- What: Haukar won against Stjarnan in handball, securing the top spot in the league.
- Impact: Stjarnan is now close to the relegation zone.
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Haukar náðu efsta sætinu Jóhann Páll Ástvaldsson Kristján Ottó Hjálmsson. Rúv / Mummi Lú Haukar eru komnir í efsta sæti efstu deildar karla í handbolta eftir 27-25 sigur á Stjörnunni. Stjarnan færðist nær fallsæti og er einu stigi fyrir ofan Þór sem er í 11. sæti. ÍR er sem fyrr í neðsta sæti en Fram vann jafnan leik liðanna í kvöld. Lokatölur urðu 26-28 Fram í vil. Fram er í sjöunda sæti. ÍR var sex mörkum yfir, 20-14, en Fram var mun sterkari á lokakaflanum. HK vann Þór 36-31 og náði að slíta sig örlítið frá fallsvæðinu. Fyrir 42 mínútumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Gríðarlega óvænt úrslit: „Maður er eiginlega hálforðlaus“ Mikhail Shaidorov frá Kasakstan vann gull í frjálsum æfingum í listkautum karla. Bandaríska stjarnan Ilia Malinin fór illa að ráði sínu en hann steig síðastur á stokk, og féll í 8. sæti eftir að hafa dottið tvisvar. Úrslitin þykja koma mikið á óvart. Fyrir 43 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tveir liðsmenn ICE sagðir hafa veitt ósannar upplýsingar um skotárás í Minneapolis Tveir starfsmenn innflytjendastofnunar Bandaríkjanna, ICE, eru taldir hafa logið í vitnisburði um skotárás á innflytjanda sem varð í Minneapolis í janúar. Myndbandsupptökur hafa leitt í ljós að vitnisburður mannanna tveggja stenst ekki. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Körfubolti Grindavík vann Suðurnesjaslaginn Jóhann Páll Ástvaldsson DeAndre Kane leikmaður Grindavíkur. Mummi Lú Grindavík vann sex stiga sigur gegn Keflavík í efstu deild karla í körfubolta, 99-105. Grindavík leiddi með 17 stigum í hálfleik, 42-59. Keflvíkingar náðu að saxa á forskotið í seinni hálfleik en að lokum var munurinn of mikill í hálfleik. Með sigrinum tryggði Grindavík stöðu sína á toppnum enn frekar. Liðið er með 30 stig og Stjarnan er í 2. sæti með 24. Keflavík er í 5. sæti með 20 stig. Tindastóll vann Ármann 113-76 og er nú með 24 stig, jafnt Stjörnunni að stigum en Sauðkrækingar eru í 3. sæti. Ármann er í 11. sæti með tveimur stigum minna en Þór Þorlákshöfn. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Franska lögreglan skaut mann til bana undir Sigurboganum Ásrún Aldís Hreinsdóttir Franska lögreglan skaut mann sem var vopnaður hnífi við Sigurbogann í París síðdegis í dag. Maðurinn lést stuttu eftir komuna á sjúkrahús. Fréttastofa AFP hefur eftir frönsku lögreglunni að maðurinn hafi hótað lögreglumönnum sem voru viðstaddir athöfn við Sigurbogann. Lögregla skaut manninn nokkrum sinnum. Lögreglumaður hlaut minniháttar áverka eftir hnífstungu. Hinn grunaði var franskur ríkisborgari og hafði áður komist í kast við lögin, árið 2012 var maðurinn dæmdur í sautján ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, hryðjuverk og önnur brot í Belgíu fyrir að ráðast á þrjá lögreglumenn,hryðjuverkadeild lögreglunnar í París rannsakar málið. EPA / Mohammed Badra Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vilja hætta við Borgarlínu, fækka hælisleitendum og dreifa byggð Oddviti Okkar borgar sem býður fram í Reykjavík í vor segir framboðið hægra megin við miðju. Okkar borg vill fækka hælisleitendum, hætta við Borgarlínu og byggja á Geldinganesi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Vöggustofur í Reykjavík:„Þetta var eitt stórt klúður og fékk að halda áfram alltof lengi“ Hópur fólks sem var vistað á vöggustofum í Reykjavík hefur sent forsætisráðherra bréf og farið þess á leit að ríkið tryggi þeim sanngirnisbætur. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélagsmiðlar Heimsfrægir útivinnandi kettir á Íslandi Sumir kettir virðast sækjast í að vera útivinnandi, þó að launin séu oftast ekkert nema klapp og klór. Dæmi eru um íslenskar kisur sem hafa öðlast heimsfrægð á samfélagsmiðlum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hlutfallslega fæst hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu Önnur úrræði en hjúkrunarrými skortir í öldrunarþjónustu, segir öldrunarlæknir. Meginþunginn hafi verið að byggja hjúkrunarrými sem sé dýrasta úrræðið. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Norður-Kórea Telur sig vissa um að Ju Ae verði formlega útnefnd á næstunni Suðurkóreska leyniþjónustan telur sig vissa um að Kim Ju Ae, dóttir Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu, verði formlega útnefnd sem arftaki föður síns á næstunni. Flokksþing norðurkóreska kommúnistaflokksins verður haldið síðar í þessari viku. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Sjáðu: Ástralinn vann eftir æsispennandi snjóbrettaat Hin ástralska Josie Baff vann gull í snjóbrettaati kvenna á Vetrarólympíuleikunum í dag. Þá var Frakkinn Fillon-Maillet fremstur meðal jafningja í sprettgöngu karla í skíðaskotfimi. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Framlög Íslands töluvert lægri en allra annarra Norðurlanda Utanríkisráðherra segir mikilvægt að Ísland standi við alþjóðlegar skuldbindingar og styðji varnir Úkraínu. Framlög Íslands séu hófstillt í alþjóðlegum samanburði. Ísland ætlar að verja um milljarði króna til vopnakaupa fyrir Úkraínumenn. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba „Blasir við að einræðið fellur á Kúbu á næstu mánuðum“ Bandaríkin hafa sett Kúbustjórn úrslitakosti og stöðvað innflutning olíu til Kúbu. Það veldur víðtæku rafmagnsleysi og miklum samgöngutruflunum. Tómas R. Einarsson segir stjórnina veruleikafirrta og spáir falli hennar áður en árið er liðið. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Merz segir heimsskipan síðustu ára undir skemmdum Kanslari Þýskalands segir heimsskipan síðustu ára liggja undir skemmdum. Frelsið sé ekki lengur gefið og styrk þurfi til að berjast fyrir því á ný. Þetta kom fram í ræðu hans á alþjóðlegu öryggisráðstefnunni sem hófst í München í morgun. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Óðinn Svan í 1. sæti L-listans á Akureyri Hugrún Hannesdóttir Diego Óðinn Svan Óðinsson frétta- og dagskrárgerðarmaður verður í 1. sæti L-listans í komandi bæjarstjórnarkosningum á Akureyri. Akureyri.net greinir frá. Óðinn hefur starfað hjá RÚV í sjö ár og tilkynnti um starfslok sín þar í Facebook-færslu í dag. „Það þarf að passa að bærinn okkar haldi áfram að vaxa og dafna og þess vegna langar mig að bjóða fram krafta mína í það verkefni,“ hefur Akureyri.net eftir Óðni. L-listinn er í meirihlutasamstarfi í bæjarstjórn Akureyrar. Halla Björk Reynisdóttir hefur sagt að hún gefi ekki áfram kost á sér sem oddviti. Óðinn Svan Óðinsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR KrakkaRÚV Útvarpið lifir enn góðu lífi 100 árum eftir fyrstu útsendinguna Þann 31. janúar voru 100 ár frá fyrstu útvarpsútsendingunni hérlendis. Krakkafréttir könnuðu sögu útvarpins, þróunina og úrvalið af útvarpsþáttum fyrir krakka í dag. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Telur fyrirtæki hafa gengið á lagið og hækkað verð í skjóli gjaldahækkana hins opinbera Markaðsviðskipti Kviku spá 5,0 prósenta verðbólgu í febrúar, ögn minni en í janúar. Aðalhagfræðingur bankans telur að fyrirtæki hafi reynt að verja framlegð sína í kjölfar kauphækkana með hækkunum í janúar en að minni hækkanir séu fram undan. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Afdráttarlaus stuðningur Willums Þórs við Lilju kom Sigurði Inga á óvart Sigurður Ingi Jóhannsson segir óljóst hvað taki við hjá honum þegar Framsóknarflokkurinn hefur kosið sér nýjan formann á sunnudag. Afdráttarlaus stuðningur Willums Þórs Þórssonar við Lilju Alfreðsdóttur kom honum á óvart. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Triskaidekaphobia kann að hafa gripið um sig í dag – óttinn við töluna 13 Í dag er föstudagurinn þrettándi og líklega hafa margir haft varann á sér þess vegna. Svo vill til að 13. dag marsmánaðar ber einnig upp á föstudag. Óttann við töluna 13 og föstudaginn með því númeri má meðal annars rekja til trúarbragða. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Erlendir fangar afpláni þriðjung refsingar í stað helmings Dómsmálaráðherra vill minnka álag á fangelsi landsins með því að flýta reynslulausn erlendra fanga sem hafa lítil eða engin tengsl við landið. Í nýjum frumvarpsdrögum er lagt til að þeir fái reynslulausn eftir að hafa afplánað þriðjung refsingar. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Ólöglegt að banna Palestine Action Breskum stjórnvöldum var óheimilt að banna starfsemi samtakanna Palestine Action og skilgreina þau sem hryðjuverkahóp, samkvæmt úrskurði dómstóls í London í dag. Yfir 2.000 manns hafa verið handteknir á mótmælum samtakanna. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Vonar að frumvarp um rannsóknarnefnd vegna Bakkakots komi fram á vorþingi Forsætisráðherra vonast til að frumvarp um stofnun rannsóknarnefndar sem skoða á Bakkakotsmálið verði lagt fram á núverandi þingi. Þá vonast hún til að frumvarp um sanngirnisbætur fyrir fósturbörn almennt verði lagt fram í haust. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarmál Íbúar Kaldrananeshrepps og Árneshrepps kjósa um sameiningu í mars Gréta Sigríður Einarsdóttir Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps samþykkti í vikunni að halda íbúakosningar um sameiningu Kaldrananeshrepps og Árneshrepps. bb.is greindi frá. Kosningarnar eiga að fara fram 14.-28. mars. Kosningaaldur verður miðaður við 16 ár líkt og leyfilegt er samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Samkvæmt tölum Hagstofunnar eru Árneshreppur og Kaldrananeshreppur annað og fimmta fámennasta sveitarfélag landsins. Sameinaður íbúafjöldi hreppanna yrði 175 og sameinað sveitarfélag yrði það fimmta fámennasta af rúmlega 60 sveitarfélögum á landinu. Drangsnes er í Kaldrananeshreppi og yrði stærsti byggðakjarninn í sameinuðu sveitarfélagi Kaldrananeshrepps og Árneshrepps Markaðsstofa Vestfjarða Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Hafnar kenningum nefndarformanns um vanútgefinn loðnukvóta Formaður fjárlaganefndar Alþingis fullyrðir að loðnustofninn sé vanmetinn og að misheppnuð haustmæling valdi því að loðnukvótinn sé hundrað þúsund tonnum of lítill. Sviðstjórn hjá Hafró hafnar því og segir útreikningana ranga. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Söguleg