Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Mannfall skömmu fyrir vopnahlé Brynja Dögg Friðriksdóttir Fjölbýlishús í Odesa sem varð fyrir árásum 6. apríl 2026. AP / Michael Shtekel Þrír voru drepnir og að minnsta kosti 17 eru særðir eftir árásir Rússa í Úkraínu í gær og nótt, aðeins nokkrum klukkustundum áður en vopnahlé á að hefjast vegna páskahátíðarinnar. Árásirnar voru gerðar á borgirnar Poltava og Odesa og einnig í Sumy-héraði sem liggur að landamærum Rússlands. Rússar og Úkraínumenn hafa sammælst um vopnahlé frá klukkan fjögur síðdegis í dag til miðnættis annað kvöld að úkraínskum tíma. Fyrir 34 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Bandaríkjaforseti reisir sigurboga Sigurboginn verður reistur nærri helstu kennileitum í Washington. Sigurboginn verður 76,2 metrar á hæð og verður stærsta mannvirki sinnar tegundar í heiminum. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Níu ára drengur fannst nakinn og vannærður í sendiferðabíl Drengurinn hafði verið læstur í sendiferðabíl í rúmt ár. Faðir drengsins og kærasta hafa verið ákærð í málinu. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Sænski herinn fylgist með rússneskum kafbáti í Eystrasaltinu Flugáhöfn um borð í sænskri orrustuþotu sá fyrst til kafbátsins í Kattegat í kvöld. Kafbátnum er fylgt eftir en sem stendur siglir hann um alþjóðlegt siglingasvæði í Eystrasaltinu. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Geimfar Artemis II-leiðangursins er lent í Kyrrahafi Geimfar Artemisar II-leiðangurisins lenti 7 mínútum eftir miðnætti að íslenskum tíma í Kyrrahafi suðvestur af San Diego í Bandaríkjunum eftir vel heppnaðan tíu daga leiðangur í kringum tunglið. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tónlist Memfismafían heiðrar Bó Memfismafían flutti lag Björgvins Halldórssonar Ég skal syngja fyrir þig í Vikunni með Gísla Marteini í kvöld. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Trump ætlar að beita „öllu efnahagslegu afli“ til að hjálpa Ungverjalandi vinni Orban Bandaríkjaforseti ætlar að fjárfesta í framtíðarvelmegun í Ungverjalandi vinni bandamaður hans Viktor Orban, forsætisráðherra, í kosningum næsta sunnudag. Stjórnarandstaðan í Ungverjalandi sakar Bandaríkin um afskipti af kosningunum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ellefu flokkar skiluðu framboðslistum í Reykjavík Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í næsta mánuði rann út í dag. Ellefu framboð hafa skilað inn lista í Reykjavík. Fulltrúar nýs framboðs skiluðu inn lista rétt áður en fresturinn rann út. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísrael og Líbanon ræða vopnahlé á þriðjudag Ísrael og Líbanon ætla að funda í Washington á þriðjudaginn til að ræða vopnahlé. Sendiherrar Líbanon og Ísraels í Bandaríkjunum og sendiherra Bandaríkjanna í Líbanon ræddu saman í síma í kvöld. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Allt í járnum í fyrsta leik Bestu deildarinnar Besta deild karla í fótbolta hófst með stórleik ríkjandi Íslandsmeistara Víkings og Breiðabliks. Mikil spenna var í leiknum og liðin skildu jöfn, 1-1. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Gettu betur Verzlunarskólinn sigurvegari Gettu betur 2026 Verzlunarskóli Íslands er sigurvegari Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, eftir öfluga viðureign við Menntaskólann í Reykjavík Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar jákvætt innlegg Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins segir skjóta skökku við að hafa eigi sérstakt lögbundið eftirlit með fyrirtækjum. En aðgerðirnar sem kynntar voru í dag séu þó jákvætt innlegg. 10. apríl 2026 kl. 19:44ERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Artemis á leið til jarðar Geimfar Artemis-leiðangursins á að lenda stuttu eftir miðnætti í Kyrrahafi, úti fyrir San Diego, í kvöld. Heimferði frá tunglinu er flókin og Nasa hefur sett mörg skilyrði um aðstæður fyrir lendingu. 10. apríl 2026 kl. 19:27INNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Allt á floti í Guðmundarlundi Guðmundarlundur í Kópavogi er á floti eftir frost og asahláku undanfarna daga. Framkvæmdastjóri telur þó engar skemmdir á golfvelli og leiksvæði sem þar eru. 10. apríl 2026 kl. 19:26INNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Landskjörstjórn gerir athugasemdir við orðalag spurningarinnar Landskjörstjórn telur betra að spurningin verði orðuð með „opnari hætti þannig að í henni felist ekki afstaða til stöðu viðræðna Íslands við Evrópusambandið“. 10. apríl 2026 kl. 18:38INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Boðað til skyndifundar í ríkisstjórn í kvöld Tilefni fundarins er að gera orðalagsbreytingar á frumvarpi um breytingar á virðisaukaskatti á eldsneyti, sem kynnt var á blaðamannafundi í morgun. 10. apríl 2026 kl. 18:01INNLENDAR FRÉTTIR Gettu betur Hvaða skóli verður handhafi hljóðnemans? Úrslit spurningakeppninnar Gettu betur fara fram í Háskólabíói í kvöld, Verzlunarskóli Íslands og Menntaskólinn í Reykjavík etja kappi í úrslitaviðureigninni. 10. apríl 2026 kl. 17:58INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Aðgerðir ríkisstjórnarinnar dugi skammt Stjórnarandstaðan telur að skammtímaaðgerðir ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru á blaðamannafundi í dag dugi ekki til að kveða niður verðbólgu. Formaður Miðflokksins sagði að kynningarfundurinn hefði í raun getað verið tölvupóstur. 10. apríl 2026 kl. 17:58INNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Fyrstu 15 mínúturnar skipta öllu máli Björgunarsveitarmaður á Ólafsfirði undirstrikar mikilvægi þess að öryggið sé í fyrirrúmi þegar fólk er að fara til fjalla, hvort sem það er á vélsleða eða skíðum. Fyrstu viðbrögð eftir að einhver lendir í flóði skipti öllu máli. 10. apríl 2026 kl. 17:08INNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Verkfalli hafnarverkamanna frestað um sex vikur Fyrirhuguðu verkfalli hafnarverkamanna hefur verið frestað um sex vikur. Eimskipafélagið á í viðræðum við Sjómannafélag Íslands um gerð kjarasamninga. 10. apríl 2026 kl. 17:07INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ekki sjálfkrafa refsivert að senda inn falska dánartilkynningu Lögfræðingur segir samhengi skipta máli þegar litið er til þess hvaða lög gætu hafa verið brotin þegar fölsk dánartilkynning var send inn til birtingar í Morgunblaðinu. Hún vonar að atvikið hafi ekki áhrif á þessa íslensku hefð, sem byggi á trausti. 10. apríl 2026 kl. 17:06ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Segir viðræður við Rússa mögulega að þokast Dagný Hulda Erlendsdóttir Úkraína og Rússland hafa þokast aðeins nær mögulegum samningum um stríðslok, hefur Bloomberg eftir nánasta ráðgjafa Úkraínuforseta, Kyrylo Budanov. Hann sagði enga lokaákvörðun hafa verið tekna varðandi yfirráð yfir þeim svæðum í Úkraínu sem Rússar hafa hertekið. Staðan sé þannig núna að það átti sig þó allir á því hvar mörkin liggi. Það séu miklar framfarir. Allir hafi skilning á því að ljúka þurfi stríðinu. Hingað til hefur lítið komið út úr viðræðum milli Rússlands og Úkraínu annað en fangaskipti. Búist er við að ríkin skiptist aftur á föngum um helgina, sem er páskahelgi í rétttrúnaðarkirkjunni. epa12665005 Kyrylo Budanov, head of the Ukrainian military intelligence service HUR speaks during a panel session at the 56th annual meeting of the World Economic Forum (WEF) in Davos, Switzerland, 20 January 2026. The 2026 summit, running from 19 to 23 January and held under the theme 'A Spirit of Dialogue,' brings together global political leaders, corporate executives, and scientists to address international challenges. EPA/GIAN EHRENZELLER EPA / GIAN EHRENZELLER 10. apríl 2026 kl. 16:33INNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Flytja geðdeildina í miðbæ Akureyrar Engin dagþjónusta hefur verið veitt í dag á geðdeildinin á Sjúkrahúsinu á Akureyri sökum flutninga deildarinnar. Öll dagþjónusta legu- og göngudeildar SAk flyst í húsnæði í Hafnarstræti á Akureyri, þar sem áður var Heilsugæslan og Læknastofurnar. 10. apríl 2026 kl. 16:25INNLENDAR FRÉTTIR Popptónlist Stjörnum prýtt tónlistarmyndband Laufeyjar Alysa Liu listskautari og Hudson Williams leikari leika í tónlistarmyndbandi Laufeyjar sem kemur út eftir helgi. 10. apríl 2026 kl. 16:03MENNING OG DÆGURMÁL Menning Hver finnst þér að eigi að fá verðlaun á Sögum 2026? Opnað hefur verið fyrir kosningu um tilnefningar til Sagna, verðlaunahátíðar barnanna, 2026. Öll börn á aldrinum 6–16 ára geta kosið það sem þeim finnst hafa skarað fram úr á sviði barnamenningar á síðasta ári. 10. apríl 2026 kl. 15:51INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kosið í tvennu lagi á Ströndum þrátt fyrir sameiningu Innviðaráðuneyti hefur borist kæra um framkvæmd sameiningarkosninga í Árneshreppi og mun ekki staðfesta sameininguna við Kaldrananeshrepp fyrir sveitarstjórnarkosningar. Framtíð Árneshrepps hefur lýst yfir framboði til sveitarstjórnar. 10. apríl 2026 kl. 15:48ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Mikið í húfi í viðræðum í Islamabad um helgina Stjórnvöld í Pakistan ætla um helgina að reyna að miðla málum milli stjórnvalda í Íran og Bandaríkjunum. Ætlunin er að semja um varanlegt vopnahlé milli ríkjanna. Samið var um tímabundið vopnahlé í vikunni. 10. apríl 2026 kl. 15:23INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Góðan daginn býður fram í Reykjavík Góðan daginn framboð býður fram í sveitarstjórnarkosningunum í Reykjavík í vor. Fulltrúar flokksins skiluðu framboðslista til kjörstjórnar í dag. Meðmælasöfnun framboðsins hófst í gærkvöldi. 10. apríl 2026 kl. 14:49ÍÞRÓTTIR Skíði Besti stórsvigsárangur Jóns Eriks Einar Örn Jónsson Jón Erik Sigurðsson, skíðamaður og Ólympíufari, varð í 2. sæti á ungmennamóti í risasvigi í Val d'Isere í Frakklandi í dag. Hann var fjórði eftir fyrri ferðina og náði svo besta tímanum í þeirri síðari og varð annar, 24 hundruðustu úr sekúndu á eftir Bretanum Hamish Blyth. Fyrir árangurinn fékk Jón Erik 29,21 FIS-stig. Stig virka þannig að lægra skor er betra og fékk Blyth t.a.m. 27,11 stig. Stigin hjá Jóni Erik í dag er hans besti árangur í stórsvigi á ferlinum. Jón Erik fagnar á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cor
This article does not describe a technical vulnerability or threat; it is a news report detailing military attacks in Ukraine shortly before a ceasefire. The content covers geopolitical events, not a software flaw, exploit, or security advisory for IT systems. Therefore, no technical vulnerability details, CVSS score, affected versions, patches, or workarounds are present to summarize.