Sérfræðilæknir segir brýnt að auka stuðning og ráðgjöf um hvenær rjúfa eigi þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks vegna gruns um ofbeldi eða vanrækslu. Slíkar aðstæður séu afar flóknar, ekki síst þegar möguleg tilkynning varðar fullorðna manneskju sem vill ekki að læknir hafi samband við yfirvöld. Jóhanna Guðrún, sérfræðilæknir á Barnaspítala Hringsins og meðstjórnandi í stjórn Félags sjúkrahúslækna, segir í grein í Læknablaðinu að töluvert flóknara sé þegar grunur er um ofbeldi gegn fullorðnum heldur en börnum. Tilkynningarskylda samkvæmt barnaverndarlögum gangi framar ákvæðum laga eða siðareglum um þagnarskyldu. Gætu þurft lögfræðiráðgjöf í flóknum málum Hún segir brýnt að veita heilbrigðisstarfsfólki stuðning. Fyrsta skrefið sé að efla þá stoðþjónustu sem þegar standi til boða. Þá gæti einnig verið þörf á lögfræðilegri ráðgjöf í flóknari málum. Þagnarskylda lækna var mikið til umræðu í kjölfar þess að Margrét Löf varð föður sínum að bana í fyrra. Læknar sögðu að þeir hefðu ekki mátt tilkynna langvarandi ofbeldi í aðdragandanum því foreldrar Margrétar hefðu ekki viljað það. Hvað segja lögin um þagnarskyldu? Í lögum um heilbrigðisstarfsmenn er kveðið á um trúnað þeirra og þagnarskyldu. Þar segir að starfsmenn í heilbrigðisþjónustu skuli gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem þeir komist að í störfum sínum sem varði heilsufar fólks og persónulegar upplýsingar um það. Í lögunum segir líka að þetta gildi ekki, bjóði lög annað eða rökstudd ástæða sé til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar. Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir heilbrigðisstarfsmann undan þagnarskyldu. Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem heilbrigðisstarfsmanni ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber heilbrigðisstarfsmanni skylda til að koma upplýsingum um atvikið á framfæri við þar til bær yfirvöld. Sviðstjóri ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sagði sérstaklega mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk tilkynnti alvarleg atvik til lögreglu. Jóhanna Guðrún segir að þegar rökstuddur grunur er um ofbeldi vilji læknar tilkynna slíkt til yfirvalda. Slíkt þurfi að gera í samráði við skjólstæðing til að eiga ekki í hættu á að rjúfa meðferðarsambandið eða að hann verði útsettur fyrir frekara og alvarlegra ofbeldi.