Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mæla ekki með því að barnafjölskyldur flytjist til Grindavíkur meðan óvissa varir

Read Full Article →

Ekki er mælt með því að barnafjölskyldur flytji aftur til Grindavíkur á meðan óvissa varir og móta þarf sambærilegt fyrirkomulag fyrir eldgos og jarðhræringar og gildir um ofanflóð. Þetta er meðal þess sem Grindavíkurnefnd mælist til að sé gert í rammaáætlun sinni um endurreisn Grindavíkur sem kynnt var í dag. Samhliða henni var ráðgjafaskýrsla Alþjóðabankans um endurreisn Grindavíkur einnig kynnt. Þar segir að stjórnvöld þurfi að undirbúa viðbragðsáætlanir fyrir fleiri möguleg gos- og hættusvæði á Reykjanesskaga, jafnvel samtímis. Þarf að styrkja raforkuinnviði og tryggja varavatnsból Tilgangur rammaáætlunarinnar um endurreisn bæjarins er meðal annars sá að meta stöðu samfélagsins og forsendur endurreisnar, skilgreina forgangsverkefni og skapa sameiginlega framtíðarsýn. Í rammaáætluninni er bent á það að tryggja þurfi öruggan rekstur grunninnviða – rafveitu, vatnsveitu, fráveitu og fjarskipti – auk þess að styrkja þurfi raforkuinnviði. „Meðal annars með nýrri flutningsleið frá Svartsengi og hringtengingu raforkukerfisins.“ Halda þurfi áfram „af fullum þunga“ með nýtt varavatnsból. Hætta er á að vatnsbólið í Lágum spillist vegna eldsumbrota og borun eftir neysluvatni hófst á Vatnsheiði í febrúar. „Gert er ráð fyrir að sú staðsetning henti fyrir framtíðarvatnsból bæjarins.“ Bærinn getur ekki fjármagnað endurreisn einn Grindavíkurbær ræður ekki einn við það að fjármagna endurreisnina, að mati nefndarinnar. „Ríkið þarf að koma að henni með markvissum og fyrirsjáanlegum hætti.“ Bent er á að endurskoða þurfi tekjustofna sveitarfélagsins og hefja formlegar viðræður ríkis og sveitarfélags um fjárhagslegar forsendur næstu ára. Að mati nefndarinnar má auka og dýpka samstarf sveitarfélaga á Reykjanesi til að bæta þjónustu, hagkvæmni og faglegt umhverfi. Þá þurfi að styrkja stjórnsýslu og getu sveitarfélagsins til að sinna nauðsynlegum verkefnum. „Halda má áfram fjölbreyttum atvinnurekstri innan marka áhættumats,“ segir í skýrslunni. Þá segir að með frekari öryggisráðstöfunum megi auka svigrúm atvinnulífs. Nefndin vill að stutt verði markvisst við uppbyggingu ferðaþjónustu auk þess sem skilyrði fyrir fiskeldi og tengda starfsemi verði bætt – meðal annars með öruggri orku, lóðum og bættri höfn. Skólastarf hefjist ekki fyrr en „áhættumat gefur tilefni til“ Í rammaáætluninni segir að styrkja þurfi leiðir sem stuðla að félagslegum tengslum Grindvíkinga og tryggja þurfi skipulagða og mælanlega eftirfylgni með félagslegum áhrifum hamfaranna. Grindavíkurnefnd vill að kerfisbundin eftirfylgni verði með félagslegri stöðu og líðan barna. Tryggja þurfi öryggi þeirra en ekki er mælt með því að skólastarf hefjist fyrr en „áhættumat gefur tilefni til“. Nefndin mælir sem sagt gegn því að barnafjölskyldur flytji aftur í bæinn á meðan óvissa varir. Fullorðið fólk geti hins vegar tekið upplýsta ákvörðun um búsetu í bænum. „Mikilvægt er að eyða allri óvissu um tryggingavernd, bæði fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði,“ segir í skýrslunni auk þess sem bankar þurfi að vera reiðubúnir að veita lán til fasteignakaupa og uppbyggingar.

Share this article