Innlent | mbl | 12.3.2026 | 17:45 | Uppfært 18:53 Þrjú snjóflóð vestur á fjörðum: Veginum lokað Þrjú snjóflóð féllu ofan byggðar við Flateyri í dag og verður Flateyrarvegi lokað í síðasta lagi klukkan 20 í kvöld. Mynd úr safni. mbl.is/Hallur Már Setja bókamerki Tengdar fréttir Veður Hvasst og blint: Færð getur spillst Aukin snjóflóðahætta á Flateyrarvegi Hættustigi lýst yfir í Súðavíkurhlíð Líklegt að færð spillist á fjallvegum Vegir á óvissustigi vegna snjóflóðahættu » Fleiri tengdar fréttir „Við sáum þessi flóð á ratsjá hjá okkur sem horfir upp í hlíðina og nemur snjóflóð og hún hefur numið þrjú snjóflóð fyrir ofan byggð í dag,“ segir Heiður Þórisdóttir, sérfræðingur á snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is um þrjú snjóflóð sem féllu ofan Flateyrar í dag. „Eitt kom úr Innra-Bæjargili og tvö úr Skollahvilft og voru tvö flóðanna miðlungsstór, náðu að varnargarðinum, en það þriðja lítið,“ segir Heiður að auki. Hún segir Flateyrarveg enn opinn en viðvörun sé þar í gildi vegna snjóflóðahættu og verði veginum lokað í síðasta lagi klukkan 20 í kvöld þar sem spáð sé verra veðri í nótt og Vegagerðin sé ekki með þjónustu á svæðinu þá. Veður nái hámarki seint í kvöld eða nótt Á vef Veðurstofunnar, gottvedur.is , segir að allhvöss norðlæg átt með snjókomu og skafrenningi hafi verið ríkjandi á Vestfjörðum í dag og hafi þó nokkur snjóflóð fallið á fjörðunum norðanverðum, ekki sé talin hætta í byggð sem stendur en snjóflóðavakt Veðurstofunnar fylgist náið með aðstæðum. Segir þar enn fremur: Mörg snjóflóð hafa fallið á veginn um Súðavíkurhlíð og hefur vegurinn verið lokaður síðan fyrir hádegi. Þá féll snjóflóð á veg í Súgandafirði, utan við Suðureyri. Líklegt er að fleiri snjóflóð hafi fallið á svæðinu en þar sem skyggni er takmarkað koma þau væntanlega ekki í ljós fyrr en birtir á föstudag. Veðurspár gera ráð fyrir að veðrið nái hámarki seint í kvöld eða nótt. Þá má búast við að snjóflóðahætta aukist á veginum um Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals. Ekki er talin hætta í byggð sem stendur, en snjóflóðavaktin fylgist áfram með aðstæðum og er í góðu sambandi við lögreglu á svæðinu og Vegagerðina. Tengdar fréttir Veður Hvasst og blint: Færð getur spillst Aukin snjóflóðahætta á Flateyrarvegi Hættustigi lýst yfir í Súðavíkurhlíð Líklegt að færð spillist á fjallvegum Vegir á óvissustigi vegna snjóflóðahættu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skemmtilegasta fólk landsins í gleðivímu Þorgerður: Bandaríkin greinilega ekki unnendur ESB Theron segir samstarfið við Baltasar ógleymanlegt Þýski miðjumaðurinn eftirsóttur Hvasst og blint: Færð getur spillst Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Reykjavíkurflugvöllur – starfsleyfi til bráðabirgða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Af hverju var dómurinn ómerktur? „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Mál öryrkjans sem missti húsið tekið fyrir Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Þorkell Jóelsson Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Skemmtilegasta fólk landsins í gleðivímu Þorgerður: Bandaríkin greinilega ekki unnendur ESB Theron segir samstarfið við Baltasar ógleymanlegt Þýski miðjumaðurinn eftirsóttur Hvasst og blint: Færð getur spillst Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Reykjavíkurflugvöllur – starfsleyfi til bráðabirgða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Síminn að kaupa miðla Sýnar Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Borga ekki umferðarsektir Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Mál öryrkjans sem missti húsið tekið fyrir Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Þorkell Jóelsson Lögreglan leitar að 14 ára stelpu