Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Mosfellsbær rekinn með hálfs milljarðs afgangi Brynjólfur Þór Guðmundsson Mosfellsbær var rekinn með 514 milljóna króna afgangi á síðasta ári. Þetta er niðurstaða ársreiknings sem var lagður fyrir fund bæjarráðs í dag. Rekstrartekjur bæjarins námu 24,0 milljörðum og rekstrargjöld fyrir afskriftir 21,3 milljörðum. Rétt rúmlega helmingur tekna fór í launagreiðslur, 12,3 milljarðar króna. Fjárfest var fyrir 4,3 milljarða króna. Mosfellsbær. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 20 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Færeyjar Færeyjar vilja ganga í EFTA Ný ríkisstjórn í Færeyjum vill sjálfræði í viðskiptasamningum. Meðal annars vill hún kanna möguleikann á að ganga í EFTA og gera eigin fríverslunarsamninga við Evrópusambandsríki. Fyrir 23 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Þjóðin minnist goðsagnarinnar Bó Íslenska þjóðin minnist Björgvins Halldórssonar, eins ástsælasta og afkastamesta tónlistarmanns þjóðarinnar, sem fallinn er frá. FRÉTTAVAKT Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Björgvin Halldórsson er látinn Björgvin Halldórsson tónlistarmaður er látinn. Hann var einn vinsælasti og afkastamesti söngvari þjóðarinnar um árabil. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Einn úrvalsdeildarslagur í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar Dregið var í 16-liða úrslit bikarkeppni karla í fótbolta í dag. Aðeins einn úrvalsdeildarslagur kom upp úr pottinum. Leikirnir verða spilaðir 13. og 14. maí. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Artemis II: Mesta ævintýri sem hægt er að hugsa sér Sævar Helgi Bragason fylgist spenntur með tunglleiðangri geimfaranna fjögurra um borð í Integrity-geimfarinu. Hann segist öfunda þau af ævintýrinu, jafnvel þótt klósettið um borð hafi bilað. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Fylgdust með ferðum rússneskra kafbáta í rúmlega mánuð Rússneskir kafbátar voru vikum saman í breskri efnahagslögsögu, að sögn varnarmálaráðherra Bretlands. Hann segir njósnakafbáta hafa verið stóran hluta tímans yfir sæstrengjum og öðrum mikilvægum innviðum en ekki unnið skemmdir á þeim. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruvá Stærsta snjóflóðið frá 1958 í einum virkasta snjóflóðafarvegi ofan byggðar Fjöldi snjóflóða sem féllu á Vestfjörðum og Mið-Norðurlandi stöðvaðist á varnarmannvirkjum sem reist hafa verið síðustu áratugi. Ofan Patreksfjarðar féll stærsta snjóflóð frá 1958. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Afdrifaríkar kosningar í Ungverjalandi Viktor Orbán hefur stjórnað Ungverjalandi í 16 ár en nú benda kannanir til þess að Fidesz-flokkur hans tapi þingkosningum á sunnudag. Bogi Ágústsson ræddi við Gunnstein Ólafsson í Heimsglugganum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Þrír í fimm ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl Þrír menn sem smygluðu níu lítrum af kókaínbasa voru sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Allir fengu fimm ára fangelsisdóm. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Ríkisstjórn ekki í sjónmáli í Danmörku Viðræður um myndun nýrrar ríkisstjórnar í Danmörku ganga erfiðlega. Þær hafa einkum verið milli flokkanna í Rauðu blokkinni og Moderaterne, en leiðtogi þess flokks vill mynda stjórn yfir miðju. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fækka læknum í lágu starfshlutfalli – Ragnar kannast ekki við boð um að auka við sig Landspítalinn er að ráðast í endurskipulagningu til að mæta aðhaldskröfu. Fækka þarf fólki í lágu starfshlutfalli til að geta ráðið fólk í hærra starfshlutfall, segir framkvæmdastjóri bráðalyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Rio Tinto fær skattana ekki til baka Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu Rio Tinto sem vildi fá felldan úr gildi úrskurð um skattgreiðslur fyrirtækisins. Skatturinn sagði ekki sýnt fram á að frádráttarbærar greiðslur til móðurfélagsins byggðu á armslengdarreglu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Freyr Gígja til dómsmálaráðuneytisins Andri Yrkill Valsson Freyr Gígja Gunnarsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins til eins árs. Hann lætur af störfum á fréttastofu RÚV í dag og hefur störf í ráðuneytinu 13. apríl. Freyr hefur rúmlega tveggja áratuga reynslu úr fjölmiðlum, fyrst á Fréttablaðinu, en svo á Ríkisútvarpinu síðastliðin 12 ár. Síðustu ár hefur hann verið einn umsjónarmanna Spegilsins. Hann hlaut blaðamannaverðlaun í fyrra og var tilnefndur á þessu ári. Freyr er með B.A.-próf í almennri trúarbragðafræði. Freyr Gígja Gunnarsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Byggðu hraðar en íbúum fjölgaði í fyrra Íbúðauppbygging á landinu var meiri en þörf fyrir nýjar íbúðir vegna mannfjölgunar á síðasta ári. Því tókst að minnka íbúðaskuld á höfuðborgarsvæðinu um 500 íbúðir og um 120 íbúðir í nágrenni þess. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Umhleypingasamur mars með veðurviðvörunum flesta daga Mars var úrkomu- og umhleypingasamur og kaldari um land allt en að jafnaði síðustu tíu ár. Úrkoma var meiri en sól skein líka meira bæði í Reykjavík og á Akureyri. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Leiklist Með allt á hreinu verður að leiksýningu: „Þetta er yngsta þjóðsaga okkar Íslendinga“ „Það er svolítið vandmeðfarið hvernig þú ferð að þessu. Sérstaklega þegar unga fólkið kemur og ætlar að krukka eitthvað í þessu,“ segir Katla Njáls sem skrifaði glænýja leikgerð að söngleiknum Með allt á hreinu. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir „Ég tek því mjög alvarlega að skrifa fyrir börn“ Barnabókin VIÐ varpar fram spurningum um hvað „við“ þýðir og hvernig við getum gert betur. Hugmyndin kviknaði þegar höfundarnir fluttust til Íslands og fóru að velta fyrir sér samfélaginu. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Hótar enn meiri árásum ef samningar nást ekki Brynja Dögg Friðriksdóttir Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að bandarískar hersveitir yrðu áfram í Mið-Austurlöndum eða þar til raunverulegt samkomulag hefur náðst. Íranar hafa samþykkt opnun Hormússunds en ætla sér að ráða yfir sundinu. Í færslu á samskiptamiðlinum Truth Social sagði hann að ef samningar næðust ekki þá myndu árásir verða enn meiri en áður. Kröfur Írana voru birtar á persnesku í írönskum ríkisfjölmiðlum og þar kom fram að írönsk stjórnvöld geðu kröfur um að halda áfram auðgun úrans. Þessar upplýsingar komu þó ekki fram í kröfum Írans sem birtar voru af Sameinuðu þjóðunum. Trump hefur sagt að tekið verði á auðgun úrans í samningum. Truth Social / Donald Trump Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Mikilmennin urðu að vera stór í dauðanum líka“ Enn standa nokkur grafhýsi sem stöðutákn mikilmenna síðustu aldar. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Þessi félög um aðild að ESB eru starfandi á Íslandi Eftir því sem fréttastofa kemst næst eru helst tvenn félagasamtök hlynnt aðild að ESB virk á Íslandi og tvenn sem eru andsnúin. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Skúrir víðast hvar og slydda seinnipartinn Rigning setur mark sitt á daginn því útlit er fyrir skúrir alls staðar nema norðaustantil á landinu. Hiti verður yfir frostmarki. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Óskar Hrafn hissa á að vera eftirsóttastur Besta deild karla í fótbolta hefst á föstudag. spá leikmanna, þjálfara og forráðamanna félaga hefur verið birt og er ríkjandi meisturum spáð efsta sæti. Óskar Hrafn Þorvaldsson reyndist eftirsóttasti þjálfarinn en sjálfur var hann hissa á valinu. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Utanríkisráðherra deildi mikilvægum upplýsingum með stjórnvöldum í Rússlandi Ungverski utanríkisráðherrann Péter Szijjártó lak trúnaðarupplýsingum til utanríkisráðherra Rússlands varðandi aðildarviðræður Úkraínu og Evrópusambandsins. Hann bauðst einnig til að deila trúnaðarskjölum með Rússum. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Farþegum Strætó milli Akureyrar og Egilsstaða fjölgaði milli ára Brynja Dögg Friðriksdóttir Strætó á Akureyri. RÚV / Ólöf Rún Erlendsdóttir Farþegum á strætóleið 56 á milli Akureyrar og Egilsstaða fjölgaði um 88% á síðasta ári frá árinu áður samkvæmt frétt á Austurfrétt.is. 1.929 farþegar ferðuðust með strætó þessa leið á síðasta ári, sem er um 900 fleiri farþegar en árið áður. Alls nýttu 7.884 farþegar sér ferðir með strætó um Austurland í fyrra. Farþegum fjölgaði um 5% á leiðinni milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar en fækkun varð á fjölda farþega á öðrum leiðum í landshlutanum. Vegagerðin sér um rekstur strætisvagna á landsbyggðinni. Þrátt fyrir tilraunir til að fjölga farþegum hefur þeim víðast hvar haldið áfram að fækka ár frá ári. 9. apríl 2026 kl. 3:25ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Hezbollah hefnir fyrir árásirnar á Líbanon Hezbollah-samtökin gerðu gagnárásir á Norður-Ísrael í nótt eftir miklar árásir Ísraelshers í Líbanon í gær. Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna segir árásirnar í Líbanon hræðilegar. 9. apríl 2026 kl. 1:39ERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Opnar og hreinskilnar umræður Rutte og Trumps Mark Rutte og Donald Trump ræddu málefni Atlantshafsbandalagsins á fundi sínum í Hvíta húsinu í kvöld. Rutte sagði fundinn hafa verið góðan en Bandaríkjaforseti væri augljóslega vonsvikinn með margar bandalagsþjóðir í NATO. 9. apríl 2026 kl. 0:34ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Macron vill að vopnahléið nái líka til Líbanon Frakklandsforseti vonast til þess að vopnahléið verði virt af öllum þjóðum sem hlut eiga að máli. Ísraelar gerðu miklar árásir á Líbanon í gær. 8. apríl 2026 kl. 23:19INNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Krían komin til landsins furðu snemma Krían er komin til landsins og er óvenju snemma á ferðinni í ár, raunar 11 dögum á undan áætlun. 8. apríl 2026 kl. 22:13INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vatn hefur flætt yfir vegi í miklum leysingum Töluverð hlýindi og leysingar hafa verið á landinu í dag og gær. Vatn hefur flætt yfir vegi á Norðurlandi og holur myndast í slitlagi. Grafið hefur úr vegköntum og sums staðar hefur þurft