Innlent | mbl | 9.4.2026 | 16:34 Kynna aðgerðir í efnahagsmálum á morgun Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarpaði ársfund Seðlabanka Íslands. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Ríkisstjórnin mun á morgun kynna tímabundnar aðgerðir í efnahagsmálum til að bregðast við stöðu efnahagsmála í landinu. Þetta kom fram í ávarpi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á ársfundi Seðlabanka Íslands. Hún segir að bregðast þurfi við stöðu efnahagsmála m.a. vegna áhrifa af stríðsátökum úti í heimi. „Það er óvissa og verður áfram óvissa. En stundum þarf að taka í bremsuna og skipta um gír – detta í nýjan takt, til að hemja verðhækkanir,“ segir Kristrún. Frétt af mbl.is Kristrún, Ásgeir og Bolli ávarpa ársfundinn Tímabundnar aðgerðir Hún segir að með aðgerðunum sé ríkisstjórnin að leggja sitt af mörkum og um leið hvetja atvinnulífið til að leggja ríkisstjórninni lið „með afgerandi hætti við að hemja verðbólguna og koma henni í markmið“. Kristrún tekur fram að um sé að ræða tímabundnar aðgerðir sem koma ekki í staðinn fyrir umbætur sem taka lengri tíma. „Öndum í kviðinn. Höldum okkar striki. Og höfum trú á verkefninu, fyrir land og þjóð.“ Í ávarpinu kom einnig fram að ríkisstjórnin hefði samþykkt fyrstu atvinnustefnu Íslands. Hún verður kynnt á morgun eftir samráð við almenning og atvinnulíf. Boðar til þríhliða samtals Kristrún segir að þó að óróatímar séu í gangi sé fráleitt að kasta inn handklæðinu, hvað þá að gefa sé að kjarasamningar losni í haust og tala þannig að sífellt hraðari taktur í verðhækkunum sé óumflýjanleg þróun. Hún segist hafa rætt þessi mál við forystu Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og fulltrúa atvinnurekenda. Hún ætlar á næstu dögum að efna til þríhliða samtals með ASÍ, Samtökum atvinnulífsins og stjórnvöldum til að hemja verðbólgu á næstu misserum. „Það er ríkur vilji til að tryggja að forsendur kjarasamnings haldi.“ Kristrún telur ekki tímabært að setjast við kjarasamningaborðið. Hún segist hafa verið skýr um að ríkisstjórnin hafni því að stjórnvöld efni til nýrra varanlegra ríkisútgjalda sem eru ófjármögnuð til að höggva á hnúta í kjaradeilum á almennum vinnumarkaði, sérstaklega á tímum þar sem verðbólga og verðbólguvæntingar eru eins viðkvæmar og nú. Viðræður við ESB gætu orðið akkeri Þá segir Kristrún að til þess að vinna stóra sigra þurfi að hafa traust, færa fórnir og taka til umræðu um kerfisbreytingar og aðrar stórar ákvarðanir. „Meðal annars þess vegna hefur ríkisstjórnin kallað eftir opinni og málefnalegri umræðu um valkosti Íslands í Evrópumálum, og þar með talið í peningamálum. Ef þjóðin velur að halda áfram viðræðum um aðild að Evrópusambandinu þá gæti það verið akkeri fyrir vinnumarkaðinn og efnahagslífið. Sem útheimti umbætur á íslenska vinnumarkaðsmódelinu. Það væri einn valkostur, sem ég tel rangt að útiloka á þessum tímapunkti. En það verður þjóðarinnar að ákveða,“ segir ráðherra. Kristrún bætti því við að önnur kerfisbreyting væri afnám verðtryggingar í skrefum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kynna aðgerðir í efnahagsmálum á morgun Listi Miðflokksins og óháðra á Seltjarnarnesi kynntur Beint: Vorfundur smábátasjómanna Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Hafþór Júlíus stefnir á tvö heimsmet Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Hraðar á milli staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kynna aðgerðir í efnahagsmálum á morgun Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ Þjóðarsorg í Líbanon: Leiðtogar fordæma árásir Útilokar hömlur á auðgun úrans Mest lesið Í gær Í vikunni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Hér er því farið með fleipur“ „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Freyr Gígja kominn í dómsmálaráðuneytið Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » Kynna aðgerðir í efnahagsmálum á morgun Listi Miðflokksins og óháðra á Seltjarnarnesi kynntur Beint: Vorfundur smábátasjómanna Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Hafþór Júlíus stefnir á tvö heimsmet Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Hraðar á milli staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landlæknisembættið vanmetur hjúkrun Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Borgin greiði einstaklingum á biðlista milljónir Smáríkið áfrýjar dómi um hvítvínsbelju Mest lesið Í gær Í vikunni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Hér er því farið með fleipur“ „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Freyr Gígja kominn í dómsmálaráðuneytið Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Leigja út heimili á ríflega milljón