- What: Southwest Airlines updates rules for lithium battery use on flights
- Impact: Passengers must follow new restrictions on carrying and using lithium batteries on board
Bandaríska flugfélagið Southwest Airlines hefur ákveðið að herða reglur um notkun hleðslubanka um borð í flugvélum sínum vegna áhyggna af eldsvoða af völdum litíumrafhlaðna. Fox Business greinir frá því að samkvæmt nýrri stefnu, sem tekur gildi þann 20. apríl nk., verði hverjum farþega heimilt að hafa aðeins einn hleðslubanka með sér um borð. Hleðslubankarnir mega heldur ekki vera geymdir í farangurshólfum fyrir ofan sæti og verður farþegum einnig bannað að hlaða rafhlöður hleðslubankanna með rafmagnstengjum í sætum flugvélarinnar. Þar að auki þurfa þeir að vera sýnilegir meðan á flugi stendur. Sjá einnig Flugfélögin kalla eftir tryggingu launagreiðslna Ákvörðunin tengist fjölda uppákoma á síðasta ári þar sem reykur, eldur eða mikill hiti myndaðist við notkun slíkra rafhlaðna en bandarísk flugmálayfirvöld skráðu 97 slík tilvik árið 2025 miðað við 89 tilvik árið á undan. Southwest Airlines bendir þó á að það muni halda áfram að bæta rafmagnsaðgengi um borð og stefnir að því að koma rafmagnstengjum fyrir í sætum allra flugvéla, sem muni draga úr þörf fyrir slíka hleðslubanka.