Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dæmdur fyrir líkamsárás gegn pilti sem gerði dyraat

Read Full Article →

Maður á sextugsaldri var í gær sakfelldur fyrir líkamsárás gegn unglingsdreng og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Maðurinn tók þrettán ára pilt hálstaki þegar drengurinn og vinir hans gerðu dyraat heima hjá manninum. Drengirnir gerðu dyraat heima hjá manninum í Reykjavík þjóðhátíðardaginn 2022. Þeir dingluðu og hlupu síðan á brott. Maðurinn hljóp á eftir piltunum og náði einum þeirra. Hann tók drenginn hálstaki og hélt honum þannig. Maðurinn neitaði sök en sannað þótti, með framburði drengjanna og áverkum á hálsi drengsins, að hann hefði tekið piltinn hálstaki. Maðurinn var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Dómari sagði að við ákvörðun refsingar tæki hann mið af því að maðurinn hefði ráðist á þrettán ára dreng að viðstöddum tveimur jafnöldrum hans. Á móti kemur að nær fjögur ár liðu frá árásinni þar til maðurinn var sakfelldur. Dómari tiltók að málsmeðferðin hefði dregist, bæði meðan á rannsókn lögreglu stóð og fyrir dómi. Sú töf var ekki manninum að kenna.

Share this article