Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rafmagn komið á Mosfellsbæ

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Raf­magn komið á Mos­fells­bæ Markús Þ. Þórhallsson Mosfellsbær að sumri. Rafmagnslaust var þar um nokkra hríð í kvöld. RÚV / Ragnar Visage Rafmagn er komið á gervallan Mosfellsbæ eftir bilun sem varði frá því á níunda tímanum í kvöld. Bilunin varð í aðveitustöð sem tengir hluta bæjarins sem hafði áhrif á hitaveituna. Í tilkynningu á vef Veitna segir að heitavatnsdælur komi smám saman inn og að eina til tvær klukkustundir taki fyrir þrýsting að byggjast upp að nýju á Kjalarnesi. Fyrir 43 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti KR-ingar svör­uðu Stjörn­unni með sigri Jóhann Páll Ástvaldsson Linards treður. RÚV / Mummi Lú KR jafnaði metin í einvígi sínu gegn Stjörnunni í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta eftir 91-82 sigur. KR-ingar byrjuðu af miklum krafti og leiddu 20-14 eftir fyrsta leikhluta. Linards Jaunzems var þar fremstur í flokki. Hann var með 19 stig í hálfleik og KR leiddi 52-43. Stjarnan jafnaði metin í fyrsta sinn í 70-70 þegar lítið var eftir af þriðja leikhluta. Þeir jöfnuðu svo metin aftur í 80-80 skömmu síðar. Undir lokin leiddi KR með fimm stigum 87-82. Að lokum sigldi liðið sigrinum heim. Linards var með 31 stig fyrir KR og Stjörnumegin var Pablo Bartone stigahæstur með 19 stig. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson bætti við 22 stigum. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Körfubolti Grind­vík­ing­ar svör­uðu fyrir sig Jóhann Páll Ástvaldsson DeAndre Kane. Mummi Lú Grindavík jafnaði metin í einvígi sínu gegn Njarðvík í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta. Staðan er nú 1-1 eftir 84-86 sigur þeirra gulklæddu. Njarðvík var 49-44 yfir í hálfleik en Grindavík átti sterkan þriðja leikhluta sem vannst 18-24. Að lokum sigruðu Grindvíkingar með tveimur. Dwayne Lautier-Ogunleye var stigahæstur hjá Njarðvíkingum með 30 stig og fimm fráköst. Jordan Semple var stigahæstur Grindvíkinga með 22 stig. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Eld­ingu sló niður í Búr­fells­línu Eldingaveður á Suðurlandinu hefur valdið rafmagnsleysi víða. Öryggisstjóri Landsnets segir unnið að því að koma rafmagni aftur á og að ekki sé vitað til þess að bilun hafi orðið. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Vals­menn náðu þungu fyrsta höggi gegn KA Jóhann Páll Ástvaldsson Allan Norðberg. Rúv / Mummi Lú Valur og KA mættust í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaviðureign Íslandsmóts karla í handbolta í kvöld. Valur vann stórsigur, 39-21. Leikurinn var nokkuð jafn fyrstu mínúturnar en Valsmenn slitu sig alveg frá KA um miðjan fyrri hálfleik. Heimamenn leiddu 17-9 í hálfleik. Gunnar Róbertsson var markahæstur Valsara með átta mörk og Arnór Snær Óskarsson fylgdi eftir með sjö. Jens Bragi Bergþórsson fór fyrir KA mönnum með fimm mörk. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Tíu ára frum­kvöð­ull þrí­vídd­ar­prent­ar hólka undir gjafir Kári HallTíu ára strákur í Kópavogi safnaði sér sjálfur fyrir þrívíddarprentara og hefur nú varla undan við afgreiða pantanir á hólkum undir peningagjafir. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Brasilía Lesa til að losna fyrr úr fang­elsi Fangar í Brasilíu geta stytt fangelsisvist sína með því að lesa bækur. Einn þeirra sem nýta sér úrræðið er fyrrverandi forseti landsins sem afplánar dóm fyrir valdaránstilraun. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bretland Hyggj­ast kanna hvort West verði meinað að koma inn í landið Breska ríkisstjórnin hyggst kanna hvort tónlistarmanninum Kanye West verði meinað að koma inn í landið vegna hatursfullra ummæla um gyðinga sem hann hefur látið falla. West á að koma fram á stórri tónlistarhátíð í Lundúnum í júlí. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Ís­lend­ing­ar halda í hefð­irn­ar þrátt fyrir tísku­bylgj­ur Fyrrverandi prófessor í íslenskum fræðum segir Íslendinga almennt halda í hefðirnar þegar kemur að nafngiftum nýbura. Um 250 eiginnöfn hafa bæst við mannanafnaskrá síðustu tvö ár. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Mikill erill hjá björg­un­ar­sveit­um í óveðr­inu Verkefni björgunarsveita í dag hafa verið margvísleg. Fjöldi ökumanna hefur lent í vanda, foktjón hefur orðið víða og björgunarfólk hefur einnig aðstoðað við sjúkraflutninga. Appelsínugular viðvaranir eru enn í gildi um sunnanvert landið. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Blak Tveir odda­leik­ir í und­an­úr­slit­um Jóhann Páll Ástvaldsson HK konur gátu fagnað í dag. Það er oddaleikur fram undan gegn Aftureldingu. Mummi Lú Völsungur og HK knúðu fram oddaleiki í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í blaki með sigrum. Völsungur vann 3-1 sigur gegn KA á Húsavík og HK svaraði fyrir tap í fyrsta leiknum með öruggum 0-3 sigri á Aftureldingu. HK vann settin 25-22, 25-8 og 25-18. KA vann fyrsta settið 25-23 og voru öll næstu sett afar jöfn. Völsungur vann 21-25, 23-25 og 20-25. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Mikill við­bún­að­ur vegna gruns um vél­ar­bil­un í einka­flug­vél Neyðarstigi var lýst yfir og samhæfingarstöð almannavarna virkjuð vegna gruns um vélarbilun í einkaflugvél skömmu eftir flugtak frá Akureyrarflugvelli. Vélinni var lent á fimmta tímanum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Fljúga um­hverf­is tungl­ið – mann­eskj­ur aldrei verið fjær jörðu Geimfarar í Artemis-leiðangrinum fljúga umhverfis tunglið í dag og fara lengra frá jörðu en nokkur maður hefur ferðast áður. Þau verða fyrstu manneskjurnar til að sjá myrku hlið tunglsins með berum augum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar hafna vopna­hlés­sam­komu­lagi við Banda­rík­in og Ísrael Ríkisfjölmiðill Írans segir stjórnvöld hafa hafnað vopnahléssamkomulagi við Bandaríkin og Ísrael. Í svari Írana, sem er í tíu liðum, er lögð áhersla á endanleg lok átakanna. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Viggó færir sig um set til Flens­borg Landsliðsmaðurinn í handbolta Viggó Kristjánsson mun ganga til liðs við þýska liðið Flensburg eftir ár. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Ríkisútvarpið Sam­starf Rásar 2 og Aldrei fór ég suður fram­lengt til fimm ára Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður var haldin um páskana og tókst vel. RÚV var á staðnum og sinnti umfjöllun og útsendingum frá hátíðinni. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bretland Þrýst­ing­ur eykst á skipu­leggj­end­ur Wire­l­ess vegna Kanye West Stórir bakhjarlar hafa dregið til baka stuðning við tónlistarhátíð í Lundúnum sem fer fram í sumar vegna tónlistarmannsins Kanye West sem þar kemur fram. Ýmsir baráttuhópar gegn gyðingahatri hafa lýst undrun á bókuninni. 6. apríl 2026 kl. 12:56ÍÞRÓTTIR Fótbolti Sjáðu öll mörk bik­ars­ins: KR áfram eftir marka­leik Í dag fara fram fimm leikir í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta. KR vann 4-2 sigur gegn Val. ÍA vann Hauka 4-0. Grindavík fór áfram í 16-liða úrslit eftir sigur á Keflavík í vítaspyrnukeppni. HK vann Fjölni 3-4 í miklum markaleik. Grótta vann 1-0 sigur gegn Álftanesi. Bikarkvöld er á dagskrá beint eftir leik KR og Valsmanna. Hér má sjá markasúpuna úr öllum leikjum dagsins. SAMANTEKT 6. apríl 2026 kl. 11:50ÍÞRÓTTIR Handbolti Kvenna­lands­lið­ið farið af stað til Fær­eyja Einar Örn Jónsson Uppfært kl. 13:08 þegar ljóst var að íslenska liðið gæti ferðast. Kvennalandslið Íslands í handbolta mætir Færeyjum í mikilvægum leik í undankeppni EM 2026 á miðvikudag. Erfiðlega gekk þó að komast til Færeyja vegna veðurhamsins sem gengur yfir landið. Íslenska liðið átti að fljúga með Icelandair til Vága í morgun en því flugi var aflýst. HSÍ náði þá að bóka liðið í vél Atlantic Airways sem fór af stað upp úr hádegi eftir talsverða seinkun. Leikurinn á miðvikudag er gríðarlega mikilvægur fyrir íslenska liðið í baráttu við Færeyjar um 2. sæti riðilsins, þar sem Færeyjar og Portúgal eru með 4 stig en Ísland 2. Svartfjallaland er efst með 6 stig. Leikmenn Íslands fagna sigrinum á Svartfjallalandi fyrr í keppninni. RÚV / Mummi Lú 6. apríl 2026 kl. 11:50INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Leita mann­eskju vegna gruns um rán og lík­ams­árás Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Lögregla leitar manneskju vegna gruns um rán og líkamsárás í heimahúsi í Hafnarfirði í gærkvöldi. Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, upplýsingafulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að einn hafi fengið skurð á höfuð. Einhverju hafi verið stolið en rannsókn lögreglu sé á frumstigi. Hafnarfjörður. RÚV / Ragnar Visage 6. apríl 2026 kl. 11:26INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Lilja Al­freðs­dótt­ir tíma­bund­ið starfs­mað­ur þing­flokks Fram­sókn­ar Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins er orðin starfsmaður þingflokksins á Alþingi. Starfið er tímabundið meðan annar starfsmaður er í veikindaleyfi. Lilja segir í samtali við fréttastofu að endurskipulagning flokksins sé í fullum gangi og að verk sé að vinna í þinginu. „Það þarf allar hendur á dekk.“ Hún sé að koma inn sem formaður og aðstoða þingflokkinn. Lilja Alfreðsdóttir er orðin starfsmaður þingflokks Framsóknarflokksins á Alþingi. Starfið er tímabundið. RÚV / Ragnar Visage „Við þurfum að fara af meiri þyngd inn í efnahags- og utanríkismálin.“ Lilja telur reynslu sína sem þingmaður og ráðherra koma að góðum notum. Hún sat á þingi frá 2016 til 2024 og var á þeim tíma ráðherra fjögurra ráðuneyta. 6. apríl 2026 kl. 11:05ERLENDAR FRÉTTIR Sjónvarp Skuggi J.K. Rowl­ing vofir yfir nýjum þáttum um Harry Potter Fjöldi aðdáenda Harry Potter ætlar ekki að horfa á nýja þætti sem byggðir eru á fyrstu bók J.K. Rowling um galdrastrákinn fræga. Skoðanir hennar á trans fólki misbjóða þeim. Íslenskur aðdáandi ætlar að þekja öll Potter-flúrin sín í mótmælaskyni. 6. apríl 2026 kl. 10:39ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Frið­ar­til­lög­ur á borð­inu sem gætu tekið gildi í dag Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Íran eru sögð hafa friðartillögur til skoðunar, sem gætu komið á vopnahléi strax í dag. Sömuleiðis eru drögin sögð kveða á um opnun Hormússunds. 6. apríl 2026 kl. 9:30ÍÞRÓTTIR Fótbolti Í dag: 32-liða úr­slit­um halda áfram með tveim­ur granna­slög­um Í dag halda 32-liða úrslit bikarkeppni karla í fótbolta áfram með fimm leikjum. RÚV sýnir beint frá Suðurnesja- og Reykjavíkursla

Share this article