Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tvö embætti dómara við Landsrétt laus til umsóknar

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 6 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Tvö emb­ætti dómara við Lands­rétt laus til um­sókn­ar Brynjólfur Þór Guðmundsson Dómsmálaráðuneytið hefur auglýst tvö embætti dómara við Landsrétt laus til umsóknar. Skipa á í annað embættið frá og með 1. september og getur áhugasamt fólk skilað inn umsókn til 15. apríl. Hægt er að sækja um hitt embættið til 13. apríl og verður skipað í það frá og með 5. október. Hús Landsréttar. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 13 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Lars Løkke Rasm­us­sen setur af­ar­kosti Leiðtogi Moderaterne, Lars Løkke Rasmussen, vill að hægriflokkunum Venstre og Konservative verði boðið til stjórnarmyndunarviðræðna í Danmörku. Að öðrum kosti ætlar hann ekki að mæta á fleiri fundi um myndun ríkisstjórnar. Fyrir 19 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fram­boðs­list­ar til­bún­ir: Fimm stærstu sveit­ar­fé­lög­in Í dag var síðasti dagur til að skila framboði til sveitarstjórnarkosninganna í vor. Fresturinn rann út á hádegi. Fyrir 28 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Lund­inn er kominn til lands­ins Lundinn er kominn til landsins. Það sást til hans í gær úti í Grímsey og á Borgarfirði eystra. Forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands segir að honum stafi lítil hætta af snjóþyngslum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hættir sem bæj­ar­stjóri á Skag­an­um og fer í fram­boð í Hval­fjarð­ar­sveit Haraldur Benediktsson hættir sem bæjarstjóri á Akranesi í dag. Hann fer í framboð til sveitarstjórnar í nágrannasveitarfélaginu Hvalfjarðarsveit. Sveitarstjórinn í Hvalfjarðarsveit hyggst hætta í lok kjörtímabilsins. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Kona hand­tek­in í tengsl­um við birt­ingu falskr­ar dán­ar­til­kynn­ing­ar Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið konu sem grunuð er um umsáturseinelti gegn fjölda fólks. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir henni í dag. Þetta ákvað lögreglan eftir að fölsk dánartilkynning birtist í Morgunblaðinu. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Unicef: Áhrif árása Ísra­ela á Líban­on tor­tím­andi og ómann­úð­leg Ísraelar hafa drepið eða sært 600 börn í Líbanon síðan 2. mars. Í tilkynningu minnir Unicef á mikilvægi þess að virða alþjóðalög. Vernda eigi almenna borgara, og þar með börn. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Magyar og Orban skipt­ast á skotum í að­drag­anda kosn­inga Leiðtogar stjórnmálaflokkanna tveggja sem keppast um hylli kjósenda í Ungverjalandi ásaka hvor annan um undirferli í aðdraganda þingkosninganna á sunnudag. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Sam­lags­fé­lag eig­in­manns Ölmu fékk 28 millj­óna verk­taka­greiðsl­ur til við­bót­ar Heildarumfang verktakagreiðslna til lækna frá Sjúkrahúsinu á Akureyri liggur ekki fyrir þar sem stofnunin neitar að segja frá þeim. Einungis liggja fyrir greiðslur til samlagsfélags heilbrigðisráðherra og eiginmanns hennar. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Frið­rik Dór prófar sig áfram með pens­il­inn Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson sýndi á sér nýja hlið í Miðstöðinni sem hóf göngu sína í sjónvarpinu í gærkvöldi. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Lækka skatta á bensín tíma­bund­ið Atvinnustefna Íslands og tímabundnar efnahagsaðgerðir gegn verðbólgu verða tilkynntar á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag klukkan 11:30. Í Atvinnustefnu verður vaxtarstefna Íslands til næstu 10 ára kynnt. Tímabundnum efnahagsaðgerðum er að sögn forsætisráðherra ætlað að vera mótvægi við óvissu og verðhækkunum á olíu á heimsvísu. Efnt verður til þríhliða samtals Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og stjórnvalda um að hemja verðbólgu. FRÉTTAVAKT Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ís­lend­ing­ar í meiri­hluta yfir þá sem grun­að­ir eru um afbrot Ríkisfang þeirra sem grunaðir voru um afbrot á árunum 2019 til 2025 er í 64% tilvika íslenskt. Í 36% tilvika var það erlent. Þetta kemur fram í gögnum lögreglu. Karlar eru í meirihluta yfir þá sem grunaðir eru um afbrot í öllum brotaflokkum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Hæstu launin í fjár­mála­kerf­inu en lægstu á hót­el­um og veit­inga­stöð­um Brynjólfur Þór Guðmundsson Hagstofan birti í dag launakostnað á hverja unna stund á síðasta ári. Meðalvinnustundin kostaði atvinnurekendur 8.653 krónur þegar allt var talið: laun, tryggingagjald, mótframlag í lífeyrissjóð, orlofs- og veikindagreiðslur og greiðslur í ýmsa sjóði stéttarfélaganna. Hagstofan greinir kostnað eftir atvinnugreinum. Hæstur var hann á hverja unna stund í fjármála- og vátryggingastarfsemi, 12.004 krónur að meðaltali. Næst komu rafmagns-, gas- og hitaveitur (11.433) og sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi (10.301). Lægstur var kostnaðurinn á gististöðum og í veitingarekstri (6.426) og menningar-, íþrótta- og tómstundastarfsemi (7.792). Hæstu launin eru greidd hjá fjármála- og vátryggingafyrirtækjum. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Golf Mc­Il­roy byrjar tit­il­vörn­ina vel á Masters Einar Örn Jónsson Mastersmótið í golfi, fyrsta risamót ársins í karlaflokki, hófst í gær á Augusta National vellinum í Georgíuríki Bandaríkjanna. Norður-Írinn Rory McIlroy, sem vann mótið í fyrra, byrjaði mótið vel í ár. Hann lék fyrsta hring á 5 höggum undir pari og er efstur eftir fyrsta hring ásamt Sam Burns frá Bandaríkjunum. Næstir koma Kurt Kitayama, Jason Day og Patrick Reed á þremur undir pari en aðeins 16 af 91 keppanda mótsins léku undir pari á fyrsta hring. Keppni heldur áfram í dag og mótinu lýkur svo á sunnudag þegar sigurvegarinn verður klæddur hinum sögufræga græna jakka mótsins. Norður Írinn Rory McIlroy fagnar fugli á 15. braut Augusta National í gær. AP / David J. Phillip Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Besta deild karla hefst í kvöld Keppni hefst í kvöld í Bestu deild karla í fótbolta. Það er enginn smáleikur sem hleypir Íslandsmótinu af stað því það eru Íslandsmeistarar síðustu fimm ára sem eigast við. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Kynna skýrsl­ur um end­ur­reisn Grinda­vík­ur Brynjólfur Þór Guðmundsson Grindavíkurnefnd ætlar í dag að kynna tvær skýrslur um endurreisn bæjarins. Þær bera heitin Endurreisn Grindavíkur – Rammaáætlun, og Ráðgjafarskýrsla Alþjóðabankans um endurreisn Grindavíkur. Skýrslurnar hafa verið kynntar ríkisstjórn og bæjaryfirvöldum í Grindavík en verða kynntar á blaðamannafundi síðdegis. Þar ætlar Grindavíkurnefnd að gera grein fyrir helstu niðurstöðum og tillögum um næstu skref í endurreisninni. Grindavík að vetri. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Íris verður bæj­ar­stjóra­efni Sjálf­stæð­is­manna Íris Róbertsdóttir verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í kosningum í vor. Hún hefur verið bæjarstjóri í meirihlutasamstarfi Fyrir Heimaey og Eyjalistans síðustu átta ár. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Trúarbrögð „Þetta mótaði mig al­gjör­lega og gerði mig að því sem ég er í dag“ Þegar Jónas Sen var 26 ára missti hann eiginkonu sína í bílslysi. Hann reyndi lengi að skilja vilja Guðs og þróaði með sér dauðaótta. Hann hefur ávallt verið andlega leitandi og eftir þessar hremmingar fann hann hugleiðslu og seinna meir kirkjuna. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Vakn­aði og sá andlát sitt til­kynnt í Morg­un­blað­inu Morgunblaðið birti dánartilkynningu í morgun um mann sem ekki er látinn. Maðurinn sakar tvær konur um að standa að baki tilkynningunni. Önnur þeirra hefur verið kærð af minnst sjö mönnum fyrir umsáturseinelti. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Sam­eig­in­leg ábyrgð allra að láta tækn­ina þjóna mann­in­um en ekki öfugt Forseti segir Ísland hafa ýmsa burði til að vera í fararbroddi þegar kemur að ábyrgri nýtingu gervigreindar. Hún segir að samfélagið þurfi að móta skýra stefnu um ábyrga og gagnlega notkun hennar. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Brýnt að efla ráð­gjöf um þagn­ar­skyldu lækna Sérfræðilæknir segir lækna þurfa meiri stuðning til að meta hvenær rjúfa eigi þagnarskyldu. Flóknara sé þegar mál varði ofbeldi gegn fullorðnum en börnum því tilkynningarskylda í barnaverndarlögum gangi framar ákvæðum um þagnarskyldu í siðareglum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Él framan af en léttir til þegar líður á daginn Útlit er fyrir tiltölulega rólegt veður í dag, sérstaklega seinnipartinn þegar léttir til og dregur úr vindi. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Næst­hæsti með­al­hiti sjávar í mars­mán­uði Brynja Dögg Friðriksdóttir AARON FAVILA/AP Meðalhitastig sjávar var 20.97°c gráður í mars sem er næsthæsta hitastig sjávar sem mælst hefur í marsmánuði, samkvæmt upplýsingum frá Kópernikusi, loftslagstofnunar Evrópu. Þetta er jafnframt hæsta hitastig sjávar í marsmánuði síðan 2024, en það ár féllu mörg hitamet víða um heim. Hitastig sjávar bendir til breytinga á veðurfyrirbrigðinu El Nino sem á upptök sín í Kyrrahafinu og hefur áhrif á hita og öfgar í veðri á jörðinni. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Vill að Taívan og Kína vinni saman að því að fyr­ir­byggja stríð Leiðtogi stjórnarandstæðinga í Taívan fundaði með Xi Jinping í Peking í dag. Hún segir að stjórnvöld í Kína og Taívan eigi að leita lausna til að koma í veg fyrir stríð. Forseti Kína hefur fulla trú á að þjóðirnar verði sameinaðar. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Japan Jap­an­ar losa aftur neyð­ar­birgð­ir af olíu Brynja Dögg Friðriksdóttir Sanae Takaichi forsætisráðherra Japan. EPA / Kimimasa Mayama Japanar ætla að losa neyðarbirgðir af olíu og setja í umferð í byrjun maí. Forsætisráðherra Japan, Sanae Takaichi, tilkynnti um þessa ákvörðun í dag. Magnið jafnast á við 20 daga notkun af hráolíu. Þetta er í annað sinn sem stjórnvöld nýta olíubirgðir landsins, en í mars var olía sett í umferð sem jafngildir 15 daga notkun. Um 95% af allri innfluttri olíu Japana kemur frá Mið-Austurlöndum. Hækkandi olíuverð hefur haft mikil áhrif í Japan og því ákváðu stjórnvöld að losa um olíubirgðirnar til að stemma stigu við verðhækkunum. 10. apríl 2026 kl. 3:45E

Share this article