnislega rangan. Mikilvægt er að taka málið fyrir á æðri dómstigum. Dómur héraðsdóms í gær er ekki til þess fallinn að skýra viðvarandi óvissu sem ríkir í áfengislögum,“ segir í yfirlýsingu Smáríkisins, sem Vilhjálmur skrifar undir. Sjá einnig Sak­felldur fyrir sölu á einni vín­belju í Smáríkinu Smáríkið segir að starfsemi félagsins sé í fullu samræmi við gildandi lög og í samræmi við þær reglur sem gilda um sölu áfengis innan EES-svæðisins. „Þegar eru starfandi fjöldi slíkra fyrirtækja og í tilviki Smáríkisins hafa tugir þúsunda Íslendinga kosið að túlka núverandi löggjöf með sambærilegum hætti. Það sama má segja um aðrar netverslanir.“ Í yfirlýsingunni er bent á að fyrir liggi að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hafi óskað eftir nánari svörum frá íslenska ríkinu um fyrirkomulag áfengissölu hér á landi. Þá hafi íslenska ríkið nú þegar heimilað sölu á áfengi áframleiðslustað. Auk þess hafi áfengissala í fríhöfninni, stærstu vínbúð Íslands, verið gefin frjáls. Þá liggi fyrir Alþingi frumvarp sem er til þess fallið að skýra betur löggjöf um sölu áfengis í gegnum netverslanir. „Sem fyrr segir, telja viðskiptavinir Smáríkisins fleiri tugum þúsunda. Einstaklingar og forsvarsmenn fyrirtækja kjósa á hverjum degi með hvers konar hætti þeir velja og versla sínar neysluvörur, þar með talið áfengi, sem er lögleg neysluvara. Fyrir liggur að íslenskir neytendur hafa frelsi, í gegnum EES-samninginn, til að versla áfengi í gegnum netverslanir.“

Share this article