Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Belgískt fyrirtæki dýpkar næstu árin

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.4.2026 | 19:00 Belgískt fyrirtæki dýpkar næstu árin Það verður skipið Sebastiano Cabato sem fær það verkefni að dýpka Landeyjahöfn og innsiglinguna að höfninni frá og með þessu ári. Ljósmynd/Jan De Nul Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Vegagerðin gekk fyrir páska frá samningum við belgíska fyrirtækið Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar árin 2026 til 2029. Jan De Nul sérhæfir sig meðal annars í dýpkunarframkvæmdum og er meðal stærstu fyrirtækja heims á sínu sviði með starfsemi um allan heim. Fyrirtækið Jan De Nul hefur reynslu af aðstæðum við Landeyjahöfn enda vann það að dýpkun hafnarinnar árin 2015 til 2018. Verkefnið „Dýpkun Landeyjahafnar 2026-2029“ var boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu í lok desember 2025 og tilboð voru opnuð 10. febrúar sl. Fjögur tilboð bárust í verkið. Sjótækni ehf., Tálknafirði, bauð lægst, eða tæplega 1,2 milljarða króna. Næstlægsta tilboðið átti Rohde Nielsen, Danmörku, um 2,1 milljarð. Jan De Nul átti þriðja lægsta tilboðið, rúma 2,3 milljarða. Áætlaður verktakakostnaður var rúmir tveir milljarðar króna. Morgunblaðið/RAX Lægstu tilboðum hafnað Samkvæmt þessu var tveimur lægstu tilboðunum hafnað eftir að þau höfðu verið yfirfarain af sérfræðingum Vegagerðarinnar. „Réðst niðurstaða útboðsins af samræmdu mati á verði og tæknilegum þáttum,“ segir í tilkynningu á vef stofnunarinnar. Útboðið fól í sér reglubundna dýpkun á hafnarsvæði og í nágrenni hafnarinnar, með það að markmiði að tryggja nægjanlegt dýpi og öruggar siglingaaðstæður til og frá höfninni, segir í verklýsingu. Verkið er skipulagt í þremur tímabilum, frá september til apríl ár hvert, og er áætlað að árlegt dýpkunarmagn verði á bilinu 250.000 til 500.000 rúmmetrar. Sanddæluskipið sem Jan De Nul hyggst nota til verksins heitir Sebastiano Cabato og er 4.800 brúttótonn. Það er byggt 2011, er 93 metrar að lengd og 19,8 metrar að breidd. Dælurör skipsins nær niður á 26,5 metra dýpi. Undanfarin þrjú ár hefur Björgun ehf. dýpkað Landeyjahöfn og notað til þess dýpkunarskipið Álfsnes. Það er talsvert minna og afkastaminna skip, 1.139 brúttótonn, og 57 metra langt. Samið var við Björgun að loknu útboði árið 2022. Björgun, sem nú heitir Björgum Sement ehf., átti hæsta tilboðið í útboðinu að þessu sinni. Hljóðaði það upp á rúma 2,7 milljarða króna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Valur - Keflavík, staðan er 0:0 Þrír fá 136.000 krónur Tindastóll - ÍR, staðan er 29:22 Martin stigahæstur í sigri Óðinn og félagar með yfirhöndina í einvíginu Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áður grunuð og rannsökuð vegna umsáturseineltis Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin Mest lesið Í gær Í vikunni Nýtt útspil Samfylkingar Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Nýjast á mbl.is » Valur - Keflavík, staðan er 0:0 Þrír fá 136.000 krónur Tindastóll - ÍR, staðan er 29:22 Martin stigahæstur í sigri Óðinn og félagar með yfirhöndina í einvíginu Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ „Var kannski ekki efst á óskalistanum hjá okkur“ Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Aðgerðunum fálega tekið Mest lesið Í gær Í vikunni Nýtt útspil Samfylkingar Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi

Share this article