Haukar fóru áfram í bikarúrslit kvenna í handbolta eftir 32-29 sigur gegn Fram í undanúrslitum. Sömu lið mættust í úrslitaleiknum fyrir ári og þar höfðu Haukar betur. Leikið verður á Ásvöllum og geta því Haukar orðið bikarmeistarar á heimavelli annað árið í röð á laugardaginn kemur. Valur og KA/Þór mætast í hinum undanúrslitaleiknum í kvöld klukkan 20:15. Leikurinn er í beinni útsendingu á RÚV2. Afar jafn fyrri hálfleikur Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var munurinn aldrei meiri en tvö mörk. Leikurinn var jafn, 5-5, eftir 10 mínútna leik. Fram virtist vera skrefi framar það sem eftir var hálfleiks og náði eins marks forskoti, 7-8, eftir 15 mínútur. Liðið leiddi einnig 13-14 þegar 29 mínútur voru liðnar en Haukar jöfnuðu í 14-14 eftir leikhlé. Ethel Gyða í marki Fram varði afar vel í fyrri hálfleik og var með sjö varin skot þá þegar. Haukar stungu af Haukar komust yfir í fyrsta sinn frá því í stöðunni 1–0, þegar Inga Dís kom þeim í 16–15 eftir 33 mínútna leik. Fyrsta skipti sem Haukar komust í þriggja marka forskot var í stöðunni 23-20 eftir 43 mínútur. Munurinn var áfram þrjú mörk næstu mínútur og leiddur Haukar 26-23 þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Haukar leiddu mest með fjórum mörkum, 27-23, þegar 51 mínúta var eftir. Sara Sif Helgadóttir átti lykilvörslu þegar skammt var eftir í stöðunni 30-28 fyrir Haukum. Að lokum vannst 32-29 sigur. Embla markahæst Embla Steindórsdóttir var markahæst með sex mörk hjá Haukum og auk þess var hún með þrjár stoðsendingar. Sonja Lind Sigsteinsdóttir var næst með fjögur mörk. Sara Sif Helgadóttir varði níu skot í marki Hauka. Ásdís Guðmundsdóttir var með fimm mörk í liði Fram og næst var Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín með fjögur. Ethel Gyða Bjarnasen varði níu skot.