Þeir sem lágu undir grun lögreglu um afbrot á árunum 2019 til 2025 eru í flestum tilfellum Íslendingar eða í 64% tilvika. Í 36% tilvika var hinn grunaði með erlent ríkisfang. Ekki allir sem grunaðir eru um afbrot hér á landi búa á landinu. Ekki er vitað hversu stór hluti erlendra ríkisborgara kemur sérstaklega hingað til lands til að fremja afbrot segir í tilkynningu frá lögreglu. Lögreglan birtir gögn um þetta í nýju mælaborði á vefsíðu sinni. Mælaborðið sýnir fjölda einstaklinga sem grunaðir voru um hegningarlaga- eða sérrefsilagabrot á árunum 2019 til 2025. Karlmenn í meirihluta í öllum brotaflokkum Alls falla 6000 undir grun að meðaltali ár hvert, bæði karlar og konur. 78% grunaðra eru karlmenn. Kynjahlutfallið er mismunandi eftir brotaflokkum. Sé horft til kynferðisbrota eru 94% þeirra sem falla undir grun lögreglu karlmenn. Þeir eru í meirihluta í öllum brotaflokkum en minnst er hlutfall þeirra innan auðgunarbrota. Þar eru þeir 72% af grunuðum en konur 28%. 25 til 34 ára oftast undir grun Sé horft til aldurshópa eru flestir á aldrinum 25–34 ára þeirra sem grunaðir eru af lögreglu um afbrot. Innan aldurshópsins 25 til 29 ára féllu 3713 undir grun lögreglu á árunum 2019 til 2025 en á aldursbilinu 30 til 34 ára voru það 3766. Fæstir eru á aldursbilinu 55 til 59 ára eða 1095 grunaðir á þessu tímabili. Fleiri féllu undir grun í aldursflokknum 60 ára og eldri eða alls 1475.