Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Öflugasti Rollsinn frá upp­hafi

  • What: New electric Rolls-Royce model announced
  • Impact: Luxury car manufacturer introduces updated electric vehicle
Read Full Article →

Breski lúxusbílaframleiðandinn Rolls-Royce hefur kynnt nýja og öflugri útgáfu af fyrsta rafbíl sínum, Spectre, undir heitinu Black Badge Spectre. Bíllinn markar nýjan kafla í þróun rafknúinna lúxusbíla hjá Rolls-Royce og er aflmesti Rollsinn fram til þessa. Rolls Royce Black Badge Spectre byggir á sama grunni og upprunalegi Spectre-bíllinn, sem kom á markað árið 2023. Helsti munurinn er sá að Black Badge Spectre skilar 650 hestöflum og yfir 1.000 Nm í togi, sem gerir hann að öflugasta Rolls-Royce bíl sögunnar, eins og áður sagði. Meira að segja Rollsarnir með V12 bensínvélunum, eins og Rolls-Royce Black Badge Ghost og Rolls-Royce Wraith, skiluðu ekki jafnmörgum hestöflum og hinn rafknúni Black Badge Spectre. Hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst tekur um 4,1 sekúndu, sem telst hratt miðað við rúmlega þriggja tonna lúxusbíl. Bíllinn er búinn nýjum akstursstillingum, þar á meðal svokallaðri Infinity Mode, sem eykur afl og viðbragð inngjafar, og Spirited Mode, sem virkar á svipaðan hátt og „launch control“ í sportbílum. Þrátt fyrir aukinn kraft er Black Badge Spectre með sömu rafhlöðu og grunnútgáfan, um 102 kWh, sem þýðir að aukning í afli er að stórum hluta fengin með hugbúnaðarstýringu frekar en nýrri tækni. Drægnin fer eftir aðstæðum en er frá 400 kílómetrum upp í 520. Verð á Black Badge Spectre er frá 50 milljónum króna upp í um það bil 70 milljónir.

Share this article