Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Haukar í úrslit eftir sigur fyrir framan fulla höll af Hafnfirðingum

Read Full Article →

Haukar eru komnir í bikarúrslit karla í handbolta eftir 21-25 sigur gegn FH í spennutrylli. Leikið er á Ásvöllum og mættu Hafnfirðingar afar vel á leikinn. FH missti Hauka í tvígang of langt frá sér og þeir svartklæddu reyndu að ná endurkomu undir lok leiks en það var of seint. Úrslitaleikurinn fer fram á laugadaginn klukkan 18:30. ÍR og KA mætast í hinum undanúrslitaleiknum klukkan 20:15 í kvöld. Daníel lokaði markinu en Haukar leiddu Hart var tekist á í upphafi leiks og fékk FH í tvígang tveggja mínútna brottvísun. Eftir fimm mínútna leik leiddu Haukar 2-5. Daníel Freyr Arnaldsson varði afar vel í marki FH en munurinn var enn þrjú mörk þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður, 5-8 eftir 17 mínútna leik. Daníel var með 11 varin skot og 50% markvörslu í hálfleik. Næstu mínútur náðu þeir svarthvítu að saxa á forskotið og var staðan 9-10 fyrir Haukum þegar 26 mínútur voru liðnar. Haukar fóru þó með tveggja marka forskot inn í leikhlé, 9-11. Grétar Ari Guðjónsson var einnig í ham í marki Hauka og var með 44% markvörslu í hálfleik. Æsispennandi undir lokin Haukar náðu fimm marka forskoti í upphafi seinni hálfleiks. Þeir leiddu þá 9-14 eftir 35 mínútna leik. FH-ingar hrukku í gang um miðjan seinni hálfleik og náðu að minnka muninn í þrjú mörk, 16–19, eftir 47 mínútna leik. Stemningin var mikil á Ásvöllum í kvöld og Hafnfirðingar fjölmenntu. Stuðningsmenn Hauka tóku meðal annars upp á því gamla og góða bragði að halda uppi Morgunblaðinu þegar lið FH var kynnt til leiks. Hótuðu endurkomu FH-ingar freistuðu þess að leika 7 á 6 þegar liðið var fjórum mörkum undir í stöðunni 16-20 eftir 50 mínútna leik. Það fór ekki betur en svo að Össur stal boltanum og kom honum í opna markið. Munurinn var því fimm mörk, 16-21, þegar rúmar níu mínútur voru eftir. Steini Arndal tók leikhlé og brýndi fyrir sínum mönnum að það væri húsfyllir í Hafnarfirði. Ræðan bar ávöxt því að FH náði að minnka muninn í tvö mörk, 19–21, þegar fimm mínútur voru eftir. Birkir sýndi mikil tilþrif í vörninni er hann hljóp Össur uppi og stal boltanum af honum á ögurstundu. Að lokum unnu Haukar 21-25 sigur. Sigursteinn Arndal þjálfari FH fékk rautt spjald að leik loknum fyrir mótmæli. Viðtöl og helsta tölfræði birtist hér innan skamms.

Share this article