Innlent | mbl | 11.4.2026 | 11:30 | Uppfært 11:56 Nýtt útspil Samfylkingar Kristrún Forstadóttir kynnir nýtt útspil Samfylkingarinnar. mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Kosningaferðalag hefst í næstu viku Kristrún kynnir útspil Samfylkingarinnar Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Listi Miðflokksins og óháðra á Seltjarnarnesi kynntur » Fleiri tengdar fréttir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kynnti rétt í þessu nýtt útspil Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hið nýja útspil flokksins ber yfirskriftina „Tökum ábyrgð hvert á öðru“, en það var kynnt á blaðamannafundi við Smáratorg. Voru þar lögð fram þrjú samvinnuverkefni ríkis og sveitarfélaga sem verða sett í forgang á næsta kjörtímabili í sveitarstjórnum landsins. Þar er að finna tillögur til að lækka kostnað barnafólks og hlúa að fólkinu sem byggði landið. Þá er kynnt áætlun um einföldun regluverks á sviði sveitarstjórna. Útspil flokksins er þríþætt. mbl.is/Anton Brink „Í gær kynnti ríkisstjórnin lækkun á dælunni, til að taka á hækkandi olíuverði, samhliða nýrri atvinnustefnu Íslands sem er 10 ára vaxtarplan. Í dag kynnir Samfylking nýtt útspil til að létta daglega lífið, eftir umfangsmikið samtal við fólkið í landinu á síðustu misserum,“ sagði Kristrún, sem kynnti útspil flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar á blaðamannafundinum ásamt Jónasi Má Torfasyni sem er oddviti Samfylkingar í Kópavogi. Útspil flokksins kveður einnig á um að eyða biðlistum eftir hjúkrunarrýmum fyrir árið 2030 og ljúka við að fækka ríkisstofnunum um 15% á yfirstandandi kjörtímabili í landsmálunum. Lækkun kostnaðar barnafólks Í fyrsta lið áætlunarinnar sem kveður á um lækkun kostnaðar barnafólks leggur Samfylkingin meðal annars til þak á leikskólagjöld og 100% systkinaafslætti. Þá leggur flokkurinn til að réttur til leikskólavistar verði lögfestur frá því að fæðingarorlofi lýkur. Tillögurnar geri ráð fyrir að engin fjölskylda greiði meira en 50 þúsund krónur á mánuði fyrir 40 tíma leikskólaviku, en að tekjulægri greiði minna. „Þannig hlífum við barnafjölskyldum við allt að 450 þúsund króna kostnaði á ári, ef miðað er við hið svokallaða Kópavogsmódel,“ sagði Kristrún. Því til viðbótar er lagt til að öllum börnum og ungmennum verði boðið frítt í Strætó og að haldið verði áfram að efla frístundastyrki við barnafjölskyldur til að ýta undir virka þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi um land allt. Með Kristrúnu voru fulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi. mbl.is/Anton Brink Hlúa að fólkinu sem byggði landið Til að hlúa að fólkinu sem byggði landið boðar Samfylkingin áframhaldandi þjóðarátak í umönnun eldra fólks og uppbyggingu yfir 1.500 hjúkrunarrýma (samkvæmt framkvæmdaáætlun til 2030), þannig að árið 2027 verði búið að helminga biðlistann eftir hjúkrunarrýmum og að árið 2030 sé miðað við að biðlistinn verði kominn niður í 100 manns en að sá hópur fái biðrými og enginn bíði lengur en 90 daga. Þá hyggst Samfylkingin stórefla þjónustu við eldra fólk í heimahúsum með því að bjóða samfellda þjónustu við eldra fólk sem felst meðal annars í samþættingu heimaþjónustu, heimahjúkrunar og öldrunarráðgjafa. Vilja koma upp viðkomustað fyrirtækja hjá hverju sveitarfélagi Fjallar seinasti liðurinn um það að auðvelda rekstur og uppbyggingu og snýr það meðal annars að því að einfalda leyfisveitingar og regluverk. Leggur samfylkingin einnig til að komið verði upp einum viðkomustað fyrir fyrirtæki hjá hverju sveitarfélagi, þar sem fyrirtæki hafa fastan tengipunkt til halds og trausts. Þá verði haldið áfram að létta á kerfinu með fækkun ríkisstofnana um 15% á kjörtímabilinu, til að auka hagræði og bæta þjónustu við fólk og fyrirtæki. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Kosningaferðalag hefst í næstu viku Kristrún kynnir útspil Samfylkingarinnar Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Listi Miðflokksins og óháðra á Seltjarnarnesi kynntur » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Arsenal - Bournemouth, staðan er 0:1 Hillir undir menningarhús á Sauðárkróki Nýtt útspil Samfylkingar Helgarsteikin sem allir ættu að prófa Gæti orðið fyrsta skrefið í friðarsamkomulagi Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Geimfarið lenti án vandræða Myndskeið: Yfirlýsing Melaniu Trump í heild sinni Aðgerðunum fálega tekið Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Mest lesið Í gær Í vikunni Aðgerðunum fálega tekið Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Andlát: Elva Dagmar Simundsson Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Starfsfólk Norðuráls fær undanþágu í göngin Loks viðurkennir forsætisráðherra vandann Sjálfsvarnarnám ekki leiðin Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Nýjast á mbl.is » Arsenal - Bournemouth, staðan er 0:1 Hillir undir menningarhús á Sauðárkróki Nýtt útspil Samfylkingar Helgarsteikin sem allir ættu að prófa Gæti orðið fyrsta skrefið í friðarsamkomulagi Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Aðgerðunum fálega tekið Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Aðgerðunum fálega tekið Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Andlát: Elva Dagmar Simundsson Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Starfsfólk Norðuráls fær undanþágu í göngin Loks viðurkennir forsætisráðherra vandann Sjálfsvarnarnám ekki leiðin Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi