Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 10.4.2026 | 15:56 „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Ragnar Freyr Ingvarsson telur uppsögn sína ólögmæta. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Ragnar Freyr Ingvarsson læknir álítur uppsögn sína á Landspítalanum ólögmæta. Hann á fund með lögmanni sínum um helgina en á mánudag mun hann hitta forsvarsmenn Landspítala ásamt lögmanni sínum til að ganga frá starfslokunum. Ragnar segist í samtali við mbl.is hafa átt samtal í gærmorgun við Runólf Pálsson, forstjóra Landspítalans. Þar hafi Runólfur reynt að útskýra nánar fyrir Ragnari ástæður uppsagnarinnar. Haft hefur verið eftir forsvarsmönnum Landspítala að Ragnari standi aukið starfshlutfall til boða en Ragnar segir slíkt aldrei hafa verið rætt við sig enda hefði hann ekki tök á að taka slíku boði vegna annarra starfa. „Mér hefur verið sagt upp störfum. Það verður ekkert aftur tekið úr því sem komið er. Maður fær ekki símtal eins og þetta og gleymir því á örskotsstundu.“ Frétt af mbl.is „Hér er því farið með fleipur“ Dýrara að hafa lækni í 100% Ragnar segist hafa rætt við Runólf forstjóra í víðara samhengi. Þeir hafi átt gott samstarf í gegnum tíðina. „En ég gef ekkert fyrir skýringar framkvæmdastjóra sem taka breytingum líkt og íslenskt veðurfar. Eina stundina er þetta sparnaðarsjónarmið og næstu stund er verið að fækka stöðum í lágu starfshlutfalli til þess að búa til stöður í háu. Þetta virðist ekki snúast um manneklu en samt er mannekla. Það er verið að segja mér upp störfum en á sama tíma verið að ráða annan lækni í sama starf. Ég skil ekki útskýringar framkvæmdastjóra enda eru þær óskiljanlegar.“ Ragnar segir lækna í 100% starfshlutfalli dýrari en lækna í hlutastarfi sem skipta með sér 100% starfshlutfalli. Það sé vegna þess að læknar í starfi hjá ríkinu í 100% starfi fái greitt 15% helgunarálag. „Vissulega getur það verið þannig að atvinnurekandinn meti það eitthvað til hagræðingar að hafa einn mann í 100% stöðu en það hagræði er þá a.m.k. ekki fjárhagslegt.“ Frétt af mbl.is Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ Segir þetta snúast um sína persónu Ragnar segist ekki annað sjá en að verklag hafi verið þverbrotið þegar honum var sagt upp símleiðis á miðvikudag og að uppsögnin sé ólögmæt en tekur fram að hann sé ekki löglærður, bara læknir. „Þegar ég áttaði mig á því hver var að hringja í mig hélt ég að Rafn væri að kalla mig inn úr launalausu leyfi því ástandið á minni deild er svo slæmt en svo er mér bara sagt upp,“ segir Ragnar og vísar þar til Rafns Benediktssonar, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga og endurhæfingarþjónustu Landspítalans. „Mér hefur ekki einu sinni ennþá verið afhent uppsagnarbréf.“ Segist Ragnar telja að eftir því sem lengra líði frá uppsögninni muni koma í ljós að hún snúist meira og minna um hans persónu. Hann segist aðeins hafa heyrt af einum öðrum starfsmanni sem hafi misst starfið sitt á Landspítalanum og sá hafi í raun verið búinn að segja upp. Það hafi hins vegar átt að ráða hann í tímavinnu í sumar sem var dregið til baka. „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa.“ Frétt af mbl.is Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Dagsetning brúðkaupsins sögð liggja fyrir Fyrrverandi leikmaður orðinn yfirmaður knattspyrnumála í Keflavík Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Eva Dögg og Stefán giftu sig Botnlanginn fjarlægður úr stjörnu Philadelphia 76ers Umræðan Sleggjan sett á ESB-planið Gjaldmiðill og gengi á göflum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Mest lesið Í gær Í vikunni Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu „Það verður rautt ljós sílogandi“ „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Nýjast á mbl.is » Dagsetning brúðkaupsins sögð liggja fyrir Fyrrverandi leikmaður orðinn yfirmaður knattspyrnumála í Keflavík Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Eva Dögg og Stefán giftu sig Botnlanginn fjarlægður úr stjörnu Philadelphia 76ers Umræðan Sleggjan sett á ESB-planið Gjaldmiðill og gengi á göflum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki mælt með að barnafjölskyldur flytji í bæinn Styrkir samtökin um 25 milljónir Upplýsingagjöf „verulega áfátt“ „Þá er eins gott að þeir hætti því strax!“ Mest lesið Í gær Í vikunni Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu „Það verður rautt ljós sílogandi“ „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða

Share this article