Samkeppniseftirlitið undirbýr nú verðlagseftirlit í kjölfar þess að Alþingi samþykkti í gær lög um tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Eftir helgi mun eftirlitið senda eldsneytisfyrirtækjunum bréf þar sem óskað verður tiltekinna upplýsinga sem nauðsynlegar eru. Jafnframt verður lögð á fyrirtækin reglubundin upplýsingaskylda út tímabilið. Í tengslum við framangreinda upplýsingaöflun mun Samkeppniseftirlitið móta nánar hvernig staðið verður að eftirlitinu, þ. á m. hvaða viðmið verði lögð til grundvallar. Verður seljendum eldsneytis, ásamt þeim sem gæta hagsmuna neytenda, gefinn kostur á að tjá sig um tilhögun eftirlits og viðmið sem byggt verður á. Sjá einnig Lækka VSK á dælu og vakta verðlag á „verðlækkunarsumri“ Nýju lögin sem samþykkt voru á Alþingi í gær fela í sér tímabundna lækkun á virðisaukaskatti úr 24% í 11%. Með þessari lækkun er brugðist við áhrifum stríðsátaka í Miðausturlöndum á eldsneytisverð.