Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kynna skýrslu um endurreisn Grindavíkur

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Kynna skýrsl­ur um end­ur­reisn Grinda­vík­ur Brynjólfur Þór Guðmundsson Grindavíkurnefnd ætlar í dag að kynna tvær skýrslur um endurreisn bæjarins. Þær bera heitin Endurreisn Grindavíkur – Rammaáætlun, og Ráðgjafarskýrsla Alþjóðabankans um endurreisn Grindavíkur. Skýrslurnar hafa verið kynntar ríkisstjórn og bæjaryfirvöldum í Grindavík en verða kynntar á blaðamannafundi síðdegis. Þar ætlar Grindavíkurnefnd að gera grein fyrir helstu niðurstöðum og tillögum um næstu skref í endurreisninni. Grindavík að vetri. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 9 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Besta deild karla hefst í kvöld Keppni hefst í kvöld í Bestu deild karla í fótbolta. Það er enginn smáleikur sem hleypir Íslandsmótinu af stað því það eru Íslandsmeistarar síðustu fimm ára sem eigast við. Fyrir 48 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Íris verður bæj­ar­stjóra­efni Sjálf­stæð­is­manna Íris Róbertsdóttir verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í kosningum í vor. Hún hefur verið bæjarstjóri í meirihlutasamstarfi Fyrir Heimaey og Eyjalistans síðustu átta ár. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Trúarbrögð „Þetta mótaði mig al­gjör­lega og gerði mig að því sem ég er í dag“ Þegar Jónas Sen var 26 ára missti hann eiginkonu sína í bílslysi. Hann reyndi lengi að skilja vilja Guðs og þróaði með sér dauðaótta. Hann hefur ávallt verið andlega leitandi og eftir þessar hremmingar fann hann hugleiðslu og seinna meir kirkjuna. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Vakn­aði og sá andlát sitt til­kynnt í Morg­un­blað­inu Morgunblaðið birti dánartilkynningu í morgun um mann sem ekki er látinn. Maðurinn sakar tvær konur um að standa að baki tilkynningunni. Önnur þeirra hefur verið kærð af minnst sjö mönnum fyrir umsáturseinelti. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Sam­eig­in­leg ábyrgð allra að láta tækn­ina þjóna mann­in­um en ekki öfugt Forseti segir Ísland hafa ýmsa burði til að vera í fararbroddi þegar kemur að ábyrgri nýtingu gervigreindar. Hún segir að samfélagið þurfi að móta skýra stefnu um ábyrga og gagnlega notkun hennar. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Brýnt að efla ráð­gjöf um þagn­ar­skyldu lækna Sérfræðilæknir segir lækna þurfa meiri stuðning til að meta hvenær rjúfa eigi þagnarskyldu. Flóknara sé þegar mál varði ofbeldi gegn fullorðnum en börnum því tilkynningarskylda í barnaverndarlögum gangi framar ákvæðum um þagnarskyldu í siðareglum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Él framan af en léttir til þegar líður á daginn Útlit er fyrir tiltölulega rólegt veður í dag, sérstaklega seinnipartinn þegar léttir til og dregur úr vindi. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Næst­hæsti með­al­hiti sjávar í mars­mán­uði Brynja Dögg Friðriksdóttir AARON FAVILA/AP Meðalhitastig sjávar var 20.97°c gráður í mars sem er næsthæsta hitastig sjávar sem mælst hefur í marsmánuði, samkvæmt upplýsingum frá Kópernikusi, loftslagstofnunar Evrópu. Þetta er jafnframt hæsta hitastig sjávar í marsmánuði síðan 2024, en það ár féllu mörg hitamet víða um heim. Hitastig sjávar bendir til breytinga á veðurfyrirbrigðinu El Nino sem á upptök sín í Kyrrahafinu og hefur áhrif á hita og öfgar í veðri á jörðinni. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Vill að Taívan og Kína vinni saman að því að fyr­ir­byggja stríð Leiðtogi stjórnarandstæðinga í Taívan fundaði með Xi Jinping í Peking í dag. Hún segir að stjórnvöld í Kína og Taívan eigi að leita lausna til að koma í veg fyrir stríð. Forseti Kína hefur fulla trú á að þjóðirnar verði sameinaðar. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Japan Jap­an­ar losa aftur neyð­ar­birgð­ir af olíu Brynja Dögg Friðriksdóttir Sanae Takaichi forsætisráðherra Japan. EPA / Kimimasa Mayama Japanar ætla að losa neyðarbirgðir af olíu og setja í umferð í byrjun maí. Forsætisráðherra Japan, Sanae Takaichi, tilkynnti um þessa ákvörðun í dag. Magnið jafnast á við 20 daga notkun af hráolíu. Þetta er í annað sinn sem stjórnvöld nýta olíubirgðir landsins, en í mars var olía sett í umferð sem jafngildir 15 daga notkun. Um 95% af allri innfluttri olíu Japana kemur frá Mið-Austurlöndum. Hækkandi olíuverð hefur haft mikil áhrif í Japan og því ákváðu stjórnvöld að losa um olíubirgðirnar til að stemma stigu við verðhækkunum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar vilja ekki stríð við Banda­rík­in eða Ísrael Æðstiklerkur Írans sendi frá sér tilkynningu í gær og sagði að Íran muni verja rétt sinn sem þjóð. Khamenei hefur ekki enn komið fram opinberlega eftir að hann var valinn æðstiklerkur. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Rússar sýna sam­stöðu með Kúbu Aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands fundaði með forseta Kúbu í gær. Rússneskt olíuflutningaskip flutti olíu til eyjunnar nýverið þvert á viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Hlé á árásum vegna páska­halds Vladimir Pútín og Volodomir Zelensky segja báðir að 32 stunda hlé verði gert á árásum vegna páskahalds í Úkraínu. Átökin í Úkraínu eru nánast í kyrrstöðu og lítið þokast í þríhliða samningaviðræðum milli Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Fyrrum ut­an­rík­is­ráð­herra lést af völdum áverka Brynja Dögg Friðriksdóttir Kamal Kharazi, fyrrum utanríkisráðherra Írans. EPA / Ballesteros Fyrrum utanríkisráðherra Írans, Kamal Kharazi, lést í gær af völdum áverka sem hann hlaut í árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran 1. apríl síðastliðinn. Ríkisfjölmiðill í Íran greindi frá andláti hans. Kharazi var 81 árs og var yfirmaður alþjóðasamskiptaráðs sem tilheyrir íranska utanríkisráðuneytinu. Þar áður var hann sendifulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og utanríkisráðherra Írans frá árunum 1997–2005 í ríkisstjórn Mohammads Khatami. Eiginkona Kharazi lést í árásinni sem var gerð á heimili þeirra í Teheran. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Segir Trump skaða trú­verð­ug­leika NATO meira en Pútín hefur gert Bandaríkjaforseti gagnrýnir NATO og aðildarríki þess harðlega fyrir að koma Bandaríkjunum ekki til hjálpar í stríðinu við Íran. Tékklandsforseti segir hann hafa skaðað bandalagið meira á nokkrum vikum en Rússlandsforseta tókst á mörgum árum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Eldur í kart­öflu­skúr í Skamma­dal Brynja Dögg Friðriksdóttir RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á tíunda tímanum í kvöld vegna elds í kartöfluskúr í Skammadal, í Mosfellsdal. Einn dælubíll var sendur á vettvang. Kofinn var alelda þegar slökkvilið kom á vettvang samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Slökkvistarf gekk greiðlega og ekki var hætta á að eldur bærist út í nærliggjandi kofa. Kartöfluskúrinn brann til grunna en eldsupptök eru ókunn. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Játaði að hafa beitt stjúp­dótt­ur sína ít­rek­uðu kyn­ferð­is­of­beldi Maður sem dæmdur var í 13 ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn barnungri stjúpdóttur sinni gekkst við 13 ákæruliðum. Honum er gert að greiða stúlkunni 6 milljónir í miskabætur. Hann hafði áður verið dæmdur fyrir ofbeldi gegn móður stúlkunnar. 9. apríl 2026 kl. 22:30ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin „Ég er ekki fórn­a­lamb Ep­steins“ Forsetafrú Bandaríkjanna þvertekur fyrir tengsl við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Hún kallar eftir því að fórnarlömb hans fái áheyrn í Bandaríkjaþingi, en segist ekki vera á meðal þeirra. Sögusögnum um annað verði að linna. 9. apríl 2026 kl. 21:29INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Það hefur hjálp­að mér í gegnum sorg­ina að syngja” Heiðurstónleikar Kristjáns Jóhannssonar til styrktar Bryndísarhlíð voru haldnir í kvöld. Á tónleikunum sungu tíu tenórar saman, þar á meðal faðir Bryndísar Klöru. Hann segir sönginn hjálpa í sorginni. 9. apríl 2026 kl. 21:28ÍÞRÓTTIR Körfubolti Grinda­vík í und­an­úr­slit og KR komst yfir gegn Kefla­vík Grindavík er komið í undanúrslit Íslandsmóts kvenna í körfubolta eftir sigur á Val í kvöld. KR er svo skrefi nær sæti í undanúrslitum eftir að hafa unnið Keflavík í kvöld í þriðja leik liðanna. 9. apríl 2026 kl. 21:23ÍÞRÓTTIR Íshokkí Ís­hokk­ílands­lið Ís­lands í góðum málum Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Ísland hefur spilað vel í Búlgaríu. ÍHÍ Íslenska karlalandsliðið í íshokkí hefur farið vel af stað í B-riðli 2. deildar HM í íshokkí í Búlgaríu. Ísland sigraði Kirgistan í dag 6-3 en hafði áður unnið 6-5 sigur á Tapei og Ný-Sjálendinga 6-2. Ísland er á toppi riðilsins með 9 stig en Búlgaría er í 2. sæti með 8 stig. Ísland og Búlgaría mætast einmitt í næsta leik sem er á laugardag og Ísrael svo í lokaleik sínum á sunnudag. Alla jafna færi efsta sætið upp í A-riðil 2. deildar, en þar sem A-riðlinum var aflýst vegna stríðsins í Íran fer ekkert lið upp ú B-riðlinum. Leika átti A-riðilinn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 9. apríl 2026 kl. 21:14INNLENDAR FRÉTTIR Andlát Bó söng Vetr­ar­sól inn í hjarta Höllu Forseti Íslands minnist Björgvins Halldórssonar. Hún sendir fjölskyldu og vinum söngvarans sem lést í morgun einlægar samúðarkveðjur. Hún segir Bó hafa sungið Vetrarsól inn í hjarta sitt. 9. apríl 2026 kl. 21:09MENNING OG DÆGURMÁL Klassísk tónlist Hinn eini sanni Björg­vin Ólafur Páll Gunnarsson tók saman umfjöllun um Björgvin Halldórsson látinn. Hér talar Björgvin sjálfur um upphafið og framtíðina. Brotin eru úr ýmsum Rokklandsþáttum. 9. apríl 2026 kl. 20:18ÍÞRÓTTIR Handbolti Valur einum sigri frá sæti í úr­slit­um Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Arnór Snær Óskarsson og félagar í Val eru einum sigri frá því að komast í úrslit Íslandsmótsins í handbolta. Rúv / Mummi Lú Valsmenn eru nú aðeins einum sigri frá því sæti í úrslitum Íslandsmóts karla í handbolta eftir sigur á KA, 33-30 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum. Valur leiðir nú einvígið 2-0, en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit. Valur spilaði til úrslita í fyrra en tapaði þá úrslitaeinvíginu fyrir Fram 3-0. Þriðji leikur Vals og KA verður spi

Share this article