Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segir framkvæmdastjóra Landspítala fara með ósannindi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 28.4.2026 | 8:55 Segir framkvæmdastjóra Landspítala fara með ósannindi Ragnar Freyr Ingvarsson. Setja bókamerki Ragnar Freyr Ingvarsson læknir segir Rafn Benediktsson framkvæmdastjóra Landspítala fara með ósannindi og ítrekar að uppsögn sín verði úrlausnarefni dómstóla. Ragnari barst bréf frá Rafni á föstudag þar sem Rafn færir rök fyrir uppsögninni. Ragnar fullyrðir að bréfið hafi verið skrifað með aðstoð lögfræðinga og starfsfólks mannauðsdeildar og með fullri vitund og samþykki Runólfs Pálssonar forstjóra spítalans. Í bréfinu er meðal annars bent á að ekki sé skylda að veita starfsmanni ríkisins andmælarétt ef uppsögn kemur til vegna hagræðingaraðgerða. Stjórn Læknafélags Reykjavíkur (LR) hefur lýst yfir furðu og vonbrigðum yfir uppsögninni. Ragnar er formaður félagsins. Stutt er síðan stjórn Félags sjúkrahúslækna lýsti yfir þungum áhyggjum af uppsögnum sérfræðilækna á Landspítalanum í hagræðingarskyni. Frétt af mbl.is Lýsa yfir furðu og vonbrigðum Yfirlit úr síma segi aðra sögu Í bréfinu er fullyrt að ítrekað hafi verið reynt að ná í Ragnar en yfirlit úr síma hans segir aðra sögu. Þar sést að hringt hafi verið í hann í tvígang miðvikudaginn 8.apríl, klukkan 17:49 og 18:07, og að hann hafi hringt til baka nær samstundis. Engin önnur símtöl bárust frá Landspítala þennan dag eða dagana á undan. Þá fullyrðir Rafn í bréfinu að Ragnari hafi ekki verið sagt upp í símtalinu, sem Ragnar segir rangt. Rafn hafi verið skýr um að verið væri að leggja niður starf Ragnars og að honum væri því sagt upp. Þá hafi Rafn borið fyrir sig ríka aðhaldskröfu á spítalanum. „Það veit Rafn Benediktsson mæta vel þó hann kjósi að segja aðra sögu,“ segir Ragnar í yfirlýsingu. „Hann er skýrmæltur maður og boðskapurinn stuttur og hnitmiðaður eins hans er von og vísa.“ Frétt af mbl.is „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ „Fréttir af þessu las ég fyrst í fjölmiðlum“ „Rafn kom fram í viðtölum í fjölmiðlum snemma morguninn eftir. Þar var hann margsaga um samtal okkar. Farsinn er vel skráður í uppfærðum fréttum fjölmiðla þennan dag,“ heldur Ragnar áfram. „Hann gengur svo langt að fullyrða að mér hafi verið boðið aukið starfshlutfall í umræddu símtali og ég hafi átt að hugleiða slíkt fram að fundi okkar. Þetta er alrangt! Um slíkt var aldrei rætt. Fréttir af þessu las ég fyrst í fjölmiðlum daginn eftir.“ Frétt af mbl.is „Hér er því farið með fleipur“ Verður úrlausnarefni dómstóla Í bréfinu er því haldið fram að vernd trúnaðarmanna sé ætluð þeim sem taka að sér hlutverk við að gæta hagsmuna samstarfsmanna sinna á eigin vinnustað, ekki þeim sem sinna almennri hagsmunagæslu fyrir aðra hópa eða á öðrum stöðum. Ragnar sé trúnaðarmaður Læknafélags Reykjavíkur, sem gæti fyrst og fremst hagsmuna sjálfstætt starfandi lækna. „Í þessu bréfi eru að auki fjölda mörg önnur atriði sem vert að ræða - og það er efni í frekari pistla. Og verður einnig úrlausnarefni dómstóla,“ segir Ragnar enn fremur í yfirlýsingu. „Það er ótrúlegt að verða vitni að framferði stjórnenda Landspítala í minn garð. Eftir allt sem á undan er gengið, farsælt starf og samvinnu með frábæru samstarfsfólki síðasta áratuginn. Að leggjast svo lágt að segja ósatt til að réttlæta gjörðir sínar. Að réttlæta ólögmæta uppsögn. Réttara hefði verið að biðjast afsökunar á þessum mistökum og axla ábyrgð. Af því hefði allavega verið einhver sómi.“ Frétt af mbl.is Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Albert keypti íbúð á 560 milljónir Segir framkvæmdastjóra Landspítala fara með ósannindi Vilja losna við leikmanninn eftir aðeins eitt ár Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Stórleikur Jokic á ögurstundu – Sópun hjá Oklahoma Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Blikastaðaland – forsendur Mosfellinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir vöxt útgjalda ósjálfbæran Samgöngutafir eru rándýrar Hvetur þingmenn til að koma sér saman um spurningu Hrósað fyrir aðlögun að ESB Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Kristrún vill sjálf dæma Samgöngutafir eru rándýrar Hitinn allt að 16 stigum „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir Dýrkeypt veikindahlutföll Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Nýjast á mbl.is » Albert keypti íbúð á 560 milljónir Segir framkvæmdastjóra Landspítala fara með ósannindi Vilja losna við leikmanninn eftir aðeins eitt ár Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Stórleikur Jokic á ögurstundu – Sópun hjá Oklahoma Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Blikastaðaland – forsendur Mosfellinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samgöngutafir eru rándýrar Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Kristrún vill sjálf dæma Daði Már: Kostar um hálfan milljarð Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Kristrún vill sjálf dæma Samgöngutafir eru rándýrar Hitinn allt að 16 stigum „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Fara á örorku og upplifa sjálfsvígshugsanir Dýrkeypt veikindahlutföll Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri

Share this article