Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Besta deild karla hefst í kvöld

Read Full Article →

Víkingur er núverandi Íslandsmeistari og leysti Breiðablik þar af hólmi. Frá 2020 hafa þessi tvö lið skipst á að verða Íslandsmeistari; Víkingur þrisvar og Breiðablik tvisvar. Víkingur sigraði sömuleiðis á dögunum í Meistarakeppni KSÍ. Leikir þessara liða hafa verið býsna harðvítugir á síðustu árum og verður spennandi að sjá hvort sami hiti verði þegar liðin mætast nú í aprílbyrjun. 1. umferð heldur svo áfram á sunnudag þegar fimm leikir eru á dagskránni: 13:00 ÍBV - FH 17:00 KA - Stjarnan 17:00 KR - Keflavík 17:00 Valur - Þór Akureyri 19:30 Fram - ÍA Keflavík og Þór Akureyri eru nýliðar í deildinni í ár og var spáð falli í Lengjudeildina í árlegri spá forráðamanna liðanna. Víkingi var spáð titlinum. Keflavík gerði KR skráveifu fyrir 30 árum Í ár er ekki í fyrsta skipti sem KR og Keflavík mætast í fyrstu umferð Íslandsmótsins. Fyrir sléttum 30 árum mættust liðin í Keflavík. KR var þá spáð titlinum en þeir misstigu sig í Keflavík. Íslandsmótinu lauk þetta ár með sigri ÍA eftir að liðið lagði KR í hreinum úrslitaleik á Akranesi 4-1. Hér að neðan má sjá umfjöllun RÚV um leikinn í Keflavík fyrir 30 árum. Keppni hefst í kvöld í Bestu deild karla í fótbolta. Það er enginn smáleikur sem hleypir Íslandsmótinu af stað því það eru Íslandsmeistarar síðustu fimm ára sem eigast við.

Share this article