Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mikið í húfi í viðræðum í Islamabad um helgina

Read Full Article →

JD Vance varaforseti Bandaríkjanna er væntanlegur til Islamabad í Pakistan til að taka þátt í viðræðum um frið í Mið-Austurlöndum um helgina. Samið var um tímabundið vopnahlé til tveggja vikna 7. apríl og til stendur að reyna um helgina að semja um varanlegt vopnahlé. Vance sagði við fjölmiðla rétt áður en hann fór um borð í flugvél í dag að hann hlakkaði til viðræðnanna. Bandaríkin væru reiðubúin að rétta fram sáttahönd ef Íranar gerðu það sama. Ef Íranar reyni bolabrögð verði Bandaríkin ekki móttækileg. Þá sagði Vance að Bandaríkjaforseti hefði lagt honum ákveðnar línur fyrir viðræðurnar. Auk Vance verða Steve Witkoff, erindreki Bandaríkjastjórnar og Jared Kushner, tengdasonur Trumps í sendinefnd Bandaríkjanna. Sendinefnd Írans skipa utanríkisráðherrann Abbas Araghchi og forseti þingsins Mohammad Bagher Ghalibaf. Þá er einnig búist við háttsettum liðsmönnum Íranska byltingarvarðarins. Einnig er búist við fulltrúum nokkurra Persaflóaríkja til Islamabad um helgina, svo sem Katar og Sádí-Arabíu. Íransher hefur varpað sprengjum að nágrannaríkjum sínum sem eru bandamenn Bandaríkjanna. Herir Bandaríkjanna og Ísraels hófu árásir á Íran 28. febrúar og hafa síðan þá drepið yfir 3.000 manns í Íran samkvæmt fjölmiðlum í Íran og mannréttindasamtökunum HRANA. Búist er við að viðræðurnar um helgina verði með þeim hætti að sendinefndir Bandaríkjanna og Írans sitji hvor í sínu herberginu og að fulltrúar Pakistans fari með boð þeirra á milli. Mikil öryggisgæsla er í borginni Islamabad og vopnaðir menn á hverju götuhorni. Íranar krefjast þess að Bandaríkin og Ísrael hætti árásum Stjórnvöld í Bandaríkjunum eru sögð hafa lagt fram tillögu að vopnahléi sem felur í sér að Íran hætti að auðga úran og opni Hormússund fyrir skipaumferð. Stjórnvöld í Íran lögðu á móti fram tillögu sem felur í sér kröfur um að Íranar stjórni umferð um Hormússund og geti innheimt gjald af skipum sem þar fara um. Íranar krefjast þess einnig að Bandaríkjamenn og Ísraelar hætti öllum hernaði og að refsiaðgerðum verði aflétt. Ísraelar gera enn árásir á Líbanon Nokkrum klukkutímum eftir að samið var um tímabundið vopnahlé á þriðjudagskvöld gerðu Ísraelar harðar árásir á Líbanon og drápu um 300 manns. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur neitað því að vopnahléið nái til Líbanons. Íranskir fjölmiðlar hafa eftir heimildamönnum sínum að stjórnvöld í Íran taki ekki þátt í viðræðum um vopnahlé nema markmiðið sé að það gildi einnig um Líbanon. Pakistan er nágrannaríki Írans og deila löndin 900 kílómetra löngum landamærum. Rík söguleg, menningarleg og trúarleg tengsl eru milli ríkjanna. Þá hafa stjórnvöld í Pakistan ræktað samband við stjórnvöld í Bandaríkjunum og verða um helgina í hlutverki sáttasemjara.

Share this article