Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kostnaður við endurreisn óljós

Read Full Article →

Innlent | mbl | 10.4.2026 | 18:28 Kostnaður við endurreisn óljós Horft yfir Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Ekki liggur fyrir kostnaðaráætlun eða tímarammi fyrir endurreisn Grindavíkur. Árni Þór Sigurðsson formaður Grindavíkurnefndar segir nánast ógerning að spá um hvenær endurreisninni verði lokið og hvað hún muni kosta. „Auðvitað hefur miklum fjármunum verið varið í aðgerðir í Grindavík nú þegar. Ríkisvaldið hefur auðvitað gert það með uppkaupum á íbúðarhúsnæði til þess að koma fólki í skjól. Þetta er risavaxin björgunaraðgerð. Varnargarðarnir eru auðvitað mjög stór aðgerð líka. Þetta eru langstærstu aðgerðir sem hefur verið ráðist í og ríkið hefur staðið straum af. Aðrar aðgerðir eins og til dæmis viðgerðir á götum, stígum og lóðum og að styðja við fólk með sálfélagslegum stuðningi kosta auðvitað pening en það eru ekki stórar upphæðir í samhengi við það sem er búið að leggja í samfélagið og innviðina í Grindavík,“ segir Árni. Hann bætir við að tímaramminn sé að miklu leyti í höndum náttúrunnar. Frétt af mbl.is Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Kalla eftir ásættanlegu áhættumati Grindavíkurnefnd kynnti í dag skýrslu um endurreisn Grindavíkur. Í skýrslunni kemur fram að ef litið er til fjárhags Grindavíkurbæjar geti bærinn ekki einn ráðið við fjármögnun endurreisnarinnar. Ríkið þurfi að koma að henni með markvissum og fyrirsjáanlegum hætti. Í skýrslunni er einnig vikið að öryggi og áhættu í bænum þar sem segir m.a. að gera þurfi sjálfstætt og ítarlegt áhættumat samkvæmt viðurkenndum stöðlum fyrir bæinn. Þá er einnig lagt til að mótað verði sambærilegt fyrirkomulag fyrir eldgos og jarðhræringar og gildir um ofanflóð, m.a. um fjármögnun og skilgreiningu á ásættanlegri áhættu. Spurður hvort hægt sé að gera ásættanlegt áhættumat fyrir jarðhræringar og eldgos, eins og er fyrir ofanflóð, þar sem um sé að ræða tvær ólíkar náttúruhamfarir, segir Árni að þrátt fyrir það ætti að vera hægt að setja einhvers konar viðmið. „Þetta er önnur tegund af áhættu en einhvers konar viðmið þyrfti að vera hægt að útbúa. Í áhættumatinu sem hefur verið gefið út er mismunandi áhættustig fyrir mismunandi hópa í Grindavík nú þegar, inni í Grindavík,“ segir Árni. Minni áhætta er fyrir þá sem hafa alla tíð búið á svæðinu og þekkja vel aðstæður en áhættan er meiri fyrir börn og ferðamenn sem þekkja ekki aðstæður. „En þetta þarf að þróast áfram og við teljum að það sé tilefni til þess að gera það,“ segir Árni. Frétt af mbl.is Ekki mælt með að barnafjölskyldur flytji í bæinn Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Erfitt að spá fyrir um samfélagið Eins og áður segir fjallar skýrslan um hvernig megi endurreisa Grindavík. Aðspurður segir Árni erfitt að segja til um hvernig samfélagið í Grindavík muni líta út eftir endurreisn. Fjögur þúsund manns voru búsettir í bænum fyrir rýmingu árið 2023 en ekki er hægt að segja til um hversu margir muni snúa aftur eða hvernig samsetning íbúa verði. Ljúka brátt störfum Grindavíkurnefnd var skipuð tímabundið og mun nefndin ljúka störfum í lok maímánaðar. Verkefni nefndarinnar munu mörg fara til bæjarstjórnar Grindavíkur og önnur verða áfram hjá ríkinu. Málefni Grindavíkur heyrir nú undir forsætisráðuneytið og kemur það í hlut ráðuneytisins að ákveða hvernig verkefnum sem heyra undir ríkið verður skipt. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Valdís nýr formaður KÍO Víkingur R. – Breiðablik kl. 19.15, bein lýsing Grindavík – Njarðvík kl. 19, bein lýsing Haukar – FH kl. 19, bein lýsing Uppselt á leikinn í kvöld Umræðan Sleggjan sett á ESB-planið Gjaldmiðill og gengi á göflum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Styrkir samtökin um 25 milljónir Samkomulagi náð í Sundahöfn og verkfalli frestað „Var kannski ekki efst á óskalistanum hjá okkur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu „Það verður rautt ljós sílogandi“ 15,9 milljarða króna samningur „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Nýjast á mbl.is » Valdís nýr formaður KÍO Víkingur R. – Breiðablik kl. 19.15, bein lýsing Grindavík – Njarðvík kl. 19, bein lýsing Haukar – FH kl. 19, bein lýsing Uppselt á leikinn í kvöld Umræðan Sleggjan sett á ESB-planið Gjaldmiðill og gengi á göflum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Yfirlýsing Melaniu Trump í heild sinni Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Mest lesið Í gær Í vikunni Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu „Það verður rautt ljós sílogandi“ 15,9 milljarða króna samningur „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða

Share this article