Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Haraldur hættir sem bæjarstjóri Akraness

Read Full Article →

Bæjarstjórn Akraness og Haraldur Benediktsson hafa komist að samkomulagi um starfslok Haraldar sem bæjarstjóra Akraneskaupstaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu en starfslokin taka gildi í dag. Haraldur hafi ákveðið að bjóða sig fram til sveitarstjórnar í Hvalfjarðarsveit en Skessuhorn greinir frá því að Haraldur skipi oddvitasæti á A-lista Samhentrar sveitar. Bæjarstjórn var kunnugt að hann myndi ekki sækjast eftir áframhaldandi ráðningu á næsta kjörtímabili. „Bæjarstjórn óskar honum til hamingju með þá ákvörðun og þakkar um leið fyrir afar farsælt samstarf undanfarin þrjú ár. Haraldur hefur reynst góður bæjarstjóri sem hefur sinnt starfinu af bæði metnaði og alúð, Akraneskaupstað og íbúum á Akranesi til heilla. Jafnframt óska bæjarfulltrúar Haraldi gæfu og góðs gengis í þeim verkefnum sem framundan eru,“ segir í tilkyningunni. Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs og staðgengill bæjarstjóra verður starfandi bæjarstjóri fram yfir sveitarstjórnarkosningar sem fara fram þann 16. maí næstkomandi. Haraldur verður Steinari til halds og traust næstu vikurnar til að tryggja farsæla yfirfærslu þeirra verkefna sem nú eru á borði bæjarstjóra til staðgengils og annarra starfsmanna kaupstaðarins.

Share this article