Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hafa ráðið einn erlendan lækni í fullt starf

Read Full Article →

Innlent | mbl | 9.4.2026 | 18:30 Hafa ráðið einn erlendan lækni í fullt starf Rafn gerir ráð fyrir að leitast verið eftir starfskröftum íslenskra lækna. mbl.is/Jón Pétur Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans, telur að hægt verði að ráða lækna í þær 100 prósent stöður sem verða til þegar hlutastöður verða lagðar niður á sviðinu, þrátt fyrir viðvarandi skort á læknum sem sinna almennum lyflækningum. Nú þegar er búið að ráða einn erlendan lækni á sviðið í 100 prósent stöðu en Rafn gerir ráð fyrir að leitast verði eftir starfskröftum íslenskra lækna. Hann segir breytingarnar snúast um að nýta stöðurnar en ekki skipta út einum lækni fyrir annan. Greint var frá því í gær að Ragnari Frey Ingvarssyni lækni hefði verið sagt upp störfum á Landspítalanum þar sem hann hefur verið í hlutastöðu sem sérfræðingur í almennum lyflækningum. Skýringin sem honum var gefin var aðhaldskrafa af hálfu stjórnvalda. Frétt af mbl.is Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Segist ekki hafa boðist meira Þá kom fram í viðtali við Rafn á mbl.is í morgun að verið væri að leggja niður nokkrar hlutastöður til að skapa svigrúm til að ráða lækna í 100 prósent stöður. Það væri hagkvæmara og skilvirkara að vera með einn lækni í 100 prósent stöðu heldur en fjóra í 25 prósent stöðu. Sagði Rafn jafnframt að horft hefði verið til þess hvar sársaukaminnst væri fyrir fólk að missa starfið sitt. Læknum í hlutastöðum hafi verið boðið hærra starfshlutfall, en flestir þeirra eru að byggja sér upp feril utan spítalans. Ragnar greindi hins vegar frá því í færslu á Facebook fyrr í dag að honum hefði ekki boðist hærra starfshlutfall. Frétt af mbl.is Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítala. Ljósmynd/Landspítalinn Krítískur skortur á sumum sviðum Rafn segir ekki skort á læknum í öllum undirgreinum almennra lyflækninga þrátt fyrir að staðan sé vissulega slæm í sumum þeirra. „Það er viðvarandi skortur á nokkrum undirsérgreinum og sumar eru mjög krítískar. Þar sem svo háttar getum við auðvitað ekki gengið hart að fólki,“ segir Rafn í samtali við mbl.is. „En innan þessa ákveðna sviðs er þó talsvert af læknum starfandi,“ bætir hann við. Innan við fimm heil stöðugildi verða til í þessum hagræðingaraðgerðum og bindur Rafn vonir við að hægt verði að manna þær allar. Hann vill þó ekkert fullyrða í þeim efnum. Frétt af mbl.is „Hér er því farið með fleipur“ Spurður hvort spítalinn vilji ekki helst fá íslenskumælandi lækna til starfa svarar Rafn því játandi. Eru íslenskir læknar sem sitja um þessar stöður? „Ég geri ráð fyrir að við munum leita eftir slíkum starfskröftum. Það eru engar kvaðir á það, hvort sá verði að vera íslenskur eða erlendur, það eru bara læknar sem geta unnið með okkur og tekið þátt í uppbyggingu og þjónustu.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Forðastu fasteignasalahálsmálið KA - Valur, staðan er 14:19 Ísland á toppnum með fullt hús Hafa ráðið einn erlendan lækni í fullt starf Boða til blaðamannafundar Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Hraðar á milli staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ Líbanon er óaðskiljanlegur hluti af vopnahléi Bretar fylgdu þremur rússneskum kafbátum eftir Landlæknisembættið vanmetur hjúkrun Mest lesið Í gær Í vikunni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Hér er því farið með fleipur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » Forðastu fasteignasalahálsmálið KA - Valur, staðan er 14:19 Ísland á toppnum með fullt hús Hafa ráðið einn erlendan lækni í fullt starf Boða til blaðamannafundar Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Hraðar á milli staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Holur myndast víða á vegum Bretar fylgdu þremur rússneskum kafbátum eftir Líbanon er óaðskiljanlegur hluti af vopnahléi „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Hér er því farið með fleipur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón

Share this article