KR-ingurinn Molly Kaiser með boltann.RÚV / Mummi Lú Haukar og KR eru jöfn í efsta sæti efstu deildar kvenna í körfubolta eftir sigra liðanna í kvöld. Haukar unnu 71-74 sigur gegn Stjörnunni. Stjarnan fór vel af stað og leiddi með ellefu stigum í hálfleik, 40-29. Haukar komu sér hins vegar hægt og bítandi aftur í leikinn í seinni hálfleik. Þær unnu að lokum þriggja stiga sigur, 71-74. KR vann öruggan 97-79 sigur gegn Keflavík. Keflavík var með tíu stiga forskot, 41-51, í hálfleik en KR var mun sterkari í seinni hálfleik og vann að lokum 18 stiga sigur, og því seinni hálfleikinn með 28 stigum alls. Keflavík er í 6. sæti með 18 stig og Stjarnan í 7. sæti með 16 stig.