Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

16% ungra kvenna verða fyrir kynferðisofbeldi á ári hverju hérlendis

Read Full Article →

Um 7% Íslendinga verða fyrir ofbeldisbrotum á ári hverju samkvæmt þolendakönnun lögreglu. Þar er spurt út í upplifun fólks af líkamlegu ofbeldi, kynferðisofbeldi, ofbeldi af hendi maka og stafrænu ofbeldi. Rannveig Þórisdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs ríkislögreglustjóra, greindi frá tölfræði úr þolendakönnuninni í morgun, á landssamráðsfundi um aðgerðir til að draga úr og koma í veg fyrir ofbeldi. „Þegar við tökum öll ofbeldisbrot saman, þá sjáum við að um 7% Íslendinga upplifa ofbeldi árlega, einhverja tegund. Sem þýðir að þetta eru um 20 til 30 þúsund manns kannski á hverju ári,“ segir Rannveig. Könnunin sýnir að konur eru marktækt líklegri en karlar til að vera beittar ofbeldi. Tæplega átta prósent kvenna eru þolendur ofbeldisbrota á hverju ári og um sex prósent karla. Fólk í yngstu aldurshópunum er miklu líklegra til að vera beitt ofbeldi en þeir sem eldri eru. „Þegar við skoðum þetta eftir aldri og brotategundum þá sjáum við enn þá hærri tölur og sérstaklega til dæmis varðandi kynferðisofbeldi. 16% ungra kvenna eða kvenna á aldrinum 18-25 ára upplifa kynferðisofbeldi árlega. Mjög há tala. Mjög há tíðni,“ Samkvæmt gögnum úr könnuninni hefur tíðni ofbeldis ekki aukist að ráði á síðustu árum. Tilkynningum til lögreglu hefur aftur á móti fjölgað. Um áttatíu prósent grunaðra í ofbeldisbrotum eru karlar en tuttugu prósent konur. Sé aðeins horft til kynferðisbrota eru yfir níutíu prósent grunaðra karlar. Hægt er að horfa á erindi Rannveigar Þórisdóttur í meðfylgjandi myndbandi. Um 20 til 30 þúsund manns verða fyrir ofbeldi hér á landi á ári hverju samkvæmt þolendakönnun lögreglu. Ungt fólk er líklegra til að verða fyrir ofbeldi en þeir sem eldri eru.

Share this article