Snjóflóðavarnargarður ofan Patreksfjarðar kom í veg fyrir að snjóflóð félli á hús neðan garðsins. Snjóflóðið féll 26. mars og er það stærsta sem fallið hefur á þessum slóðum allt frá árinu 1958 eða í 68 ár. Frá þessu er greint í yfirliti á vef Veðurstofunnar um snjóflóð á Vestfjörðum og Mið-Norðurlandi í mars. Miklar snjóflóðahrinur voru 15.–19. og 23.–27. mars. Nokkuð stórt snjóflóð féll úr hlíðinni ofan Urðargötu á Patreksfirði 26. mars og lenti af krafti á þvergarði ofan byggðarinnar. Þarna féll snjóflóð 1948 sem olli töluverðu tjóni. Varnargarðurinn virðist hafa komið í veg fyrir að flóðið í síðasta mánuði félli á hús neðan garðsins. „Nýir varnargarðar verja nú bæði þessi hverfi, Mýrar og Urðir, en svæðið á milli þeirra er þekktur snjóflóðafarvegur og með virkustu farvegum ofan byggðar á landinu. Rýming húsnæðis neðan Urða á Patreksfirði var nokkuð algeng áður fyrr og íbúar voru orðnir vanir ónæði sem þeim fylgir,“ segir í yfirlitinu. Flóðið í síðasta mánuði náði um 200 metra inn eftir þvergarði sem var reistur fyrir ofan Urðir og var í allt um 400 metra langt. Það rann líka meðfram leiðigarði við Urðir og um 30 metra niður fyrir veginn sem var þá búið að loka. All mörg snjóflóð féllu í grennd við byggð á norðanverðum Tröllaskaga og á Vestfjörðum. Á nokkrum stöðum féllu snjóflóð á varnargarða og leiðigarða eða hægðist á þeim þar sem keilum hefur verið komið upp til að draga úr hraða snjóflóða og hversu langt þau komast.