KR, sem er nýliði í deildinni, hefði geta unnið hana með sigri á Haukum í kvöld en Hafnfirðingar reyndust seigir. Ríkjandi Íslandsmeistarar Hauka sýndu hvað í þeim býr og liðið vann öruggan sigur 82-67. KR var skrefi framar fyrstu mínúturnar en Haukar hleyptu Vesturbæingum þó aldrei langt í burtu. Þremur stigum munaði eftir fyrsta fjórðung þegar KR leiddi, 17-20. Krystal-Jade Freeman jafnaði fyrir Hauka þegar þrjár mínútur voru í hálfleiksflaut, 29-29. Á þessum þremur mínútum gengu Haukar á lagið og þristur Þóru Kristínar Jónsdóttur ásamt tveimur stigum frá Amandine Toi færði liðinu sex stiga forskot í hálfleik, 38-32. Sólrún Inga Gísladóttir átti góðan leik fyrir Hauka og í þriðja leikhluta skoraði hún þrjá þrista. Sólrún og Haukar unnu þá upp gott forskot og liðið leiddi með 22 stigum fyrir lokafjórðunginn. Þótt KR hafi veitt mótspyrnu í fjórða leikhluta dugði það ekki til og Haukar fögnuðu því sigri, 82-67.