Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 41 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Kynna skýrslur um endurreisn Grindavíkur Brynjólfur Þór Guðmundsson Grindavíkurnefnd ætlar í dag að kynna tvær skýrslur um endurreisn bæjarins. Þær bera heitin Endurreisn Grindavíkur – Rammaáætlun, og Ráðgjafarskýrsla Alþjóðabankans um endurreisn Grindavíkur. Skýrslurnar hafa verið kynntar ríkisstjórn og bæjaryfirvöldum í Grindavík en verða kynntar á blaðamannafundi síðdegis. Þar ætlar Grindavíkurnefnd að gera grein fyrir helstu niðurstöðum og tillögum um næstu skref í endurreisninni. Grindavík að vetri. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 15 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Hæstu launin í fjármálakerfinu en lægstu á hótelum og veitingastöðum Brynjólfur Þór Guðmundsson Hagstofan birti í dag launakostnað á hverja unna stund á síðasta ári. Meðalvinnustundin kostaði atvinnurekendur 8.653 krónur þegar allt var talið: laun, tryggingagjald, mótframlag í lífeyrissjóð, orlofs- og veikindagreiðslur og greiðslur í ýmsa sjóði stéttarfélaganna. Hagstofan greinir kostnað eftir atvinnugreinum. Hæstur var hann á hverja unna stund í fjármála- og vátryggingastarfsemi, 12.004 krónur að meðaltali. Næst komu rafmagns-, gas- og hitaveitur (11.433) og sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi (10.301). Lægstur var kostnaðurinn á gististöðum og í veitingarekstri (6.426) og menningar-, íþrótta- og tómstundastarfsemi (7.792). Hæstu launin eru greidd hjá fjármála- og vátryggingafyrirtækjum. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 17 mínútumÍÞRÓTTIR Golf McIlroy byrjar titilvörnina vel á Masters Einar Örn Jónsson Mastersmótið í golfi, fyrsta risamót ársins í karlaflokki, hófst í gær á Augusta National vellinum í Georgíuríki Bandaríkjanna. Norður-Írinn Rory McIlroy, sem vann mótið í fyrra, byrjaði mótið vel í ár. Hann lék fyrsta hring á 5 höggum undir pari og er efstur eftir fyrsta hring ásamt Sam Burns frá Bandaríkjunum. Næstir koma Kurt Kitayama, Jason Day og Patrick Reed á þremur undir pari en aðeins 16 af 91 keppanda mótsins léku undir pari á fyrsta hring. Keppni heldur áfram í dag og mótinu lýkur svo á sunnudag þegar sigurvegarinn verður klæddur hinum sögufræga græna jakka mótsins. Norður Írinn Rory McIlroy fagnar fugli á 15. braut Augusta National í gær. AP / David J. Phillip Fyrir 39 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Besta deild karla hefst í kvöld Keppni hefst í kvöld í Bestu deild karla í fótbolta. Það er enginn smáleikur sem hleypir Íslandsmótinu af stað því það eru Íslandsmeistarar síðustu fimm ára sem eigast við. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna Íris Róbertsdóttir verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í kosningum í vor. Hún hefur verið bæjarstjóri í meirihlutasamstarfi Fyrir Heimaey og Eyjalistans síðustu átta ár. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Trúarbrögð „Þetta mótaði mig algjörlega og gerði mig að því sem ég er í dag“ Þegar Jónas Sen var 26 ára missti hann eiginkonu sína í bílslysi. Hann reyndi lengi að skilja vilja Guðs og þróaði með sér dauðaótta. Hann hefur ávallt verið andlega leitandi og eftir þessar hremmingar fann hann hugleiðslu og seinna meir kirkjuna. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Vaknaði og sá andlát sitt tilkynnt í Morgunblaðinu Morgunblaðið birti dánartilkynningu í morgun um mann sem ekki er látinn. Maðurinn sakar tvær konur um að standa að baki tilkynningunni. Önnur þeirra hefur verið kærð af minnst sjö mönnum fyrir umsáturseinelti. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Sameiginleg ábyrgð allra að láta tæknina þjóna manninum en ekki öfugt Forseti segir Ísland hafa ýmsa burði til að vera í fararbroddi þegar kemur að ábyrgri nýtingu gervigreindar. Hún segir að samfélagið þurfi að móta skýra stefnu um ábyrga og gagnlega notkun hennar. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Brýnt að efla ráðgjöf um þagnarskyldu lækna Sérfræðilæknir segir lækna þurfa meiri stuðning til að meta hvenær rjúfa eigi þagnarskyldu. Flóknara sé þegar mál varði ofbeldi gegn fullorðnum en börnum því tilkynningarskylda í barnaverndarlögum gangi framar ákvæðum um þagnarskyldu í siðareglum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Él framan af en léttir til þegar líður á daginn Útlit er fyrir tiltölulega rólegt veður í dag, sérstaklega seinnipartinn þegar léttir til og dregur úr vindi. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Næsthæsti meðalhiti sjávar í marsmánuði Brynja Dögg Friðriksdóttir AARON FAVILA/AP Meðalhitastig sjávar var 20.97°c gráður í mars sem er næsthæsta hitastig sjávar sem mælst hefur í marsmánuði, samkvæmt upplýsingum frá Kópernikusi, loftslagstofnunar Evrópu. Þetta er jafnframt hæsta hitastig sjávar í marsmánuði síðan 2024, en það ár féllu mörg hitamet víða um heim. Hitastig sjávar bendir til breytinga á veðurfyrirbrigðinu El Nino sem á upptök sín í Kyrrahafinu og hefur áhrif á hita og öfgar í veðri á jörðinni. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Vill að Taívan og Kína vinni saman að því að fyrirbyggja stríð Leiðtogi stjórnarandstæðinga í Taívan fundaði með Xi Jinping í Peking í dag. Hún segir að stjórnvöld í Kína og Taívan eigi að leita lausna til að koma í veg fyrir stríð. Forseti Kína hefur fulla trú á að þjóðirnar verði sameinaðar. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Japan Japanar losa aftur neyðarbirgðir af olíu Brynja Dögg Friðriksdóttir Sanae Takaichi forsætisráðherra Japan. EPA / Kimimasa Mayama Japanar ætla að losa neyðarbirgðir af olíu og setja í umferð í byrjun maí. Forsætisráðherra Japan, Sanae Takaichi, tilkynnti um þessa ákvörðun í dag. Magnið jafnast á við 20 daga notkun af hráolíu. Þetta er í annað sinn sem stjórnvöld nýta olíubirgðir landsins, en í mars var olía sett í umferð sem jafngildir 15 daga notkun. Um 95% af allri innfluttri olíu Japana kemur frá Mið-Austurlöndum. Hækkandi olíuverð hefur haft mikil áhrif í Japan og því ákváðu stjórnvöld að losa um olíubirgðirnar til að stemma stigu við verðhækkunum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar vilja ekki stríð við Bandaríkin eða Ísrael Æðstiklerkur Írans sendi frá sér tilkynningu í gær og sagði að Íran muni verja rétt sinn sem þjóð. Khamenei hefur ekki enn komið fram opinberlega eftir að hann var valinn æðstiklerkur. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Rússar sýna samstöðu með Kúbu Aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands fundaði með forseta Kúbu í gær. Rússneskt olíuflutningaskip flutti olíu til eyjunnar nýverið þvert á viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Hlé á árásum vegna páskahalds Vladimir Pútín og Volodomir Zelensky segja báðir að 32 stunda hlé verði gert á árásum vegna páskahalds í Úkraínu. Átökin í Úkraínu eru nánast í kyrrstöðu og lítið þokast í þríhliða samningaviðræðum milli Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Fyrrum utanríkisráðherra lést af völdum áverka Brynja Dögg Friðriksdóttir Kamal Kharazi, fyrrum utanríkisráðherra Írans. EPA / Ballesteros Fyrrum utanríkisráðherra Írans, Kamal Kharazi, lést í gær af völdum áverka sem hann hlaut í árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran 1. apríl síðastliðinn. Ríkisfjölmiðill í Íran greindi frá andláti hans. Kharazi var 81 árs og var yfirmaður alþjóðasamskiptaráðs sem tilheyrir íranska utanríkisráðuneytinu. Þar áður var hann sendifulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og utanríkisráðherra Írans frá árunum 1997–2005 í ríkisstjórn Mohammads Khatami. Eiginkona Kharazi lést í árásinni sem var gerð á heimili þeirra í Teheran. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Segir Trump skaða trúverðugleika NATO meira en Pútín hefur gert Bandaríkjaforseti gagnrýnir NATO og aðildarríki þess harðlega fyrir að koma Bandaríkjunum ekki til hjálpar í stríðinu við Íran. Tékklandsforseti segir hann hafa skaðað bandalagið meira á nokkrum vikum en Rússlandsforseta tókst á mörgum árum. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Eldur í kartöfluskúr í Skammadal Brynja Dögg Friðriksdóttir RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á tíunda tímanum í kvöld vegna elds í kartöfluskúr í Skammadal, í Mosfellsdal. Einn dælubíll var sendur á vettvang. Kofinn var alelda þegar slökkvilið kom á vettvang samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Slökkvistarf gekk greiðlega og ekki var hætta á að eldur bærist út í nærliggjandi kofa. Kartöfluskúrinn brann til grunna en eldsupptök eru ókunn. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Játaði að hafa beitt stjúpdóttur sína ítrekuðu kynferðisofbeldi Maður sem dæmdur var í 13 ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn barnungri stjúpdóttur sinni gekkst við 13 ákæruliðum. Honum er gert að greiða stúlkunni 6 milljónir í miskabætur. Hann hafði áður verið dæmdur fyrir ofbeldi gegn móður stúlkunnar. 9. apríl 2026 kl. 22:30ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin „Ég er ekki fórnalamb Epsteins“ Forsetafrú Bandaríkjanna þvertekur fyrir tengsl við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Hún kallar eftir því að fórnarlömb hans fái áheyrn í Bandaríkjaþingi, en segist ekki vera á meðal þeirra. Sögusögnum um annað verði að linna. 9. apríl 2026 kl. 21:29INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Það hefur hjálpað mér í gegnum sorgina að syngja” Heiðurstónleikar Kristjáns Jóhannssonar til styrktar Bryndísarhlíð voru haldnir í kvöld. Á tónleikunum sungu tíu tenórar saman, þar á meðal faðir Bryndísar Klöru. Hann segir sönginn hjálpa í sorginni. 9. apríl 2026 kl. 21:28ÍÞRÓTTIR Körfubolti Grindavík í undanúrslit og KR komst yfir gegn Keflavík Grindavík er komið í undanúrslit Íslandsmóts kvenna í körfubolta eftir sigur á Val í kvöld. KR er svo skrefi nær sæti í undanúrslitum eftir að hafa unnið Keflavík í kvöld í þriðja leik liðanna. 9. apríl 2026 kl. 21:23ÍÞRÓTTIR Íshokkí Íshokkílandslið Íslands í góðum málum Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Ísland hefur spilað vel í Búlgaríu. ÍHÍ Íslenska karlalandsliðið í íshokkí hefu