Linards treður.RÚV / Mummi Lú KR jafnaði metin í einvígi sínu gegn Stjörnunni í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta eftir 91-82 sigur. KR-ingar byrjuðu af miklum krafti og leiddu 20-14 eftir fyrsta leikhluta. Linards Jaunzems var þar fremstur í flokki. Hann var með 19 stig í hálfleik og KR leiddi 52-43. Stjarnan jafnaði metin í fyrsta sinn í 70-70 þegar lítið var eftir af þriðja leikhluta. Þeir jöfnuðu svo metin aftur í 80-80 skömmu síðar. Undir lokin leiddi KR með fimm stigum 87-82. Að lokum sigldi liðið sigrinum heim. Linards var með 31 stig fyrir KR og Stjörnumegin var Pablo Bartone stigahæstur með 19 stig. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson bætti við 22 stigum.