Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Læknum verði settar skorður

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 17.5.2026 | 12:30 Læknum verði settar skorður Sjúkingi sinnt samkvæmt þeim línum sem læknir leggur. Landspítalinn/Þorkell Þorkelsson Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Óhjákvæmilegt er að takmarkanir verði settar á hlutastörf lækna á Landspítala samhliða eigin starfsemi. Viðeigandi markmið er að fjölga læknum sem eru í fullu starfi eða háu starfshlutfalli, 80% eða hærra, og draga úr fjölda lækna sem eru í hlutastarfi á sjúkrahúsinu. Þetta segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans í nýjum pisti í Spítalapúlsinum , sem er fréttabréf stofnunarinnar. Áhrif hlutastarfa hafa aukist Í grein sinni segir Runólfur þróun einkarekinnar heilbrigðisþjónustu hafa veruleg áhrif á Landspítala, háskólasjúkrahús þjóðarinnar, einkum þegar kemur að mönnun læknisstarfa. Að 55% sérfræðilækna á sjúkrahúsinu séu í hlutastarfi þykir óvenjuhátt, en flestir lækna starfrækja jafnframt eigin stofu. Hlutastörf hafi ýmsa kosti fyrir starfsfólk en geti ógnað grunnstoðum háskólasjúkrahúsa ef umfangið verður mikið. Eftir að stytting vinnuviku lækna var innleidd á síðasta ári hafi skipulag mönnunar orðið erfiðara og áhrif hlutastarfa meiri en áður. Þótt það hafi sína kosti að læknar skipti störfum sínum milli sjúkrahúss og einkarekstrar fylgja því líka neikvæð áhrif, segir forstjórinn. Þarna komi til áskoranir við að tryggja mönnun og samfellu í þjónustu, verkferla þvert á spítalann, gæðastarf og minni tíma til kennslu og rannsókna. Að læknar séu við störf á tvennum vettvangi sé fátítt í samanburðarlöndum. Um allt þetta gildi líka víðast hvar mjög strangar reglur og því hvernig málum sé háttað hér fylgi hætta á hagsmunaárekstrum. Frétt af mbl.is Uppsögnin ekki í samhengi við fleiri Ómeðvitaðir hvatar „Fjárhagslegir hvatar, sem oft eru ómeðvitaðir, geta haft áhrif á klínískar ákvarðanir, til dæmis þegar starfsmaður á opinberri stofnun vísar sjúklingi til eigin stofu eða nýtir starfsfólk, tæki eða tíma stofnunar í þágu eigin starfsemi,“ segir Runólfur. Til útskýringar nefnir hann að ekki sé óeðlilegt að sjúklingum sé vísað af opinberri stofnun til einkarekinnar þjónustu þar sem starfsmaður stofnunarinnar er við störf. Mestu skipti að rétt sé staðið að því og að um slíkt samstarf sé formleg umgjörð og vel skilgreind verkaskipting. Skipting sé skynsamleg „Með skynsamlegri verkaskiptingu milli Landspítala og annarra opinberra stofnana annars vegar og einkarekinnar þjónustu hins vegar ætti að vera hægt að viðhalda greiðu aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu. Jafnframt er mikilvægt að tryggja ásættanlegt jafnvægi mönnunar milli þjónustueininga þannig að Landspítali geti rækt sitt umfangsmikla hlutverk á sómasamlegan hátt og staðist samanburð við norræn háskólasjúkrahús,“ segir Runólfur í Spítalapúlsinum . Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Man. Utd - Nott. Forest, staðan er 2:1 Læknum verði settar skorður Napoli festir kaup á framherja United Þreifingar hafnar á Akureyri Lítill tími gefist fyrir þreifingar Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Pétur: „Mjög svekktur“ Forsætisráðherra tókst ekki að fella meirihlutann Vann 130 milljónir „Að sjálfsögðu langar mig í stjórn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Lokatölur liggja fyrir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Pétur: „Mjög svekktur“ Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Hjónin komast bæði inn í sveitarstjórn Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð „Nánast erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið“ Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Beint: Lokatölur liggja fyrir Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Beint: Lokatölur liggja fyrir Greiddi sama flugið tvisvar Vann 130 milljónir Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Nýjast á mbl.is » Man. Utd - Nott. Forest, staðan er 2:1 Læknum verði settar skorður Napoli festir kaup á framherja United Þreifingar hafnar á Akureyri Lítill tími gefist fyrir þreifingar Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Það munar hársbreidd“ Vann 130 milljónir Forsætisráðherra tókst ekki að fella meirihlutann Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Lokatölur liggja fyrir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Pétur: „Mjög svekktur“ Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Hjónin komast bæði inn í sveitarstjórn Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð „Nánast erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið“ Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Beint: Lokatölur liggja fyrir Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Beint: Lokatölur liggja fyrir Greiddi sama flugið tvisvar Vann 130 milljónir Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið

Share this article