Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 10.4.2026 | 8:56 „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ Auður Vala segir Austurland hafa upp á margt að bjóða. Hún kallar eftir góðu samstarfi, skýrari stefnu og auknum fyrirsjáanleika. Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Viðskiptaráð hélt fund á Egilsstöðum í gær þar sem rætt var um atvinnulíf á Austurlandi frá ýmsum hliðum. Meðal gesta var Auður Vala Gunnarsdóttir, en hún á og rekur hótelið Blábjörg og KHB Brugghús með eiginmanni sínum. Auður Vala tók í gær þátt í pallborðsumræðum, en henni er ofarlega í huga hvað skortur á fyrirsjáanleika kemur sér illa fyrir ferðaþjónustuna á Austurlandi: „Það eru þessar hræringar hjá stjórnvöldum, eins og þegar hugmyndir komu fram um skattlagningu skemmtiferðaskipa. Það varð til þess að þessi starfsemi á Borgarfirði eystra, sem hafði tekið langan tíma að byggja upp, stóð skyndilega á brauðfótum. Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað og fyrirtæki sem áður gátu selt tugi ferða yfir sumarið stóðu allt í einu frammi fyrir því að fá aðeins fjóra eða fimm hópa til sín,“ segir hún. Að sögn Auðar Völu hafa breytingar á gistináttagjaldi einnig komið illa við ferðaþjónustuna á Austurlandi, líkt og víðar á landsbyggðinni. Hlöðver Hlöðversson. „Aftur vantaði fyrirsjáanleikann. Það var aðeins gefinn nokkurra mánaða frestur til að innleiða þessi gjöld, á sama tíma og við sendum samstarfsaðilum okkar verðlista sem gilda gjarnan tvö ár fram í tímann. Þetta varð því mikið mál fyrir okkur og óhjákvæmilegt að við tækjum á okkur hluta af þessum kostnaði, enda voru föst verð þegar komin út.“ Hún segir gistináttagjaldið leggjast ofan á aðra skatta sem vegi hlutfallslega þungt á ferðaþjónustufyrirtækjum. „Áfengisgjöldin eru gott dæmi. Mér reiknast til að ef við seljum einn lítra af sterku áfengi fari um 7.300 krónur af kaupverðinu í áfengisgjöld. Með svona háum álögum stendur ekki mikið eftir fyrir þann sem selur veigarnar.“ Margt þrengir að Að mati Auðar Völu gætir einnig misskilnings um rekstur ferðaþjónustufyrirtækja og stöðu greinarinnar almennt. Hún bendir á að ferðamönnum hafi ekki fjölgað síðustu ár og að víða séu fyrirtæki komin að þolmörkum. „Vextir og verðbólga eru litlum og meðalstórum fyrirtækjum afar íþyngjandi, launakostnaður er mjög hár og róðurinn þungur hjá mörgum gisti- og veitingastöðum,“ segir hún og bendir á að rekstrarforsendur á Austurlandi séu ekki endilega þær sömu og á suðvesturhorninu. Eitt af því sem snertir Austurland sérstaklega er samgönguinnviðirnir. Auður Vala segir gæði þeirra og viðhald standa atvinnurekstri fyrir þrifum: „Hingað var lagður nýr og flottur vegur sem var til mikilla framfara, en svo reynast ekki vera til peningar til að halda honum opnum alla daga yfir háveturinn. Ég held að við séum eina samfélagið á landinu þar sem ekki er mokað nema suma daga vikunnar. Það er ekki nóg að byggja flotta innviði, það verður líka að þjónusta þá.“ Þrátt fyrir áskoranirnar segir Auður Vala tækifærin á Austurlandi mikil. „Austurland hefur upp á margt að bjóða: einstaka náttúru, sterkt samfélag og vaxandi áhuga ferðamanna á rólegri og persónulegri upplifun. Með auknum fyrirsjáanleika og bættum innviðum er hægt að byggja áfram upp öfluga ferðaþjónustu sem skapar verðmæti fyrir samfélagið allt árið um kring,“ segir hún og bætir við að ferðaþjónustuaðilar á svæðinu séu tilbúnir að leggja sitt af mörkum til að efla atvinnulíf á Austurlandi. „Við sjáum mikla möguleika í aukinni vetrarferðaþjónustu, upplifunum tengdum náttúru og menningu, og í samstarfi fyrirtækja á svæðinu. Með góðu samstarfi og skýrari stefnu er hægt að styrkja Austurland enn frekar sem áfangastað allt árið.“ Þurfa gott aðgengi að námi Hlöðver Hlöðversson, framkvæmdastjóri fjárfestinga hjá Alcoa Fjarðaáli, tók einnig þátt í umræðum í gær. Hann segir að því fylgi sértækar áskoranir að reka stórfyrirtæki í litlu og fámennu samfélagi: „Á Austurlandi er atvinnuleysi nánast ekkert, um 2%, og framboð húsnæðis takmarkað. Í hátækni-iðnfyrirtæki eins og Fjarðaáli, þar sem sérhæfð þekking og menntun skiptir sköpum, hefur þessi staða kallað á markvissar lausnir. Alcoa Fjarðaál hefur meðal annars mætt þessari áskorun með því að styrkja starfsfólk til að sækja sér nám og stofnaði stóriðjuskóla Fjarðaáls eftir fyrirmynd Rio Tinto í Straumsvík,“ segir hann. „Til að styðja enn frekar við atvinnulíf og samfélög á Austurlandi er mikilvægt að bæta framboð og auka gæði fjarnáms, svo að fólk geti sótt sér menntun án þess að flytjast úr landsfjórðungnum – enda sýnir reynslan að þegar fólk flytur á brott til náms getur reynst erfitt að fá það aftur til baka.” Hlöðver segir samgöngumálin líka þurfa að vera í forgrunni enda byggðin nokkuð dreifð og þungfærir fjallvegir geri íbúum erfitt um vik að sækja þjónustu og vinnu. „En tækifæri eru einnig í verði á innanlandsflugi, sem alla jafna er ekki á allra færi. Þó svo að aðkoma stjórnvalda með loftbrú komi að gagni fyrir íbúa er það ekki að hjálpa fjölskyldum þeirra og öðrum sem koma þurfa austur.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér 1 blogg um fréttina Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Bloggað um fréttina Sigurður Kristján Hjaltested: Kjósið Samfylkinguna. Nýjast á mbl.is » HM treyja Nike til vandræða Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Slot: „Finn fyrir stuðningi félagsins og stuðningsmanna“ Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ Umræðan Sleggjan sett á ESB-planið Gjaldmiðill og gengi á göflum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Segir konungsfjölskylduna þurfa Íslendinginn sem ráðgjafa „Þá er eins gott að þeir hætti því strax!“ Borgin greiði einstaklingum á biðlista milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni „Það verður rautt ljós sílogandi“ „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Upplýsingagjöf „verulega áfátt“ Forseti Íslands minnist Björgvins Eldur kviknaði í skúr í Mosfellsdal Hafa ráðið einn erlendan lækni í fullt starf Boða til blaðamannafundar Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Nýjast á mbl.is » HM treyja Nike til vandræða Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Slot: „Finn fyrir stuðningi félagsins og stuðningsmanna“ Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ Umræðan Sleggjan sett á ESB-planið Gjaldmiðill og gengi á göflum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson Mest lesið Í gær Í vikunni „Það verður rautt ljós sílogandi“ „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Upplýsingagjöf „verulega áfátt“ Forseti Íslands minnist Björgvins Eldur kviknaði í skúr í Mosfellsdal Hafa ráðið einn erlendan lækni í fullt starf Boða til blaðamannafundar Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða

Share this article