Innlent | Kosningar | mbl | 22.4.2026 | 8:57 Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki „Ég sit undir mjög grófum árásum meðframbjóðenda minna eða Íbúalistans og dæmalaus grein birt á Skessuhorni í gær þar sem ráðist er að minni æru og sveitarfélaginu og ég sagði áðan að ég hef verið í 26 ár í allskonar pólitík og ég hef aldrei áður fengið svona í andlitið, það hafa alltaf verið málefni á milli.“ Þessum orðum fer Haraldur Benediktsson, oddviti framboðsins Samhentrar sveitar og um skrif sjö efstu frambjóðenda Í-listans, Íbúalistans sem, líkt og Samhent sveit býður fram í Hvalfjarðarsveit. Þar vísar hann í grein sem birt var á vef Skessuhorns þann 19. apríl síðastliðinn undir fyrirsögninni „Ásælnin á sér mörg andlit“ en í henni er látið að því liggja að Haraldur, sem verið hefur bæjarstjóri á Akranesi beri kápuna á báðum öxlum þegar komi að mögulegri sameiningu Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar. Þóra Margrét Júlíusdóttir og Haraldur Benediktsson ræða við Stefán Einar Stefánsson á Hótel Laxárbakka. mbl.is/Kristófer Liljar Ásælast tekjur Hvalfjarðarsveitar af Grundartanga Í greininni er vísað í þungan áróður af hálfu Skagamanna fyrir sameiningu og bent á að þar birtist ásælni í þær miklu tekjur sem Hvalfjarðarsveit hefur af stóriðjunni á Grundartanga. Segir í greininni meðal annar: „Það kom því mjög á óvart, eftir það sem hér að framan er lýst, þegar bæjarstjóri Akraneskaupstaðar var skyndilega horfinn á braut og samdægurs orðinn í stafni framboðs til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar með samheldnina sem helsta vopn. Eitt af helstu baráttumálunum er að koma í veg fyrir ásælni utanaðkomandi í tekjur stóriðjunnar á Grundartanga. Bragð er að þá barnið finnur. Hversu skjótt er hægt að draga nýjan fána að húni? Bæjarstjórn Akraness lýsti miklum hamingjuóskum með þessa ákvörðun bæjarstjórans. Eftir hvaða hamingju er beðið? Margar spurningar hafa vaknað sem vonandi verður svarað á komandi dögum.“ Kallar eftir skýringum Hafnar Haraldur þessum ásökunum alvarlega og í viðtali á vettvangi Morgunblaðsins kallar hann eftir því að oddviti Í-listans útskýri hvað felist í þessum orðum í sinn garð. Til svars er Þóra Margrét Júlíusdóttir. Víkur hún sér undan því í viðtalinu að nefna dæmi um framgöngu Haraldar sem eigi við þessa lýsingu. Hún er þó einn höfunda greinarinnar. Segist hún vilja svara honum í samráði við meðframbjóðendur sína. Orðaskiptin um þetta má sjá í spilaranum hér að ofan en allverulega hvessti á milli oddvitaframbjóðendanna þegar kom að umræðu um þetta mál. Viðtalið við þau má sjá og heyra í heild sinni hér: Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Rifust við áhöfn og meinað að fljúga Hvalavinir skora á Hönnu Katrínu Historic Fischer–Spassky score sheets sell for ISK 20 million Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Gott að Klopp sé ekki eins og Sir Alex Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Óljósir samningar um aðlögun „Öfgakennd forsjárhyggja“ Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leita ferðamanns í Þjórsárdal Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fyrstu spaðarnir komnir til landsins Fiskflutningabíll valt: Veginum lokað Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Vinsælum veitingastöðum lokað Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Rifust við áhöfn og meinað að fljúga Hvalavinir skora á Hönnu Katrínu Historic Fischer–Spassky score sheets sell for ISK 20 million Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Gott að Klopp sé ekki eins og Sir Alex Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás á Akureyri Leyndardómur aðlögunarinnar Þegar byrjað að treysta varnirnar Veiðar á langreyði áformaðar í sumar Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leita ferðamanns í Þjórsárdal Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fyrstu spaðarnir komnir til landsins Fiskflutningabíll valt: Veginum lokað Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Vinsælum veitingastöðum lokað Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set