Skafti Harðarson, framkvæmdastjóri, skipar efsta sætið á framboðslista Miðflokksins og óháðra á Seltjarnarnesi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu. Í tilkynningu frá framboðinu segir að Skafti hafi langa reynslu úr einkarekstri í byggingariðnaði, og hafi verið formaður Samtaka skattgreiðenda frá stofnun þess. Hér má sjá framboðslista Miðflokksins og óháðra á Seltjarnarnesi Skafti Harðarson, framkvæmdastjóri, Þóra Sif Friðriksdóttir, viðskiptafræðingur Guðrún Jónsdóttir, grunnskólakennari Hannes Tryggvi Hafstein, framkvæmdastjóri Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir, mannauðs- og gæðastjóri Hákon Róbert Jónsson, verkefnastjóri Ágústa Sif Víðisdóttir, viðskiptafræðingur Guðmundur Júlíus Gíslason, flugstjóri Tómas Nielsen, markaðsstjóri Maríanna Ósk Guðjónsdóttir, aðstoðarleikskólakennari Nökkvi Gunnarsson, golfkennari og framkvæmdastjóri Halldór Benóný Nellett, skipherra Viðar Freyr Guðmundsson, rafeindatæknifræðingur Ástríður Sigurrós Jónsdóttir, viðskiptafræðingur