Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Magyar og Orban skiptast á skotum í aðdraganda kosninga

  • What: Political tensions in Hungary ahead of elections
  • Impact: Political developments in Hungary
Read Full Article →

Ásakanir um undirferli og óheiðarleg vinnubrögð eru farnar að setja mark sitt á lokasprettinn í kosningabaráttunni í Ungverjalandi. Þingkosningar verða þar á sunnudaginn, og óháðar skoðanakannanir benda til þess að stjórnarandstöðunni muni mögulega takast að velta Fidez-flokki Viktors Orban forsætisráðherra úr sessi, eftir sextán ára valdatíð. „Andstæðingar okkar beita öllum brögðum til að komast til valda,“ sagði Orban í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum í gær. Hann sakaði andstæðingar sína um að vinna með leyniþjónustum erlendra ríkja og hóta stuðninsmönnum sínum ofbeldi - án þess að færa nokkrar sönnur á það. „Þetta er skipuleg tilraun til að nota óreiðu, þrýsting og illan vilja erlendis frá til að draga vilja ungversku þjóðarinnar í efa,“ sagði Orban. Peter Magyar, leiðtogi Tisza-flokksins var fljótur til svara á samfélagsmiðlum: „Skipulegt undirferli Fidez flokksins undanfarna mánuði, aðgerðir leyniþjónustunnar, villandi upplýsingar og falsfréttir breyta því ekki að Tisza mun sigra í þessum kosningum,“ sagði Magyar, sem hvatti landsmenn sína til að láta ekki ögra sér, og krafðist þess að „fráfarandi forsætisráðherra viðurkenni úrskurð Ungverja með ró og virðingu.“

Share this article