Oddvitar framboða í Grindavík eru sammála um að endurreisn bæjarins verði ærið verkefni og segja mikilvægt að vinna saman að því að gera Grindvíkingum kleift að snúa aftur heim. Oddvitaumræður fóru fram í Grindavík í dag og vakti athygli hve fá ágreiningsefnin voru og virðast oddvitarnir sjá fram á gott samstarf sama hver niðurstaða sveitarstjórnarkosninganna verður. Enginn þeirra útilokaði að vinna með öðrum flokki. „Það hefur verið lítil pólitík í Grindavík,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins. Grindavík sé á mikilvægum tímamótum þar sem samstarf við ríkisstjórnina skipti sköpum. Húsnæðismálin verða brýnust á komandi kjörtímabili, segir Guðbjörg Eyjólfsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins. Þau þurfi að liggja skýrt fyrir svo Grindvíkingar geti snúið aftur heim. „Það hefur verið lítil pólitík í Grindavík,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins. Lítið var um ágreiningsefni í oddvitaumræðum í Grindavík í kvöld og eru þeir staðráðnir í að vinna saman að uppbyggingu og endurreisn. „Við væntum þess að ríkið verði áfram samvinnuþýtt,“ segir Guðbjörg. „Þetta er gríðarlegt verkefni.“ Magnús Már Jakobsson, oddviti Miðflokksins, segir ríkið þurfa að hlusta á Grindvíkinga, til að mynda hvað varðar öryggismál. Hann er ósammála mati Grindavíkurnefndarinnar sem telur ekki tímabært að hefja skólahald í bænum fyrr en áhættumat gefi tilefni til. „Bæjarstjórnin er búin að setja stefnuna, við ætlum að opna skóla og við eigum alla innviði til þess,“ segir Magnús. Það sé ágalli á áhættumati nefndarinnar að ekki sé litið til þess hvaða bjargir séu til staðar.