Landspítalinn ætlar að fækka starfsfólki sem er í lágu starfshlutfalli til að mæta aðhaldskröfu stjórnvalda. Markmiðið er að fjölga fólki í hærra starfshlutfalli til að tryggja þjónustu við sjúklinga án þess að auka kostnað. Þetta segir Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráðalyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans. Ragnar Freyr Ingvarsson læknir birti færslu á Facebook í gær þar sem hann furðaði sig á að sér hefði verið sagt upp störfum. Hann hefur starfað sem sérfræðingur í almennum lyflækningum á Landspítalanum í Fossvogi. Undanfarið hefur hann verið í 33% starfshlutfalli. „Skýringin á þessu máli öllu er þessi skýra og ákveðna aðhaldskrafa stjórnvalda á Landspítalann,“ segir Rafn. „Staðreyndin er auðvitað sú að við þurfum að reyna að nýta eins vel og hægt er þau stöðugildi sem við höfum. Það sem við stöndum þá frammi fyrir er að það eru allmargar stöður sem eru mjög litlar, sem ekki eru nýttar.“ Endurskipulagning sem felur í sér fækkun fólks í lægra starfshlutfalli og fjölgun starfsfólks í hærra starfshlutfalli er í undirbúningi á fleiri sviðum. „Það sem við stöndum þá frammi fyrir er að það eru allmargar stöður sem eru mjög litlar, sem ekki eru nýttar. Þær þá í raun og veru blokka stöðuna okkar og við getum þá ekki í raun og veru ráðið inn fólk í stærra hlutfalli sem vildi kannski sinna störfum hjá okkur í stærra hlutfalli. Það er eiginlega kjarni málsins hjá okkur.“ Bráðalyflækninga- og endurhæfingarþjónustan er stærsta deild Landspítalans. Ekki liggur fyrir hve mörgum verður sagt upp í þessari endurskipulagningu eða hve marga stendur til að ráða inn á hærra starfshlutfalli á móti. „Það er þegar búið að draga úr svona stöðugildum og það eru fleiri í bígerð.“ Rafn segir einnig koma til greina að auka starfshlutfall einhverra. „Það er alltaf hægt að hugsa sér að auka stöðuhlutföll þeirra sem eru í starfi hjá okkur og það er undir hverjum og einum komið hvort hann vilji það. Því að við vissulega þurfum á fólki að halda,“ segir Rafn. „Í raun og veru ætti þetta að vera á sléttu eða nokkuð fleiri. En ég þarf að nýta fólkið miklu betur. Það er það sem þetta snýst um. Ég get ekki ráðið auka fólk um leið og ég er að halda stöðum opnum sem ekki eru nýttar. Því ef fólk kemur aftur inn í sitt stöðuhlutfall seinna þá eykst kostnaður. Þannig að þetta er bara bein afleiðing af þessari skýru aðhaldskröfu sem sett er á spítalann.“ Ragnari ekki boðið hærra starfshlutfall Ragnar hefur verið í launalausu leyfi síðustu mánuði og segir það hafa komið honum var sagt upp í gær. Hann er svekktur að ljúka störfum á Landspítalanum á þennan hátt. „Í upphafi samtals raunverulega bjóst ég við því að það væri verið að biðja mig um að koma að vinna,“ segir Ragnar Freyr. „Ástandið hefur jú verið slæmt á spítalanum, sérstaklega á minni deild. En það var aldeilis ekki raunin. Mér var tilkynnt að starfið mitt væri lagt niður og mér því sagt upp störfum.“ Var þér boðið hærra starfshlutfall? „Nei, mér var ekki boðið neinir slíkir valkostir,“ segir Ragnar Freyr. Hann segist ekki hafa heyrt af því að fleiri læknum hafi verið sagt upp nýlega á sömu forsendum. Hann segist ekki átta sig á hvaða sparnaður felist í að reka starfsmann sem er í launalausu leyfi. „Það vekur upp aðrar áleitnar spurningar um hvers vegna ákveðið var að fara í þessa uppsögn.“ Uppfært 11:15: Eftir að fréttin var birt fengust þær upplýsingar frá Landspítalanum að Ragnar Frey standi til boða að koma í 80% til 100% starfshlutfall. Ragnar segist ekki kannast við það. Fyrirsögn var í kjölfarið breytt.