Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þrjú snjóflóð vestur á fjörðum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.3.2026 | 17:45 Þrjú snjóflóð vestur á fjörðum Þrjú snjóflóð féllu ofan byggðar við Flateyri í dag og verður Flateyrarvegi lokað í síðasta lagi klukkan 20 í kvöld. Mynd úr safni. mbl.is/Hallur Már Setja bókamerki Tengdar fréttir Veður Aukin snjóflóðahætta á Flateyrarvegi Hættustigi lýst yfir í Súðavíkurhlíð Líklegt að færð spillist á fjallvegum Vegir á óvissustigi vegna snjóflóðahættu Norðanhríðaveður og gular viðvaranir » Fleiri tengdar fréttir „Við sáum þessi flóð á ratsjá hjá okkur sem horfir upp í hlíðina og nemur snjóflóð og hún hefur numið þrjú snjóflóð fyrir ofan byggð í dag,“ segir Heiður Þórisdóttir, sérfræðingur á snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is um þrjú snjóflóð sem féllu ofan Flateyrar í dag. „Eitt kom úr Innra-Bæjargili og tvö úr Skollahvilft og voru tvö flóðanna miðlungsstór, náðu að varnargarðinum, en það þriðja lítið,“ segir Heiður að auki. Hún segir Flateyrarveg enn opinn en viðvörun sé þar í gildi vegna snjóflóðahættu og verði veginum lokað í síðasta lagi klukkan 20 í kvöld þar sem spáð sé verra veðri í nótt og Vegagerðin sé ekki með þjónustu á svæðinu þá. Veður nái hámarki seint í kvöld eða nótt Á vef Veðurstofunnar, gottvedur.is , segir að allhvöss norðlæg átt með snjókomu og skafrenningi hafi verið ríkjandi á Vestfjörðum í dag og hafi þó nokkur snjóflóð fallið á fjörðunum norðanverðum, ekki sé talin hætta í byggð sem stendur en snjóflóðavakt Veðurstofunnar fylgist náið með aðstæðum. Segir þar enn fremur: Mörg snjóflóð hafa fallið á veginn um Súðavíkurhlíð og hefur vegurinn verið lokaður síðan fyrir hádegi. Þá féll snjóflóð á veg í Súgandafirði, utan við Suðureyri. Líklegt er að fleiri snjóflóð hafi fallið á svæðinu en þar sem skyggni er takmarkað koma þau væntanlega ekki í ljós fyrr en birtir á föstudag. Veðurspár gera ráð fyrir að veðrið nái hámarki seint í kvöld eða nótt. Þá má búast við að snjóflóðahætta aukist á veginum um Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals. Ekki er talin hætta í byggð sem stendur, en snjóflóðavaktin fylgist áfram með aðstæðum og er í góðu sambandi við lögreglu á svæðinu og Vegagerðina. Tengdar fréttir Veður Aukin snjóflóðahætta á Flateyrarvegi Hættustigi lýst yfir í Súðavíkurhlíð Líklegt að færð spillist á fjallvegum Vegir á óvissustigi vegna snjóflóðahættu Norðanhríðaveður og gular viðvaranir » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Viðskiptaráð kynni sér heilbrigðisþjónustuna Þrjú snjóflóð vestur á fjörðum Arsenal blandar sér í baráttuna við City Strong earthquake in Torfajökull glacier Ferðasýning Heklu haldin á laugardag Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB 110 ára barátta fyrir jöfnuði og frelsi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Borga ekki umferðarsektir Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Síminn að kaupa miðla Sýnar Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Viðskiptaráð kynni sér heilbrigðisþjónustuna Þrjú snjóflóð vestur á fjörðum Arsenal blandar sér í baráttuna við City Strong earthquake in Torfajökull glacier Ferðasýning Heklu haldin á laugardag Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB 110 ára barátta fyrir jöfnuði og frelsi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Ferðamenn lentu á kafi í vatni Vara við árásum á hafnir við Hormússund „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Síminn að kaupa miðla Sýnar Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir

Share this article