Innlent | mbl | 10.4.2026 | 14:00 Enn mikil óvissa og ekki mælt með að barnafjölskyldur flytji í bæinn Grindavíkurnefnd fékk það verkefni af forsætisráðherra að vinna rammaáætlun um endurreisn samfélagsins í Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Yfir 24 milljón rúmmetrar hafa safnast saman „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Rúmlega 200 skjálftar hafa mælst Getur hæglega endað með gosi Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip » Fleiri tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Meira en helmings fækkun Þekkt leikkona styður Grindavík Framboðsfrestur í Grindavík að renna út Óviss um öryggi barna og gagnrýnir Veðurstofuna Skora á bæjarstjórn að upplýsa um endurreisn bæjarins » Fleiri tengdar fréttir Grindavíkurnefnd hefur kynnt skýrslu sína um endurreisn Grindavíkur. Nefndin tekur fram að skýrslan beri þess merki að náttúruhamförum sé ekki lokið og mikil óvissa ríki um þróunina á næstunni. Þar kemur m.a. fram að ríkið verði að koma að endurreisn bæjarins og þá mælir nefndin ekki með að barnafjölskyldur flytji þangað meðan óvissa vari. Þá er tekið fram að allar ákvarðanir í endurreisnarferli þurfi að setja öryggi í fyrsta sæti. Boðað var til blaðamannafundar í dag þar sem nefndin kynnti skýrslu sína, Endurreisn Grindavíkur – Rammaáætlun , og Ráðgjafarskýrslu Alþjóðabankans um endurreisn Grindavíkur sem kynnt hefur verið ríkisstjórn og bæjaryfirvöldum í Grindavík. Nefndin segir að öryggi eigi að vera í forgangi í öllum ákvörðunum um endurreisn, þjónustu, atvinnu og uppbyggingu. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja öryggi í fyrsta sæti „Grindavíkurnefnd fékk það verkefni af forsætisráðherra að vinna rammaáætlun um endurreisn samfélagsins í Grindavík. Sú skýrsla sem hér liggur fyrir ber þess merki að náttúruhamförum er ekki lokið og mikil óvissa ríkir um þróunina á næstunni. Þau leiðarljós sem hér eru sett fram verða því að skoðast í þessu ljósi óvissu. Allar ákvarðanir í endurreisnarferli þurfa að setja öryggi í fyrsta sæti. Um leið er nauðsynlegt að búa svo um hnúta að Grindavík taki markviss skref á þeirri vegferð að þar verði aftur blómleg byggð og farsælt samfélag. Í þessari rammaáætlun er þess freistað að feta jafnvægið milli ólíkra sjónarmiða og hagsmuna þannig að uppbygging og endurreisn eigi sér stað á forsendum öryggis og farsældar til framtíðar,“ segir í inngangi skýrslunnar. Tilgangur rammaáætlunarinnar er að: Meta stöðu samfélagsins og forsendur endurreisnar. Skilgreina leiðarljós, markmið og forgangsverkefni næstu ára. Skapa sameiginlega framtíðarsýn sem leiðarvísi fyrir nýja bæjarstjórn eftir kosningarnar 16. maí 2026 Styrkja traust og fyrirsjáanleika fyrir íbúa, fyrirtæki og stjórnvöld. Gera þarf sjálfstætt og ítarlegt áhættumat Í framhaldinu eru dregnar saman helstu tillögur og ábendingar Grindavíkurnefndar sem nánar sé gerð grein fyrir í skýrslunni. Þar segir m.a. að gera þurfi sjálfstætt og ítarleg áhættumat samkvæmt viðurkenndum stöðlum með skýrum upplýsingum fyrir almenning. Lagt er til að almannavarnadeild ríkislögreglustjóra taki við þeirri ábyrgð þegar Grindavíkurnefnd lýkur störfum. Nefndin segir að öryggi verði að vera í forgangi í öllum ákvörðunum um endurreisn, þjónustu, atvinnu og uppbyggingu. Fullorðið fólk getur tekið upplýsta ákvörðun um búsetu í Grindavík en ekki er mælt með að barnafjölskyldur flytji þangað meðan óvissa varir. Grindavík Niðurrif á Mánagerði 2 er þegar komið langt á veg og búið að fjarlægja þakjárnið af Mánagötu 19. mbl.is/Eyþór Tryggja þarf mælanlega eftirfylgni með félagslegum áhrifum Þá segir nefndir að tryggja þurfi skipulagða og mælanlega eftirfylgni með félagslegum áhrifum hamfaranna, þannig að hægt sé að greina breytingar í þjónustuþörf og bregðast við þeim á markvissan hátt. Einnig er kemur fram að félagsleg staða og líðan barna eftir rýmingu kalli á samræmda og markvissa íhlutun. Tryggja þurfi kerfisbundna eftirfylgni með stöðu þeirra til lengri tíma. Hvað varðar innviði og veitukerfi Grindavíkur þá segir nefndin að tryggja þurfi öruggan rekstur grunninnviða: rafveitu, vatnsveitu, fráveitu og fjarskipta. Einnig þurfi að styrkja raforkuinnviði, m.a. með nýrri flutningsleið frá Svartsengi og hringtengingu raforkukerfisins. Fullorðið fólk geti tekið upplýsta ákvörðun en barnafjölskyldur haldi sig fjarri Varðandi húsnæðismál þá segir nefndin að fullorðið fólk geti tekið upplýsta ákvörðun um búsetu í Grindavík, en ekki sé mælt með að barnafjölskyldur flytji þangað meðan óvissa vari. Þá megi heimila sölu og leigu húsnæðis, en með skýrum fyrirvara um óvissu og mögulega rýmingu. Bæta þarf aðgengi fyrirtækja að fjármögnun og tryggingum, annars veikist rekstrargrundvöllur þeirra. mbl.is/Sigurður Bogi Bærinn ræður ekki einn við fjármögnun endurreisnar Þegar horft er til atvinnulífs bæjarins þá leggur nefndin til að það megi halda áfram fjölbreyttum atvinnurekstri innan marka áhættumats, en með frekari öryggisráðstöfunum megi auka svigrúm atvinnulífsins, sérstaklega í ferðaþjónustu. Þá þurfi að bæta aðgengi fyrirtækja að fjármögnun og tryggingum, annars veikist rekstrargrundvöllur þeirra. Þegar horft er á fjárhag Grindavíkurbæjar þá segir nefndin að bærinn ráði ekki einn við fjármögnun endurreisnar. Ríkið þurfi að koma að henni með markvissum og fyrirsjáanlegum hætti. Þá þurfi að endurskoða tekjustofna sveitarfélagsins þar sem þeir endurspegli ekki raunveruleg umsvif. Einnig þurfi að skoða áhrif þess að eignir Þórkötlu séu undanþegnar fasteignagjöldum og finna leiðir til að jafna tekjutap. Veðurstofan hefur kynnt fjórar sviðsmyndir fyrir næstu 6–12 mánuði. Líklegasta sviðsmyndin er eldgos eða kvikuhlaup á Sundhnúksgígaröðinni, þar sem aðdragandi getur verið mjög stuttur og gos jafnvel stærra en áður vegna uppsafnaðrar kviku. mbl.is/Árni Sæberg Fjórar sviðsmyndir Veðurstofu Íslands Í skýrslunni er farið yfir sviðsmyndir Veðurstofunnar. Þar segir að staða jarðhræringa á Reykjanesi einkennist af áframhaldandi kvikusöfnun undir Svartsengi og viðvarandi landrisi. Þrátt fyrir að innstreymi kviku hafi dregist saman með tíma heldur kvikumagnið áfram að aukast og óvenju langt goshlé er ekki talið merki um að goshrinunni sé að ljúka. Þá segir að óvissa um tímasetningu næsta goss hafi aukist samhliða hægara innstreymi. „Veðurstofan hefur kynnt fjórar sviðsmyndir fyrir næstu 6–12 mánuði. Líklegasta sviðsmyndin er eldgos eða kvikuhlaup á Sundhnúksgígaröðinni, þar sem aðdragandi getur verið mjög stuttur og gos jafnvel stærra en áður vegna uppsafnaðrar kviku. Önnur sviðsmynd er að kvikusöfnun haldi áfram án goss, en hún er talin síður líkleg. Þriðja sviðsmyndin gerir ráð fyrir að gos verði utan núverandi kvikugangs, t.d. í Eldvörpum, við Þorbjörn eða Svartsengi, en þessi sviðsmynd er talin ólíkleg. Fjórða sviðsmyndin miðar við að eldvirkni hefjist samtímis í öðrum kerfum á Reykjanesskaga en Veðurstofan metur þennan möguleika mjög ólíklegan á meðan kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi,“ segir í skýrslunni. Einnig kemur fram að þótt kvikusöfnun stöðvist sé ekki hægt að útiloka að hún hefjist aftur síðar og eldgos gæti þá færst yfir í önnur eldstöðvakerfi. Sagan sýni að slík gosskeið geta staðið í áratugi eða aldir með löngum hléum. Heildarniðurstaða Veðurstofunnar er sú að eldgos á Sundhnúksgígaröðinni er talin líklegust, en óvissa er veruleg og vöktun og viðbragðsviðbúnaður eru lykilatriði á meðan kvikusöfnun heldur áfram. Grindavíkurnefndin telur því óhjákvæmilegt að varúðar- og öryggissjónarmið verði í forgrunni við endurreisn samfélagsins,“ segir í skýrslunni. Grindavíkurnefndin var sett á laggirnar við fordæmalausar aðstæður. Hún hefur því þurft að spinna margt af fingrum fram um leið og sótt hefur verið í reynslu þeirra sem besta þekkingu hafa á sviði áfalla- og hamfaramála, jarðfræði, reksturs sveitarfélags o.s.frv. mbl.is/Árni Sæberg Þurft að spinna margt af fingrum fram Í lok skýrslunnar er bent á að Grindavíkurnefndin hafi verið sett á laggirnar við fordæmalausar aðstæður og eigi sér ekki fyrirmynd, hvorki hér á landi né erlendis að því er séð verði. „Hún hefur því þurft að spinna margt af fingrum fram um leið og sótt hefur verið í reynslu þeirra sem besta þekkingu hafa á sviði áfalla- og hamfaramála, jarðfræði, reksturs sveitarfélags o.s.frv. Hefur nefndin á starfstíma sínum átt mikið og þétt samstarf og samráð við fjölmarga aðila, bæði í Grindavík og utan,“ segir í skýrslunni. Endurreisn Grindavíkur - Rammaáætlun Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Yfir 24 milljón rúmmetrar hafa safnast saman „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Rúmlega 200 skjálftar hafa mælst Getur hæglega endað með gosi Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip » Fleiri tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Meira en helmings fækkun Þekkt leikkona styður Grindavík Framboðsfrestur í Grindavík að renna út Óviss um öryggi barna og gagnrýnir Veðurstofuna Skora á bæjarstjórn að upplýsa um endurreisn bæjarins » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Valið kom skemmtilega á óvart Ekki mælt með að barnafjölskyldur flytji í bæinn Ástin með flestar tilnefningar Lars Løkke hleypir öllu í bál og brand Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Umræðan Sleggjan sett á ESB-planið Gjaldmiðill og gengi á göflum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kynna aðgerðir í efnahagsmálum á morgun Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Ekki mælt með að barnafjölskyldur flytji í bæinn Mest lesið Í gær Í vikunni Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? „Það verður rautt ljós sílogandi“ „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á