Innlent | mbl | 9.4.2026 | 19:10 Þriggja ára skilorð fyrir ofbeldi gegn 12 ára dreng Drengurinn var inni hjá manninum þar til nágranni í næsta húsi kom drengnum til bjargar. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa beitt tólf ára dreng líkamlegu ofbeldi eftir að drengurinn gerði dyraat heima hjá manninum. Atvikið gerðist í febrúarmánuði árið 2023. Samkvæmt ákæru veittist maðurinn að drengnum skammt frá heimili mannsins, elti hann uppi, felldi hann í jörðina, hélt honum föstum og dró hann gegn vilja hans á heimili sitt. Drengurinn var inni hjá manninum þar til nágranni í næsta húsi kom drengnum til bjargar. Maðurinn neitaði sök fyrir dómi og sagði drenginn hafa komið með sér heim af fúsum og frjálsum vilja til að biðja eiginkonu hans afsökunar á dyraatinu. Í skýrslu hjá lögreglu sagðist maðurinn hafa sætt miklum árásum á heimili sitt af hálfu fjölda fólks. Hann lýsti því að í umrætt skipti hefði verið „hamast“ á gluggum hússins og barið á dyr og líkti maðurinn þessum aðförum við trommukonsert. Frétt af mbl.is Dró 12 ára dreng á heimili sitt Nokkuð ber á milli Maðurinn kvaðst hafa beðið eiginkonu sína að hringja á lögreglu á meðan hann hefði verið úti og tekið sér stöðu hinu megin við húsið þar sem hann beið eftir að drengirnir nálguðust. Lýsti maðurinn því að hann hefði gengið til drengjanna og að þeim hefði brugðið. Brotaþoli hefði dottið og sagðist maðurinn hafa tekið í hönd hans til að hjálpa honum upp af götunni. Þeir hefðu síðan gengið inn í hús mannsins þar sem þeir tóku „tal saman.“ Nokkuð ber á milli í frásögnum mannsins og drengsins. Drengurinn lýsti því að maðurinn hefði hlaupið að honum í nágrenni heimilis hans, hrint honum í jörðina og „farið ofan á sig“ þar sem maðurinn hefði hrist og skammað hann. Ætlaði að senda myndir til „hættulegra manna“ Drengurinn lýsti því að maðurinn hefði tekið af honum ljósmyndir sem hann hefði sagst ætla að senda til margra „hættulegra manna“. Í framhaldinu hefði maðurinn tekið drenginn inn á heimili sitt og læst útidyrahurðinni. Drengurinn lýsti því að maðurinn hefði haldið sér á heimili hans gegn vilja hans en gat þó ekki staðhæft hversu lengi. Framburður drengsins fékk stigið í framburði margra vitna sem gáfu skýrslu við aðalmeðferð. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » KA - Valur, staðan er 24:24 Þriggja ára skilorð fyrir ofbeldi gegn 12 ára dreng Annar Íslendingur í stórliðið Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ Forðastu fasteignasalahálsmálið Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Misskilningur hjá gömlum vini Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kynna aðgerðir í efnahagsmálum á morgun Hafa ráðið einn erlendan lækni í fullt starf Telur landlækni vera á villigötum Boðuðu verkfalli farmanna aflýst Mest lesið Í gær Í vikunni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Hér er því farið með fleipur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » KA - Valur, staðan er 24:24 Þriggja ára skilorð fyrir ofbeldi gegn 12 ára dreng Annar Íslendingur í stórliðið Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ Forðastu fasteignasalahálsmálið Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Misskilningur hjá gömlum vini Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Hér er því farið með fleipur“ ESB mótfallið tollum í Hormússundi „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Hér er því farið með fleipur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón