Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þið eruð næst!

Read Full Article →

Á dögunum kynnti Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, „nýtt útspil“ flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Eins og þekkt er hafa Kristrún og flokkurinn mikið dálæti á verslunarkjörnum og í þetta skiptið var kynningin haldin á Smáratorgi í Kópavogi. Eftirminnilegt er þegar hún kynnti útspil flokksins fyrir síðustu þingkosningar á planinu við Bónus á Egilsstöðum og í Mjóddinni. Fyrir utan skemmtilegan gjörning Sjálfstæðisflokksins, sem keypti auglýsingu á flennistórum skjá á Smáratorgi sem birtist á meðan kynningu Kristrúnar stóð, vakti helst athygli hrafnanna hve stórt hlutverk Jónas Már Torfason, sonur Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og oddviti flokksins í Kópavogi, lék í kynningunni og markaðsstarfi henni tengdri á samfélagsmiðlum. Pétur Marteinsson, oddviti flokksins í Reykjavíkurborg, var aftur á móti eins og borgarstjórinn fyrrverandi Dagur B. Eggertsson í algjöru aukahlutverki. Það er athyglisvert í ljósi þess að staða Samfylkingarinnar hefur verið töluvert sterkari í Reykjavíkurborg en í Kópavogi um langt skeið, auk þess sem það hlýtur að vera forgangsmál hjá flokknum að halda völdum í stærsta sveitarfélagi landsins. Hröfnunum skilst að einhverjir Kópavogsbúar hafi tekið þessu útspili sem dulinni hótun: Við erum búin að rústa Reykjavíkurborg og þið eruð næst! Huginn og Muninn er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article