Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fólk ætti að vera viðbúið því að eldsneytisverð hækki aftur

Read Full Article →

„Það er ólíklegt, sýnist mér og heyrist, að eldsneytisverð verði komið á svipaðar slóðir í lok ágúst, byrjun september og það var í upphafi árs,“ segir Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Hann segir ef til vill ekki sömu þörf á bráðaaðgerðum á Íslandi og í nágrannalöndunum vegna þess að íslensk heimili séu betur varin fyrir hækkun eldsneytisverðs. Ríkisstjórnin kynnti í gær tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, aukna verðlagsvöktun og fjölgun hleðslustöðva í aðgerðapakka til að bregðast við verðbólgu. Aðgerðirnar taka gildi 1. maí og gilda út ágúst. Þetta eru aðgerðir ríkisstjórnarinnar Lækkun á dælu: Með tímabundinni lækkun virðisaukaskatts úr 24% í 11% á eldsneyti af dælu Vöktun á verðlagningu: Með tímabundnu lagaákvæði sem skyldar söluaðila til að skila verðlækkun að fullu til neytenda og felur Samkeppniseftirlitinu að vakta að þetta sé gert. Með því að styrkja verðlagseftirlit ASÍ um 15 milljónir til að hafa sérstakt eftirlit í sumar með verðlagningu á öllum helstu tegundum dagvöru og þjónustu. Fjölgun hleðslustöðva um land allt: Með 500 milljóna átaki strax í sumar til að fjölga hleðslustöðvum við fjölbýlishús og gististaði og „loka hleðslugatinu“ hringinn í kringum landið. Lagafrumvarp um lækkun virðisaukaskatts á dælu og vöktun á verðlagningu verður lagt fram á Alþingi í næstu viku. Fjölgun hleðslustöðva verður styrkt með framlögum úr loftslags- og orkusjóði sem verða kynnt á næstu dögum. Eykur líkur á að kjarasamningar verði ekki endurskoðaðir Þrátt fyrir að vera takmarkaðar að bæði umfangi og tíma hjálpa aðgerðirnar að mati Jóns Bjarka. Einkum auki þær líkur á að kjarasamningar komi ekki til endurskoðunar í ágúst. Fólk ætti þó að vera viðbúið því að eldsneytisverð hækki aftur í september vegna víðtækra áhrifa frá átökunum í Persaflóa. „Þannig að fólk ætti ekki að gera sér of sterkar væntingar um að aðgerðirnar komi algjörlega gegn þeirri hækkun sem er orðin á eldsneyti á heimsmörkuðum og áhrifum þeirra hingað.“ Áhrif hærra eldsneytisverðs meiri annars staðar Fram undan er mikilvægur tími í verðbólgumælingum vegna forsenduákvæða kjarasamninganna í ágúst. Aðgerðirnar gætu hamið nokkuð verðbólguvæntingar því þær eru mjög tengdar verðbólgutaktinum frá mánuði til mánaðar. Jón Bjarki setur þó spurningamerki við það að vísað sé í fordæmi annarra landa við lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, því hærra eldsneytisverð hafi víðtækari áhrif á nágrannalöndin. „Okkar heimili eru betur varin fyrir þessum skelli sem er að verða á orku- og hrávörumörkuðum vegna Persaflóastríðsins heldur en nágrannar okkar eru. Að sama skapi er kannski ekki sama þörfin á að bregðast við með bráðaaðgerðum. Það ber líka að hafa í huga að þessar aðgerðir eru ekki ókeypis,“ segir Jón Bjarki. Ríkisstjórnin áætlar að kostnaður aðgerðanna sé á fjórða milljarð.

Share this article