- What: News report on basketball and handball games in Iceland.
- Impact: Provides updates on team standings and game results.
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 17 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti KR á mikilli siglingu Jóhann Páll Ástvaldsson Þórir Guðmundur Þorbjarnarson. Rúv / Mummi Lú KR hefur nú unnið átta leiki í röð í efstu deild karla í körfubolta. Liðið vann Álftanes 87-80 í kvöld er nú í 6. sæti með 20 stig en Álftanes er í 8. sæti með 14 stig. KR gaf í undir lokin eftir nokkuð jafnan leik. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson fór fyrir KR-ingum með 19 stig, sex fráköst og fjórar stoðsendingar. Þá unnu Valsmenn 17 stiga sigur gegn botnliði ÍA. Valur er með 22 stig í fjórða sæti en nýliðar ÍA verma botnsætið með sex stig.. Fyrir 20 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Sterkur lokakafli hjá FH í fyrsta leik Arons sem þjálfari Jóhann Páll Ástvaldsson Aron í leik með FH á síðasta tímabili. RÚV / Mummi Lú Aron Pálmarsson var á hliðarlínunni í fyrsta leik sínum í þjálfarateymi FH í efstu deild karla í handbolta í kvöld. Liðsmenn FH unnu endurkomusigur gegn Selfoss en liðið vann lokakaflann með fimm mörkum og að lokum þriggja marka sigur, 33-30. Selfyssingar leiddu 27-25 þegar skammt var eftir en þá gáfu FH-ingar í. FH er í öðru sæti deildarinnar en Selfoss í áttunda sæti. Fyrir 28 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Bandaríkin draga úr hömlum á losun gróðurhúsalofttegunda Kvaðir er varða losun gróðurhúsalofttegunda frá bílum í Bandaríkjunum hafa verið felldar niður. Vísindaleg niðurstaða sem var notuð til grundvallar regluverki um losunina hefur verið afturkölluð. Fyrir 54 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Sjóvá skilar ríflega helmingi minni hagnaði Hagnaður tryggingafélagsins Sjóvá af fjárfestingarstarfsemi var töluvert lægri árið 2025 en árið á undan. Forstjóri félagsins segir minni tekjuvöxt skýrast bæði af aukinni samkeppni og minni aukningu í umsvifum viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Landsréttur staðfesti átta ára dóm í metamfetamínmálinu Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir sexmenningum sem ákærð voru fyrir að flytja til landsins 5,8 kíló af metamfetamínkristöllum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Tókust á um einokun áfengissölu Lára G. Sigurðardóttir og Elías Blöndal Guðjónsson hafa skipst á skoðunum um áfengi og lýðheilsu undanfarna daga. Þau voru gestir í Kastljósi í kvöld og ræddu aðgengi að áfengi og áhrif þess á samfélagið. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Samanlagður hagnaður bankanna þriggja nærri 94 milljarðar króna Samanlagður hagnaður bankanna þriggja, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans, var nærri 94 milljarðar króna í fyrra. Fjármálaráðherra vill sjá harðari samkeppni svo eitthvað af hagnaðinum skili sér til neytenda. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Brotnaði hrottalega fyrir 10 mánuðum en skilaði gulli Hin ítalska Federica Brignona vann til gullverðlauna í svigi á Vetrarólympíuleikunum. Hún mölbraut löppina og sleit krossband í apríl 2025 en náði undraverðum bata. Þetta eru hennar fyrstu gullverðlaun á fimmtu Ólympíuleikum hennar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Svíþjóð sér í fyrsta sinn um loftrýmisgæslu á Íslandi Sænski flugherinn sinnir nú í fyrsta sinn loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Markmiðið er að tryggja viðbúnað og eftirlit í íslenskri lofthelgi. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Leikhúsgagnrýni Garðurinn - Paradísarfuglar: Minna á hve mikilvæg heilbrigð tengsl eru öllu lífi Trausti Ólafsson, leikhúsgagnrýnandi Víðsjár á Rás 1, rýnir í sýningu Íslenska dansflokksins Garðinn og dansmyndina Paradísarfugla sem sýnd eru saman á stóra sviðinu í Borgarleikhússinu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Væri búið að loka ef þetta væri ekki bráðamóttaka Ef um væri að ræða einhverja aðra starfsemi, þá væri búið að loka henni segir forstjóri Landspítala um ástandið á bráðamóttöku. Rætt hefur verið um að gera hlé á stórum hluta skurðaðgerða til að búa til legurými. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mýrdalshreppur Berjast við náttúruöflin í Reynisfjöru Landeigendur í Reynisfjöru freista þess að verja viðvörunarskiltin í fjörunni, en vegna landrofs og sjávargangs var byrjað að grafa undan þeim og hætta á að þau hryndu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Leggja til 12,6 milljarða arðgreiðslu Stjórn Íslandsbanka mun leggja til 12,6 milljarða króna arðgreiðslu við aðalfund bankans í mars. Hagnaður af rekstri bankans árið 2025 nam 25,2 milljörðum króna og var arðsemi eiginfjár 11,2 prósent. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Vill sjá NATO 3.0 Evrópa verður að sjá um sig sjálf og Atlantahafsbandalagið að snúa sér að upphaflegum tilgangi segir harðlínumaður og höfundur nýrrar varnarstefnu Bandaríkjanna. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Stúlkan fundin heil á húfi Rebekka Líf Ingadóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir stúlku í kvöld sem er fundin heil á húfi. Því hafa allar persónugreinanlegar upplýsingar verið fjarlægðar úr þessari frétt. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Ljóst hverjum Ísland mætir í Þjóðadeild Í dag var dregið í Þjóðadeild Evrópu í fótbolta en karlalandsliðið leikur í C-deild. Ísland mætir Búlgaríu, Eistlandi og annaðhvort Lúxemborg eða Möltu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „Þetta er svo galið ástand“ Formaður Félags hjúkrunarfræðinga segir fólk liggja upp undir tíu daga á bráðamóttökunni. Hún lýsir ástandinu sem gölnu. Hjúkrunarfræðingur sem vinnur á bráðamóttökunni segir viðbragðið þar ekki í lagi eins og staðan er í dag. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Íþróttir Áfengið velkomið á leikvöngum Reykjavíkur Reglur um sölu áfengis á íþróttaviðburðum hafa verið rýmkaðar í Reykjavík. Nú má selja áfengi að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Fólkið í Epstein-skjölunum sem hefur stigið til hliðar Birting Epstein-skjalanna hefur haft meiri áhrif í Evrópu en Bandaríkjunum. Hverjir hafa stigið til hliðar eftir að hafa birst í skjölunum? Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Sauð upp úr í yfirheyrslu um Epstein-skjölin Hækkaður rómur og fúkyrði á víxl einkenndu yfirheyrslu dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á Pam Bondi dómsmálaráðherra í gær. Þingmenn spurðu Bondi út í meðferð dómsmálaráðuneytisins á Epstein-skjölunum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Rektor Bifrastar keypti hús af skólanum Þrír starfsmenn Háskólans á Bifröst, þar á meðal rektor, keyptu fasteignir í eigu Kiðár ehf., dótturfélags skólans, árið 2024. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, sem sat í stjórn félagsins þegar húsin voru seld, segir viðskiptin hafa verið eðlileg. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Samþykktu hækkun skráningargjalda í 100.000 krónur Háskólaráð samþykkti hækkun skráningargjalda fyrir Háskóla Íslands á fundi í dag. Nemendur mótmæltu áformum um hækkunina við upphaf fundarins. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Starfsmenn í hættu vegna hraðaksturs á vinnusvæði Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Einungis 30 ökumenn virtu hámarkshraða þegar Lögreglan á Vesturlandi var við hraðamælingar á vinnusvæði Vegagerðarinnar í Norðurárdal við Bjarnadalsá í gær. 46 ökumenn voru á svo miklum hraða að það kallaði á ökuleyfissviptingu á staðnum. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar. Hámarkshraðinn á vinnusvæðinu var minnkaður úr 90 km/klst niður í 30 km/klst. Lögreglan mældi 295 bifreiðar með hraðamyndavélabíl. 265 óku yfir hámarkshraða, 169 voru yfir sektarmörkum og sá sem hraðast ók mældist á 116 kílómetra hraða. Lögreglan segir starfsmenn Vegagerðarinnar hafa verið í hættu vegna hraðakstursins. „Starfsmenn Vegagerðarinnar voru sannarlega í hættu vegna hraða margra ökumanna sem óku um vinnusvæðið,“ segir í færslu lögreglunnar á Vesturlandi á Facebook. RÚV / Alexander Kristjánsson Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Zelensky tjáir sig um hjálmamálið: „Íþróttir þýða ekki minnisleysi“ Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, tjáði sig um bann íþróttakappans Vladyslav Heraskevych á Vetrarólympíuleikunum. Zelensky segir að íþróttir ættu ekki að þýða minnisleysi og að ólympíuhreyfingin ætti að stöðva stríð fremur en hið andstæða. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fullar endurbætur á Fjarðarheiði gætu kostað tæpa tíu milljarða Vegagerðin telur að það gæti kostað allt að 9,5 milljarða að endurbæta veginn um Fjarðarheiði þannig að hann uppfylli kröfur. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Handalögmál á tyrkneska þinginu Tyrkneskir þingmenn slógust í gær eftir umdeilda skipun ráðherra. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjallabyggð Rafmagnslaust á Siglufirði Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Rafmagnslaust var á Siglufirði milli þrjú og fimm í dag vegna bilunar. Bilunin náði til alls bæjarins og hafði áhrif á um þrettán hundruð manns. Samkvæmt upplýsingum frá Rarik er viðgerðum lokið og ekki búist við frekari truflunum. Rarik Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Íslendingar setja milljarð í vopnakaup fyrir Úkraínu Íslensk stjórnvöld ætla að verja átta milljónum bandaríkjadala, um milljarði króna, í vopnakaup fyrir Úkraínu í gegnum sérstakt verkefni á vegum NATO. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Undiraldan er fjölbreytt og frískandi Það var komið víða við í Undiröldunni þessa vikuna og ný íslensk lög sett á fóninn frá Kristmundi Axel og Bubba Morthens, Inspector Spacetime og fleirum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Giséle Pelicot í viðtali: „Þetta er ekki ég“ „Þetta er ekki ég,“ sagði Giséle Pelicot þegar hún sá fyrst myndir sem eiginmaður hennar hafði tekið af henni þegar hún var meðvitundarlaus. Hann var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að nauðga henni og fengið tugi manna til að gera hið sama. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tilkynna endalok stóraðgerða ICE í Minnesota Tom Homan kveðst hafa fengið samþykki Trumps fyrir að ljúka stóraðgerðum innflytjendastofnunarinnar ICE í Minnesota. Íbúar ríkisins hafa mótmælt aðgerðum ICE harkalega og tveir bandarískir ríkisborgarar verið drepnir í aðg